Heildarlosun koltvísýrings frá hagkerfi Íslands er mun meiri en gert hefur verið ráð fyrir

Nýtt los­un­ar­bók­hald frá Hag­stof­unni sýnir að auk­ist hefur til muna losun koltví­sýr­ings frá hag­kerfi Íslands frá árinu 2012, í stað þess að standa í stað líkt og skýrsla Umhverf­is­stofn­unar sýnir.

Heildarlosun koltvísýrings frá hagkerfi Íslands hefur aukist töluvert frá árinu 2012 samkvæmt nýju losunarbókhaldi. Þær niðurstöður gefa aðra mynd en skýrslan um losun Íslands, sem Umhverfisstofnun sendir árlega til Alþjóða Loftlagsráðsins (UNFCCC).

Hagstofa Íslands birti nýtt losunarbókhald í dag fyrir hagkerfi Íslands frá árinu 1995 til 2016, þetta bókhald nefnist AEA (Air Emission Account). Það bókhald gefur aðra mynd en NIR (National Inventory Report) skýrslan um losun Íslands, sem Umhverfisstofnun sendir til Alþjóða Loftslagsráðsins.

NIR skýrsla Umhverfisstofnunar sýnir m.a. losun sem verður vegna landnotkunar, breytinga í landnotkun og skógrækt. Losun vegna landnotkunar er hins vegar sleppt í AEA bókhaldinu þar sem landsvæði telst ekki sem hluta af hagkerfinu. Ef losun vegna landnotkunar er dregin frá heildarlosun í NIR skýrslunni þá stendur eftir notkun hagkerfisins, losun vegna eldsneytisbruna, orkuvinnslu, efnisnotkunar í iðnaði, landbúnaði og förgunar á sorpi. Þeir þættir eru einnig í AEA bókhaldinu.

Heildarlosun hefur aukist frá árinu 2012

Samkvæmt NIR skýrsunni hefur heildarlosun Íslands á koltvísýring, án landnotkunar (LULUCF) dregist saman miðað við árið 2008 og haldist nokkuð óbreytt frá árinu 2010. Heildarlosun koltvísýrins frá hagkerfi Íslands reiknað í AEA skýrslunni hefur hinsvegar aukist mikið frá árinu 2012 eins og má sjá á grafinu. Heildarlosun hagkerfis Íslands er því mun meiri en tölur NIR skýrslunnar gefa til kynna.

AEA bókhaldið nær yfir rekstur íslenskra fyrirtækja og fólks sem hefur búsetu á Íslandi óháð landsvæði Þetta þýðir að losun frá flugi og annarri starfsemi íslenskra flugfélaga erlendis er bókfærð á meðan rekstur erlendra flugfélaga hérlendis telst ekki með. Á svipaðan hátt er losun vegna reksturs íslenskra skipafélaga tekin inn óháð siglingarleið, en rekstur skipa erlendra aðila sem kaupa eldsneyti hérlendis kemur ekki inn í heildarlosunina.

Losun koltvísýrings 1174 kílótonnum meiri árið 2016 en NIR skýrslan sýnir

Leiðréttur samanburður milli NIR skýrslunnar og AEA bókhaldsins fæst ef starfsemi Íslendinga erlendis er dregin frá AEA samtölunni, og erlendri starfsemi hérlendis bætt við. Þegar leiðrétt hefur verið fyrir muninn á milli skýrslnanna þá er losun hagkerfisins á Íslandi enn þá mun meira en talið var eða 1174 kílótonnum meira árið 2016 en sú losun sem NIR- skýrsla ( án LULUCF) sýnir. Samanburðurinn sýnir að losunin hefur verið meira en talið var alveg frá árinu 1995.

Tölur Hagstofunnar sýna að eldsneyti sem selt er á Íslandi til samgangna milli Íslands og annarra landa hafi aukist töluvert á síðustu árum, sem er í samræmi við öran vöxt í flugrekstri og innflutningi.

Málmiðnaðurinn losar mestan koltvísýring

Árið 2016 losaði málmiðnaðurinn mest af koltvísýring á Íslandi eða um 1.684 kílótonn af CO2 í andrúmsloftið, vegasamgöngur losuðu 884 kílótonn, fiskveiðar 516 kílótonn en landbúnaður 6,8 kílótonn. 

Á hinn bóginn var mesta losun metans (CH4) í umhverfið frá landbúnaði eða 14,466 tonn árið 2016 og förgun sorps losaði 8863 tonn af metani.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár