Katrín: Mörg mál verið erfið fyrir ríkisstjórnina

Draumur for­sæt­is­ráð­herra er að eftir þessa rík­is­stjórn muni liggja plan um hvernig Ísland ætlar að takast á við þær breyt­ingar á sam­fé­lag­inu sem muni fylgja fjórðu iðn­bylt­ing­unni.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra er ánægð með þann árangur sem náðst hefur í vinnu­mark­aðs­málum, meðal ann­ars með gerð hinna svoköll­uðu lífs­kjara­samn­inga, og í hvaða far­veg þau hafa fallið á þessu kjör­tíma­bili. Hennar draumur sé að það verði hægt að taka það lengra með upp­setn­ingu þjóð­hags­ráðs aðila vinnu­mark­að­ar­ins, ríkis, sveit­ar­fé­laga og sveit­ar­fé­laga sem eigi að fjalla um bæði félags­legan og efna­hags­legan stöð­ug­leika.

Þá er hún einnig ánægð með hversu vel hefur tek­ist til við að koma loft­lags­málum á dag­skrá og fjár­magna aðgerðir vegna þeirra.„Það er ekki nóg að gert. Ég veit það. En ég er samt ánægð með að stór skref hafa verið stigin hingað til.“

Þetta er meðal þess sem Katrín er ánægð­ust með að rík­is­stjórn hennar hafi náð fram á þeim 16 mán­uðum sem hún hefur starfað. Katrín var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni og ræddi þar meðal ann­ars rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan:

Þeir flokkar sem mynda núver­andi rík­is­stjórn; Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, eru mjög ólíkir flokkar með afar ólíkar stefnur og áherslur. Því er um mjög óvenju­legt rík­is­stjórn­ar­sam­starf að ræða.

Aðspurð hvaða mál hafi verið erf­ið­ust við­fangs þá svar­aði Katrín ekki beint en sagði að þetta væri allt öðru­vísi reynsla en sú rík­is­stjórn sem hún sat í á árunum 2009 til 2013. Þar hafi flokkar starfað saman sem liggja mun nær hvorum öðrum, Vinstri græn og Sam­fylk­ing. „Það er allt öðru­vísi þegar ólíkir flokkar setj­ast saman og vinna í rík­is­stjórn. Það eru mörg mál sem eru okkur erfið. En þetta er allt ann­ars konar vinna. Maður þarf að hafa meira fyrir und­ir­bún­ingi mál­anna.“

[adspot]Stefnt er að því að næstu þing­kosn­ingar fari fram vorið 2021 og því er seinni hluti kjör­tíma­bils­ins handan við hornið. Katrín sagði að hennar draumur væri að eftir þetta kjör­tíma­bil lægi fyrir mark­verður árangur í loft­lags­málum og að íslenskt sam­fé­lag væri betur und­ir­búið undir þær miklu tækni­breyt­ingar sem eru að verða með fjórðu iðn­bylt­ing­unni. „Minn draumur er að við verðum svo­lítið komin með planið um hvernig við tök­umst á við breyt­ing­arnar.[...]Við erum auð­vitað með áætl­anir núna um að fjár­festa meira í nýsköpun og þekk­ingu. Ég lít á hvort tveggja, loft­lags­málin og tækni­breyt­ing­arnar, sem risa­stórt efna­hags­mál. Hvernig við getum tek­ist á við það að verða sam­fé­lag þar sem efna­hag­ur­inn hvílir á fjöl­breytt­ari stoðum, dregið úr losun en líka um leið ekki misst sjónar á jöfn­uði og lífs­gæðum því það er alltaf hætta á því að þessar breyt­ingar muni gagn­ast fáum en ekki fjöld­anum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár