Orkupakki handa unglingum

Árni B. Helgason fjallar um marg­breyti­leg áhrif skatta á umhverfi, nátt­úru og sam­fé­lag. Hann telur að ofurá­hersla á skatt­lagn­ingu launa og fjár­magnstekna, en vansköttun orku og marg­þættra nota af nátt­úru, leiði til sóunar og slakrar nýt­ingar nátt­úru­gæða.

Rót orku­só­unar í heim­inum liggur í því hve opin­ber gjöld af hag­nýt­ingu auð­linda eru lág, and­stætt við skatt­lagn­ingu vinnu­afls. Því vél­rænni sem fram­leiðsla og þjón­usta er, þeim mun lægri eru gjöldin – enda hrá­efnin í vél­arnar jafnt sem vél­arnar sjálfar og vél­ar­aflið nær skatt­laust – en séu verkin á hinn bóg­inn mann­afls­frek, þeim mun meiri eru álög­urnar, sér­stak­lega í hinum þró­aðri löndum.

Flest verk í heim­inum, sem krefj­ast mjög þró­aðrar vél­tækni og í senn mik­ils mann­afla og ódýrra hrá­efna, eru unnin af lágt laun­uðum og þar af leið­andi afar lágt skatt­lögðum Asíubúum, svo sem marg­vís­legur fjölda­fram­leiddur tölvu­bún­aðar, fatn­aður og alls kyns hlutir í vélar og tæki, og er þetta að veru­legu leyti varn­ingur handa okkur hálaun­uðu, að vísu nokkuð skatt­píndu, að því er sumum finnst, Evr­ópu­mönnum og Norður-Amer­íku­mönnum.

[adspot]Sum hin suð­læg­ari Amer­íku­ríki þjóna Vest­ur­landa­búum á nokkuð líkan hátt og hin ýmsu Asíuríki, svo að kalla má þau til sam­ans okkar helstu skatt­lendur, svo hag­kvæm eru við­skipta­kjörin okkur. Reyndar eru nokkur þess­ara ríkja á góðri leið með að verða nýmark­aðs­ríki, með sístækk­andi innri mark­aði vel­hald­inna neyt­enda, og fáein nú þegar búin að ná því marki – auk þeirra örfáu ríkja, sér­stak­lega í Austur-Asíu, sem náðu því fyrir all­löngu að skipa sér á bekk með okkur, neyslu­ríkj­unum, þá ekki síst Japan. Sú heims­álfa sem nýlendu­veldin léku verst, Afríka, rekur síðan lest­ina í þessum efnum, er hún okkur þó nokkuð gjöful að hinum ýmsu hrá­efnum, þó ekki væri annað, hvort sem Kín­verjar vinna úr þeim handa okkur eða aðrir.

Við, herrar jarð­ar­innar, Vest­ur­landa­menn, önn­umst vissu­lega að drýgstum hluta þá þætti sem mestum arði skila, svo sem hönnun hlut­anna, fram­leiðslu­stýr­ingu og mark­aðs­setn­ingu, að minnsta kosti enn, líkt og við stjórn­uðum nýlendu­vöru­verslun síns tíma og þræla­versl­un­inni um margra alda skeið, að ógleymdri ópíum­versl­un­inni, Kín­verjum til sællar minn­ingar. Rekum við jafn­framt æ hátækni­vædd­ari verk­smiðjur í hinum ýmsu og þó mis­jafn­lega þró­uðu heima­löndum þar sem sam­setn­ing hins fyr­ir­ferða­meiri hluta neyslu­varn­ings okkar fer gjarnan fram, svo sem bif­reiða, heim­il­is­tækja og háþró­aðri hluta tölvu­bún­aðar, en íhlut­irnir streyma þá oft langan veg að í massa­vís frá þró­un­ar­lönd­unum, kannski með sömu skipum og full­búni varn­ing­ur­inn, þ.e.a.s. það sem ekki kemur beint með flugi í pósti Ali­Ex­press.

Iðn­bylt­ingin sem fyrir margt löngu hófst á Vest­ur­löndum hefur sann­ar­lega leitt af sér þróun sem engan hefði órað fyrir, hvað þá að nokkur hefði séð fyrir alla þá sam­göngu­bylt­ingu sem af henni leiddi, jafnt í lofti sem á láði og legi, hvað þá heldur raf­einda- og hug­bún­að­ar­bylt­ing­una, eða upp­lýs­inga­bylt­ing­una sem loks af öllu saman leiddi – ekki frekar en að nokkurn hefði heldur órað fyrir því fyrir rétt rúmri öld að tvær heims­styrj­aldir væru í nánd, stríð sem í grund­vall­ar­at­riðum sner­ust um skipt­ingu nýlendukök­unnar milli Vest­ur­landa fyrst og fremst, um skipt­ingu gróð­ans okkar á milli. Nýlend­unum hlotn­að­ist að vísu sigur að lokum í nafni frels­is­ins, en einu gilti, áfram höfðum við und­ir­tökin.

Og enn eru blikur á lofti, enda vita nú allir allt um alla í krafti upp­lýs­inga­bylt­ing­ar­innar, ung­lingar í fjar­læg­ustu heims­hlutum fylgj­ast grannt með hverju fót­máli okkar og spyrja pabba og mömmu og afa og ömmu hvort hér drjúpi virki­lega smjör af hverju strái – hvort hér sé ann­ars annað hvert strá gull­stöng? Því er það að þró­un­ar­ríkin, sem flest eru fyrrum nýlendur eða hjá­lendur Vest­ur­landa í einni eða annarri mynd, krefj­ast síns skerfs, síns rétt­mæta hlutar, síns eigin neyslu­mark­aðar. Flest mega þau kall­ast nýfrjáls ríki, svo skammt er um liðið síðan að tök okkar á þeim tóku að lin­ast, og þó að nýmark­aðs­ríkin sæki nú heldur í sig veðrið þá eru þetta samt allt lággjalda­ríki, ríki með lágt verð­lag, lágt kaup­lag og lága skatta á flestum sviðum.

Viðskiptajöfnuður – viðskiptaójöfnuður

Við­skipta­jöfn­uður okkar og lággjalda­ríkj­anna helg­ast ekki síst af kaupum þeirra á afar dýrri og hátt skatt­lagðri verk­fræði- og hátækni­þjón­ustu af okkur. Hvert tonn af buxum, vél­ar­hlutum eða raf­einda­bún­aði sem þau selja okkur skilar þeim lægstu mögu­legu sköttum af afar lágt verðlagri vinn­unni að baki, rétt svo að nægir þeim til rekst­urs lág­marks grunn­þjón­ustu. Við á hinn bóg­inn leggjum háa skatta á alla þá dýr­seldu tækni­þjón­ustu sem við látum þeim í té til mót­vægis lág­vöru­verðs­kaup­unum og nýtum skatt­ana til rekst­urs háþró­aðra vel­ferð­ar­kerfa okkar.

[adspot]Því skyldu lággjalda­ríkin ann­ars sætta sig við slíka skipt­ingu kök­unnar, slíkan við­skipta­ó­jöfnuð? Því skyldum við fá heilt tonn af buxum fyrir ein­ungis einnar viku verk­fræð­ings­vinnu sem þau kaupa af okkur til end­ur­gjalds, t.d. í formi vinnu við hönnun hita­veitu­kerfa? Og samt fellur skatt­ur­inn af hvoru tveggja nær allur okkur í skaut – ann­ars vegar af drýgsta hluta útflutn­ings­verð­mætis verk­fræði­þjón­ust­unnar og hins vegar af stórum hluta álagn­ing­ar­innar á fram­leiðslu­virði buxn­anna, á útflutn­ings­verð­mæti buxna­fram­leiðslu­rík­is­ins, sem er þóknun okkar fyrir hönnun þeirra, fram­leiðslu­stýr­ingu og mark­aðs­setn­ingu. Heild­sölu­hluti þókn­un­ar­innar kann þá að renna til Levi's, Wrangler eða Lee, hver sem merkja­varan ann­ars er, og svo smá­sölu­á­lagn­ingin til buxna­sal­ans sem við skiptum við – sem sagt mark­aðsá­l­agið sem til sam­ans myndar skatt­lagn­ing­ar­stofn­inn, eina meg­in­rót vel­ferðar okkar – en hreinar útflutn­ings­tekjur fram­leiðslu­rík­is­ins nema þá ein­ungis brota­broti af smá­sölu­verð­inu, e.t.v. sem svarar til tíunda hluta.

Þætti okkur slík skatt­heimta rétt­mæt ef allt sneri á önd­verðan veg, að það værum við sem byggjum í slíku lággjalda­um­hverfi? Að við hefðum ekki tök á að reka nema lág­marks heil­brigðis-, mennta- og almanna­trygg­inga­kerfi nema þá kannski helst lög­reglu og her til að halda óánægju okkar í skefjum. Ekki ein­ungis ork­una og hrá­efnin létum við öðrum í té næstum því gef­ins heldur einnig drýgsta hluta vinnu okkar, virð­is­auka verð­mæt­anna. Fram­leiðsla okkar í þágu hágjalda­ríkj­anna væri á hinn bóg­inn hátt skatt­lögð af þeim jafnt sem rán­dýr her­gögnin og tækni­þjón­ustan sem þau létu okkur í té til end­ur­gjalds. Rekstur vel­ferða­kerfa þeirra væri sem sagt ekki síst bor­inn uppi af af okkur sem byggðum skatt­lend­urnar.

Rót vand­ans sem við er að glíma liggur þó ekki í sköttum sem slíkum heldur því hvernig skatt­lagn­ingu er almennt háttað. Því vél­rænni sem fram­leiðsla og þjón­usta er, þeim mun lægri eru skatt­arnir, en séu verkin á hinn bóg­inn vinnu­afls­frek, þeim mun meiri eru þeir þá, svo fremi að af ein­hverju sé að taka. Vél­ar­aflið sem knýr fram­leiðn­ina er sem næst skatt­laust en mann­aflið á hinn bóg­inn því dýr­seld­ara sem laun eru hærri og þar af leið­andi skatt­arnir.

Afleið­ingin er víta­hringur sem hvetur til sóunar á orku og landi, ójöfn­uður sem ógnar líf­rík­inu, bein­línis svo að stuðlað er að spill­ingu hrá­efn­anna, að málm­úr­gangi, plast­úr­gangi, steypu­úr­gangi, gúmmí­úr­gangi, timb­ur­úr­gangi, gler­úr­gangi – og þó ekki síst að mat­væla­úr­gangi og leifum af illa nýttum fatn­aði og skóm. En því ódýr­ari sem orkan er og allur aðgangur að land­inu og líf­rík­inu – jarð­ar­gróð­anum – and­stætt við dýr­selda og hátt skatt­lagða vinnu okkar vel­meg­andi Vest­ur­landa­búa, þeim mun verr er farið með hlut­ina, þeir illa nýttir og þeim sóað.

Skattarnir og jarðargróðinn

Hér á landi eru heild­ar­tekjur hins opin­bera nú um 42% af vergri lands­fram­leiðslu, þar af er hlutur rík­is­ins um 30% og hlutur sveit­ar­fé­laga um 12%, gróft á litið. Að með­töldu lög­bundnu líf­eyr­is­ið­gjaldi þá liggur nærri að um helm­ingi allra tekna sé með einum eða öðrum hætti stýrt af opin­berum og hálf­op­in­berum almanna­sjóðum. Það er mjög svipað hlut­fall og í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við og breytir þá litlu hvernig líf­eyr­is­sjóða­kerfum hinna ýmsu landa er háttað.

Meðal­jón­inn og Með­al­g­unnan átta sig lík­lega sjaldn­ast á því að greidd, útborgðuð laun þeirra eru yfir­leitt innan við 60% af heild­ar­launa­kostn­aði, sem auk umsamdra launa felur í sér trygg­ing­ar­gjald og hlut atvinnu­rek­anda í lög­bundnu líf­eyr­is­ið­gjaldi og stétt­ar­fé­lags­gjaldi, er það raunar sá lág­marks­launa­kostn­aður sem almennt er lagður til grund­vallar útseldri vinnu (auk hátt skatt­lagðrar stjórn­un­ar­þókn­unar). Það sem upp á heild­ar­launin vantar, yfir 40%, rennur nær allt í opin­bera sjóði ríkis og sveit­ar­fé­laga og til líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, auk þess sem þau Jón og Gunna kunna að greiða í sér­eign­ar­sparnað. Ekki er þó allt upp­talið, því þau eiga þá eftir að greiða af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum hina ýmsu neyslu­skatta þar sem virð­is­auka­skattur vegur yfir­leitt þyngst ásamt því sem hin ýmsu vöru­gjöld telja.

Þegar upp er staðið er því einmitt lík­leg­ast að um helm­ingur af heild­ar­launa­kostn­aði þeirra – um 50% – renni á einn eða annan veg til hinna ýmsu sam­fé­lags­mála og sam­neyslu á hendi hins opin­bera og til trygg­ingar líf­eyr­is­rétt­indum. Skyldi þá ekki heldur gleym­ast að kaupi þau útselda vinnu hvort af öðru þá þurfa þau að lág­marki tvenn dag­laun – hvort um sig – til að geta greitt hvort öðru ein dag­laun.

Málið snýst þó ekki um það hvort hlut­deild hins opin­bera, sem birt­ist í sköttum og hinum ýmsu gjöldum, skyldi vera meiri eða minni, enda er það póli­tísk spurn­ing sem snertir ekki grund­vall­ar­at­riði þessa máls.

Stóra spurn­ingin er tals­vert ann­ars eðlis og er hún þó ekki síður rammpóli­tísk. Hve rétt­mætt væri það ann­ars að skatt­leggja frekar notin af jarð­ar­gróð­anum – ork­una, landið, hafið, loftið, líf­ríkið, hrá­efnin – þannig að allur gróð­inn, sem af nátt­úr­unni er tek­inn og nýttur, væri skatt­lagður beint? – Eða er það endi­lega mun rök­rétt­ara og þar af leið­andi mun rétt­mæt­ara að skatt­leggja fyrst og fremst mann­fólkið sem vinnur að nýt­ing­unni og virð­is­eykur gróð­ann, allt frá hinu fyrsta hand­taki til hins síð­asta, hvort sem unnið er við vél­verk, hug­verk eða hand­verk, þar til að lokum að leifar gróð­ans eru urð­aðar, end­ur­unnar eða þeim hent á haug­ana?

Svarið hlýtur að velta á því hve dýr­mætur jarð­ar­gróð­inn er sam­an­borið við virð­is­auk­ann sem hlýst af vinn­unni. Því ódýr­ari sem jarð­ar­gróð­inn er og minna skatt­lagður í hlut­falli við vinn­una þeim mun frekar er hvatt til kaupa á dýru, skatt­lögðu vinnu­afli – í eitt skipti fyrir öll – til smíði á fjöl­hæfri vél úr lítt skatt­lögðum efnum sem fjölda­fram­leiðir enn fleiri fram­leiðslu­vélar, helst án þess að nokkur manns­hönd komi þar síðan að, hvað þá frá skatt­inum, varla einu sinni til að taka toll af orkunni sem þarf til fram­leiðsl­unnar, hvað þá af hrá­efn­unum. Og því dýr­ara sem vinnu­aflið er og meira skatt­lagt, þeim mun síður borgar sig að kosta menn til við­halds á vél­unum, enda virð­is­auk­inn af við­hald­inu þeim mun minni sem verð á nýjum og lítt skatt­lögðum vélum er lægra. Vélarnar end­ast þá þeim mun skemur og er æ fleiri glata færni til að halda vélum við þá skap­ast þeim mun meiri þörf fyrir enn fleiri nýjar.

Aftur á móti hlýtur jarð­ar­gróði að freista þeim mun færri til vél­rænnar hag­nýt­ingar eftir því sem gróð­inn er dýr­keypt­ari og meira skatt­lagður, hvað þá ef vinnu­aflið er svo ódýrt og lítt skatt­lagt að helst borgi það sig bara að vinna allt baki brotnu í hönd­unum. Allt öðru máli gegnir ef allt er ódýrt og lítt sem ekk­ert skatt­lagt, jafnt orkan sem hrá­efnin, landið, hafið, loftið og líf­ríkið, ekk­ert síður en vinnu­aflið. Og skilj­an­lega hafa fram­leið­endur ævin­lega lað­ast að löndum og ríkjum sem bjóða upp á slík kosta­kjör, og þeim mun frekar sem jarð­ar­gróð­inn er aðgengi­legri og fólkið fær­ara í sinni lág­launa­iðn – færi­banda- og tölvu­smiðir jafnt sem hand­verks­fólkið við böndin – að því gefnu að ein­hvers staðar sé tryggan neyt­enda­markað að finna með vel­höldnu fólki sem þyrstir í afurð­irnar.

Íslenska skatta­laga­reglu­verkið er á margan hátt nokkuð dæmi­gert fyrir hið ein­stak­lings­mið­aða skatt­kerfi vest­rænna neyslu­ríkja þó að vissu­lega fremur frum­stætt sé ríkið í ýmsu til­liti, sér­stak­lega þegar litið er til fremur bág­bor­innar iðn- og verk­menn­ingar okkar, enda lítt í hávegum höfð, og því að vonum að skil­virkni sé slök í ýmsum greinum – and­stætt við mörg hinna gam­al­grónu iðn­ríkja sem búa þó flest enn að margra alda langri hefð og þróun á ýmsum sviðum. Það á reyndar einnig við um ýmis hinna sterk­ari lággjalda­ríkja, hvert á sinn hátt, sem gera nú allt hvað þau geta til að skapa sér sinn eigin innri neyt­enda­markað og vel­ferð­ar­kerfi á svip­uðum for­sendum og við, með tekju­sköttum fyrst og fremst en þeim mun lægri gjöldum fyrir not af nátt­úr­unni, stuðlandi að enn frek­ari spill­ingu jarð­ar­gróð­ans.

Það er á hinn bóg­inn úti­lokað að lággjalda­ríkin nái við­líka neyslu- og vel­ferð­ar­stigi og við – að óbreyttum for­sendum – nema að eitt­hvað láti veru­lega undan. Hve fús erum við ann­ars til að láta þeim eftir rétt­mætan hlut í hag­nýt­ingu nátt­úr­unnar, nýt­ingu orku og hrá­efna, nýt­ingu hinna marg­vís­legu auð­linda jarðar? Ættum við ávallt að hóta við­skipta­stríðum, láta vopnin tala, líkt og jarð­ar­gróð­inn sé okkar einna, eða er mögu­leiki á rétt­látri skipt­ingu án þess þó að nokkur beri skarðan hlut frá borði?

[adspot]Lítum á hvaða áhrif það hefði að breyta öllum áherslum skatta þannig að þeir tækju mið af nátt­úr­u­notum fyrst og fremst en þeim mun síður mið af tekjum. Er mögu­leiki á að gróð­inn verði þá svo miklu betur nýttur að nátt­úru­gæðin nægi öllum – án frek­ari spill­ingar hrá­efn­anna, enda­lausrar sóunar mat­væla og orku?

Tökum örríkið Ísland sem dæmi og hug­leiðum áhrifin af slíkum breyt­ingum á allt vél­verk, hug­verk og hand­verk. Lítum svo á hvaða áhrif það hefði að yfir­færa bók­haldið á allan heim­inn. Alls ekki þó í þeim skiln­ingi að við tækjum öll heims­yf­ir­ráð heldur ein­ungis að við opn­uðum bók­haldið, enda hefðum við þá ekk­ert að fela, ekk­ert að bera kinn­roða fyrir. Mætti þá öllum ljóst vera að grænt bók­hald er ekki punt til skreytni og aug­lýs­inga­upp­hefðar heldur lýtur það að öllum notum af nátt­ur­inni – án und­an­tekn­inga. Og þegar allt kemur til alls, eru nátt­úr­u­notin svo vel sund­ur­grein­an­leg, að vel má ná utan um þau öll með örfáum bók­halds­lyklum. Bók­haldið leiðir þá í ljós, sjálfu sér sam­kvæmt, hvaða búskap­ar­hættir eru vænir umhverf­inu – og þar með mann­lífi jafnt sem hverju öðru lífi sem bær­ist á jörð, að ógleymdum ríkjum álfa og steina, enda er þá ekk­ert und­an­skilið þrátt fyrir fæð lyklanna. Bókhald sem á hinn bóg­inn tekur ekki allt með í reikn­ing­inn er ekki grænt heldur er það þvert á móti því svart­ara sem eru und­an­skotin eru meiri.

Gjöld fyrir not af náttúrunni

Búist má við að verg lands­fram­leiðsla á Íslandi verði nálægt 3.000 millj­örðum króna árið 2020. Hlut­deild hins opin­bera, ríkis og sveit­ar­fé­laga, sem er nú um eða yfir 42%, mun þá að óbreyttu nema um 1.250 millj­örðum króna. Gerum ráð fyrir að á um tíu ára aðlög­un­ar­tíma munum við inn­leiða hin ýmsu nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöld sam­hliða því að við afnemum trygg­ing­ar­gjald og tekju­skatt ásamt útsvari í núver­andi mynd og fellum per­sónu­af­slátt niður. Við afnemum jafn­framt tveggja þrepa virð­is­auka­skatt og látum nægja eitt lágt þrep sem nær þó til alls virð­is­auka, þ.á.m. til arðs, vaxta og leigu, og afnemum því fjár­magnstekju­skatt sem slíkan. Útsvar­inu yrði fundið ákveðið hlut­fall af hinum ýmsu tekju­stofnum þannig að sveit­ar­fé­lög sætu áfram við sama borð og áður en tökum ekki afstöðu til þess hér hvernig skipt­ing­unni yrði nákvæm­lega háttað.

Á 10 ára aðlög­un­ar­tíma fram til árs­ins 2030 væri núver­andi skatta­lögum breytt, stig af stigi, í þessa mynd. Með nýjum, almennum kjara­samn­ingum, einnig stig af stigi á tíma­bil­inu, væru laun aðlöguð að gjör­breyttum for­sendum opin­berra gjalda og væri öllum fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­að­ilum jafn­framt gert skylt að birta árs­reikn­inga sam­kvæmt lög­bundnum bók­halds­lyklum svo að ekki léki vafi á afkomu neinna. Að óbreyttum samn­ingum myndu útborguð laun ann­ars hækka sem næmi afnámi tekju­skatts og trygg­ing­ar­gjalds, lægstu grunn­laun um 10 til 20%, miðl­ungs­laun um 30 til 50% og hálaun þaðan af meira, banka­stjóra­laun reyndar um 80% og hæstu for­stjóra­laun um 100% og óða­verð­bólga geisa sem aldrei fyrr...

Gerum því ráð fyrir að bein­línis væri samið um lækkun heild­ar­launa, stig af stigi, u.þ.b. sem næmi afnámi tekju­tengdra skatta og gjalda á aðlög­un­ar­tím­anum, þar til að samn­ings­bundin laun væru orðin sem næst útborg­uðum launum að við­bættum líf­eyr­is­ið­gjöldum og stétt­ar­fé­lags­gjöldum. Lægstu laun myndu þá lækka lít­il­lega eða nán­ast standa í stað en miðl­ungs­laun lækka um 20 til 30%, miðl­ungs hálaun um 30 til 40% og hæstu for­stjóra­laun um 50% – án þess þó að kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna myndi skerð­ast, enda myndi flest vara og þjón­usta lækka veru­lega í verði en fyrst og fremst orku­frek kaup stíga í verði, sem væri bein afleið­ing af upp­töku nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjalda.

Launa­liðir alls rekstrar myndu aug­ljós­lega lækka og rekstr­ar­tekju­skattar jafn­framt heyra sög­unni til. Á hinn bóg­inn, þeim mun meiri sem notin væru af nátt­úr­unni, kæmu fremur við sögu hin ýmsu orku- og nýt­ing­ar­gjöld, umhverfis- og kolefn­is­gjöld, sem upp væru tekin stig af stigi, sam­hliða afnámi tekju­skatts og lækkun heild­ar­launa. Þeim mun minni sem nátt­úr­u­notin væru því lægri væru sem sagt gjöldin og þá eðli máls sam­kvæmt verð vöru og þjón­ustu jafn­framt, en allur orku­frekur rekstur og lítt vænn nátt­úr­unni myndi þá gjalda því meira.

Og í ljósi þess hve laun vega þungt í útgjöldum hins opin­bera en orku­frekur rekstur lítið þá gefur auga­leið að opin­ber útgjöld myndu drag­ast veru­lega saman – þó alls án þess að sam­dráttar gætti í umsvifum hins opin­bera eða að hallað væri á kaup­mátt þeirra er hið opin­bera greiðir laun og líf­eyri og það á almennt í við­skiptum við. Að liðnum 10 ára aðlög­un­ar­tíma árið 2030 myndu útgjöld hins opin­bera því hafa skroppið svo saman að um 850 millj­arða króna tekjur myndu standa undir sam­svar­andi umsvifum og rekstri og 1.250 millj­arða þarf til nú, og væri þó ekki litið fram hjá hag­vexti á tíma­bil­inu, svo sem nánar mun verða vikið að. Tekju­stofnar hins opin­bera, ríkis og sveit­ar­fé­laga, myndu þá lækka ár frá ári frá því að vera nú um 42% þar til að þeir næmu um 28% af 3.000 millj­arða króna vergri lands­fram­leiðslu, þar af féllu um 20% í hlut rík­is­ins og um 8% rynnu til sveit­ar­fé­laga, alls um 850 millj­arðar (ma) króna, sem þannig myndu skipt­ast árið 2030:

Bókhaldslyklarnir tíu

270 ma – 10% VSK af öllum virð­is­auka, án und­an­tekn­inga, þ.m.t. af arði, vöxtum, leigu o.fl.

120 ma – Orku­nýt­ing­ar­gjöld (vindur, fall­vötn, jarð­hiti = 30 millj­arðar kWst / 4 kr. pr. kWst til jafn­aðar)

70 ma – Kolefn­is­gjöld (af 5 millj. tonna CO2-ígilda / 14 þús. kr. pr. tonn til jafn­aðar)

60 ma – Veggjöld (af 4 millj­örðum km – til jafn­aðar 15 kr/km, eða 10 kr/tonn-km eigin þyngdar ökut.)

60 ma – Veiði­rétt­ar­gjöld (af fisk­veiðum)

30 ma – Umhverf­is­gjöld (af ýmissi nátt­úr­u­nýt­ingu og sjón­mengun til lands og sjávar)

70 ma – Fast­eigna- og erfða­fjár­skattar (fast­eigna­tengd gjöld sveit­ar­fé­laga, erfða­fjár­skattur til ríkis)

70 ma – Ýmis vöru­gjöld (m.a. til höml­unar óæski­legum áhrifum varn­ings á fólk, umhverfi og nátt­úru)

70 ma – Ýmis leyf­is­gjöld, sér­tekjur, sala á vöru og þjón­ustu o.fl.

30 ma – Beinn arður af opin­berum eignum (Lands­virkjun, Orku­veitan, Lands­banki o.fl.)

Það er eðli virð­is­auka­skatts að hann er lagður ofan á reiknað and­virði þó að í reynd sé skatt­ur­inn hluti af heild. 2.730 millj­arða króna verg lands­fram­leiðsla bæri því 10% vsk-skatt til við­bótar, alls um 270 millj­arða króna, alls án und­an­tekn­inga. Þar af leiðir að lands­fram­leiðsla í heild sinni (allur virð­is­auki sam­an­lagður) nemur þá um 3.000 millj­örðum króna, þar af næmi virð­is­auka­skattur í reynd um 9%, reiknað sem hluti af allri heild.

Að öllum tekju­sköttum afnumdum myndi skóla­hald, heil­brigð­is­þjón­usta, lög­gæsla, stjórnun og yfir höfuð flest almanna­þjón­usta lækka veru­lega í verði og flest vinna við við­hald – bygg­inga, bif­reiða, skipa, flug­véla og ann­arra hluta og tækja – og end­ing hlut­anna myndi því batna til muna. Líkt myndi eiga við um marg­vís­lega nýsmíði, fram­leiðslu og þjón­ustu sem ekki væri háð miklum orku­kaupum eða slíkum hrá­efnum sem væru leidd af mjög orku­frekri vinnslu – að kostn­aður myndi lækka, þar á meðal t.d. flest vinna við nýbygg­ingar, fram­leiðslu mat­væla og allra handa vinna við afgreiðslu, sölu og þjón­ustu, þ.á.m. við all­flesta sér­fræði­þjón­ustu. Kaup­máttur myndi því aukast gagn­vart flestum þess­ara greina sem hér um ræðir, á sumum sviðum veru­lega, en á hinn bóg­inn myndi m.a. heitt vatn og raf­magn hækka í verði og hin ýmsu verk sem leidd eru af mjög orku­frekri vinnslu.

Nánar um náttúrunýtingargjöldin

Sam­setn­ing útgjalda ein­stak­linga jafnt sem stofn­ana og fyr­ir­tækja tæki miklum breyt­ingum og á öllum orku­frekum sviðum myndi gæta veru­legs hvata til sparn­aðar. Raf­orku­verð til almenn­ings og almenns atvinnu­rekstrar myndi tvö­fald­ast, að minnsta kosti, og slíkt hið sama verð á heitu vatni. Myndi vægi jöfn­un­ar­sjóða þó jafn­framt vera aukið á köldum hús­hit­un­ar­svæðum svo að allir sætu við sama borð.

Orkuverð til stór­iðju myndi hækka að lág­marki sem svar­aði til lækk­unar launa­kostn­aðar og tekju­skatta iðju­ver­anna og veru­lega hag­kvæm­ari kaupa þeirra á hinum ýmsu inn­lendu aðföngum og þjón­ustu – og þó mun meira er tímar liðu fram, með end­ur­nýjun lang­tíma­samn­inga um orku­kaup, að gjör­breyttum við­horfum til orku­mála.

Stóriðja sem greiðir nú 3 til 4 kr. fyrir orku­ein­ingu myndi að lág­marki greiða 5 kr. og þó allt eftir samn­ings­stöðu á hverjum tíma – mun heims­mark­aðs­verð á orku þó ein­ungis fara hækk­andi á kom­andi árum og því vel raun­hæft að gera fremur ráð fyrir 6 krónum að lág­marki að liðum aðlög­un­ar­tím­anum.

Orku­nýt­ing­ar­gjaldið tæki til allra inn­lendra orku­linda, alls óháð því hvort orkan væri nýtt inn­an­lands eða hún t.d. flutt út um sæstreng. Gjaldið væri því álag, lagt á alla fram­leiðslu á heitu vatni og raf­magni, óháð eign­ar­haldi orku­lindar, og myndi það á heild­ina litið nema til jafn­aðar um 4 kr/kWst og skila hinu opin­bera um 120 millj­örðum króna á ári. Gjaldið væri þó aldrei svo hátt á neinum notk­un­ar­sviðum að hamla myndi orku­skiptum frá meng­andi orku til hreinni orku.

Líkt og á við um orku­nýt­ing­ar­gjaldið þá myndi afnám hinna marg­vís­legu skatta á laun og fjár­magnstekjur, og þá ekki síst lækkun umsam­ins launa­kostn­aðar, ekki síður vega veru­lega á móti hinum ýmsu öðrum nátt­úr­u­nýt­ingar- og umhverf­is­gjöldum og raunar gjör­breyta öllum áherslum rekstrar, þá alveg sér í lagi vægi flestra útgjalda, sem nær öll myndu lækka til mik­illa muna. Og hvað t.d. veiði­rétt­ar­gjald varðar þá væri það eðli­lega nátengt afla­brögðum, árferði og mörk­uðum í hinum ýmsu greinum sjáv­ar­út­vegs og væri gjaldið því á ýmsa lund svo hátt eða lágt sem afkoma í hverri grein útvegs­ins leyfði á hverjum tíma. Væri gjald­inu þó ekki síst beitt til sókn­ar­stýr­ingar, eftir teg­undum og stærð­ar­flokkum veið­innar.

Þó að kolefn­is­gjald sé sett hér fram sem verð pr. tonn los­unar CO2-ígilda þá væri það í reynd útfært á ýmsan veg, allt eftir því sem skil­virkast væri, með gjaldi pr. lítra fljót­andi elds­neytis, allt eftir því hve útblástur hinna ýmsu elds­neytis­teg­unda er ríkur af koltví­ildi og öðrum sam­svar­andi óum­hverf­is­vænum efnum, eða á hinn bóg­inn með gjaldttöku út frá beinum mæl­ingum á losun, líkt og myndi gilda um losun af landi og ekki síst um hin ýmsu iðju- og orku­ver. Gjaldið væri í sjálfu sér óháð sam­göngum eða hvers kyns beinum notum af nátt­úr­unni sem slíkri, þar kæmu til önnur gjöld, enda því fyrst og fremst ætlað að hamla beint og milli­liða­laust gegn loft­mengun og gróð­ur­húsa­á­hrifum. Það væri án allra und­an­þága en þó að vissu marki mis­hátt með hlið­sjón af eðli og vægi los­un­ar­á­hrifa. Hvers kyns loft­meng­andi land­notkun, ofnar, vélar og tæki, meng­andi öku­tæki jafnt sem meng­andi vinnu­vélar, skip, bátar og loft­för, væru því háð gjald­inu án sér­staks grein­ar­munar út frá nota­gildi eða eðli starf­semi sem slíkrar, þá eðli máls sam­kvæmt öll meng­andi iðju- og orku­ver sem hver önnur slík starf­semi er loft­mengun staf­aði af. Kolefn­is­gjald væri því inn­heimt alls óháð öðrum gjöldum, svo sem orku­nýt­ing­ar­gjaldi, umhverf­is­gjaldi, veiði­rétt­ar­gjaldi, fast­eigna­gjöldum eða veggjaldi, sem gjald­andi kynni jafn­framt að greiða, og myndi sam­svar­andi regla raunar gilda um öll gjöld.

Veggjöld – gjöld af fast­eignum á hjólum – myndu vera lögð á allan akstur, alls óháð gerð hreyf­ils öku­tækis, mengun af völdum þess, orku­flokki eða nýt­ing­ar­flokki. Gjaldið tæki m.a. mið af stærð og þyngd öku­tækis, ekinni vega­lengd og veg­flokki, þ.e.a.s. þeim vegi, veg­hluta eða vega­svæði sem ekið væri um eða öku­tæki væri lagt á. Öll öku­tæki, að með­töldum akan­legum vinnu­vélum, væru búin tæki til stað­setn­ingar (GPS) – öku­rita – er sendi ávallt upp­lýs­ingar um stað og stefnu (líkt gildir um skip og loft­för) sem umferð­ar­stjórn og greiðslu­stofa hefðu að vissu marki aðgang að. Upp­lýs­ing­arnar væru dulkóð­aðar, líkt og upp­lýs­ingar síma­fyr­ir­tækja um ferla far­síma, en eig­andi fengi sund­ur­lið­aðan reikn­ing með yfir­liti yfir akst­urs- og stöðu­gjöld, ekki ólíkt og gildir um far­síma á sinn hátt. Stjórn­stöðvar umferðar hefðu ein­ungis upp­lýs­ingar um feril hvers öku­tækis en án frek­ari grein­an­legra upp­lýs­inga, ekki frekar en að lög­regla hefur aðgang að per­sónu­grein­an­legum fer­il­upp­lýs­ingum um ein­staka far­síma nema með sér­stakri rann­sókn­ar­heim­ild. Auk ekinnar vega­lengdar og þyngdar öku­tækis þá væri það ekki síst umferð­ar­á­lag, álags­stýr­ing, sem hefði áhrif á gjaldið á hverjum stað og tíma. Gjald fyrir hverja ekna lengd­ar­ein­ingu eða gjald fyrir stæði, hvort sem væri í þétt­býli eða strjál­býli, gæti því verið mjög mis­jafnt, mjög lágt eða ekk­ert eða þeim mun hærra sem stað­setn­ing, öku­tækja­flokkur, veg­flokkur, álag, tími dags og árs­tíð gæfi til­efni til, á sinn hátt líkt og veiði­rétt­ar­gjaldi væri beitt til sókn­ar­stýr­ingar.

Afnám tekjuskatta leiðir til samdráttar gervifjár

Að öllu þessu athug­uðu má ljóst vera að útgjöld hins opin­bera hljóta að drag­ast veru­lega saman – í krónum talið – enda eru útgjöldin að lang­mestu leyti fólgin í greiðslu launa og líf­eyris, beint og óbeint, í einni og annarri mynd. Í núver­andi skatt­kerfi gildir einu hvort um ræðir opin­beran starfs­mann, líf­eyr­is­þega, verk­taka í vinnu fyrir hið opin­bera eða hvern þann sem selur hinu opin­bera vöru eða þjón­ustu, að um leið og hið opin­bera geldur launin eða líf­eyr­inn eða leggur fram greiðslu fyrir vinn­una, vör­una eða þjón­ust­una þá tekur það væna sneið strax aftur til sín. Með öðrum orðum, þá eru greiðsl­urnar að drjúgum hluta skattar sem hið opin­bera er í sífellu að leggja á sjálft sig, bein­línis á eigin greiðslur, eigin útgjöld. Þetta gervifé myndi að veru­legu leyti heyra sög­unni til, enda þjónar það fyrst og fremst þeim til­gangi að auka pen­ing­magn í umferð og skrúfa upp verð­lag, heild­ar­laun jafnt sem annan kostnað, útgjöld jafnt sem skatt­tekjur.

Hið sama hlýtur þá að gilda um hinn almenna markað og þann opin­bera, að umsam­dri lækkun launa u.þ.b. sem næmi afnámi tekju­skatts og útsvars, að launa­kostn­aður myndi skreppa saman – í krónum talið – og þá jafn­framt útselt verð vinn­unnar, þá einnig að hafðri hlið­sjón af lækkun fjár­magnstekju­skatta. Reyndar myndi stærsti hluti alls hag­kerf­is­ins skreppa saman – í krónum talið – en verð­lag nálg­ast æ meira raun­veru­legan kostnað að baki hlut­anna (hið eig­in­lega verð vinn­unnar) er lengra liði á aðlög­un­ar­tím­ann.

Starf­semi sem fæli litla orku­notkun í sér myndi lækka mest í verði, svo sem marg­vís­leg við­halds­vinna, verslun og við­skipti, ferða- og veit­inga­þjón­usta og flest sér­fræði­þjón­usta, en ann­ars þeim mun minna sem bein eða óbein orku­notkun væri meiri. Frum­vinnsla, úrvinnsla, dreif­ing og sala t.d. land­bún­að­ar­vara myndi vissu­lega bera hin ýmsu gjöld á hinum ýmsu stigum, þá ekki síst gjöld leidd af notkun lands og notkun vinnu­véla­olíu, raf­magns og hita, auk þess sem fast­eigna­gjöld, veggjöld og fleira telja, en algjört afnám tekju­skatta á öllum stigum myndi á hinn bóg­inn leiða til slíkrar lækk­unar á móti að smá­sölu­verð flestra land­bún­að­ar­vara, eðli­lega að með­töldum 10% virð­is­auka­skatti, myndi standa í stað eða lækka og það þó að nið­ur­greiðslur væru afnumdar. Mögulega myndu þó tíma­bundin sér­á­kvæði í lögum heim­ila óbeinar nið­ur­greiðslur í formi frest­unar álagn­ingar kolefn­is­gjalda vegna beinna gróð­húsa­á­hrifa af land­bún­að­ar­landi á meðan atvinnu­greinin væri að laga sig að gjör­breyttum við­horfum til nota af landi og nátt­úru.

Orku­frek­ustu hlutar hag­kerf­is­ins og þeir sem mestan gróða hafa af hag­nýt­ingu umhverfis og auð­linda myndu á hinn bóg­inn greiða mestu gjöldin, en jafn­framt, líkt og aðrir, upp­skera veru­lega lækkun launa­kostn­aðar sem og lækkun skatta af fjár­magnstekjum, auk þess sem flest kaup á inn­lendum aðföngum og þjón­ustu myndu verða mun hag­kvæm­ari. Vægi þess­ara orku­freku greina í lands­fram­leiðslu færi því hækk­andi fremur en lækk­andi á aðlög­un­ar­tím­anum – í krónum talið – eða myndi sem næst standa í stað, allt eftir þeim áherslum sem almennt væru lagðar á hag­nýt­ingu umhverfis og orku­linda.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að hér ræðir ekki um mæli­kvarð­ann, krón­una sem slíka (sem gæti allt eins verið kýr­verð, álnir vað­máls, fisk­verð, evra, dollar eða álverð), heldur það sem liggur að baki mæl­ing­unni, jafn­vel hvort eitt­hvað hafi löngum verið tví­mælt, marg­mælt, teygt eða togað eða alls ekki mælt.

[adspot]Því skyldi ann­ars fyrst og fremst vinnu­aflið að baki fram­leiðslu og þjón­ustu vera metið til skatt­virðis en ekki allt það sem fram­leitt er eða þjón­u­stað? Fram­leiðni sjó­manns­ins og áliðju­manns­ins er sann­ar­lega marg­föld á við leik­skóla­kennar­ann – í krónum talið – en þá er engu að síður um fram­leiðni að ræða sem er til orðin vegna allra en ekki vegna fáeinna sér­út­val­inna. Störf þeirra allra eru því mik­il­væg, enda ekki síður þýð­ing­ar­mikið að ala upp börn og kenna þeim en að afla matar eða vinna málma og önnur smíða­efni. Myndu reyndar öll hag­kerfi hrynja ef ein­hverjum þess­ara starfs­greina væri ekki sinnt, hvað þá engum þeirra. Samt gjalda leik­skól­inn og starfs­menn hans mun hærra hlut­fall skatta en nokkurn tím­ann þær atvinnu­greinar sem byggja fyrst og fremst á vél­ar­afli og orku – og horfum þá alls ekki fram hjá afar mis­jafn­lega dul­inni skatt­byrð­inni sem svo ójafn­að­ar­lega er jafn­framt fólgin í útgjöld­unum.

Því meiri sem áhersla skatt­lagn­ingar verður á fram­leiðslu og þjón­ustu sem er háð orku- og auð­linda­nýt­ingu, en þeim mun minni á hrein laun og líf­eyri, þá mun gervi­fjár hins opin­bera minna gæta, enda er hið opin­bera ekki ein­ungis langstærsti greið­andi launa og líf­eyris, ýmist beint eða óbeint, og þó allra síst á sviði eig­in­legrar fram­leiðslu eða vinnslu, heldur jafn­framt sá aðili sem nýtur allra skatt­anna, reyndar fyrir okkar allra hönd. Gróft á litið – sam­kvæmt ríkj­andi hag­fræði, í krónum talið – má ljóst vera að um helm­ingur hag­kerf­is­ins er knú­inn áfram af hinu opin­bera, beint og óbeint á einn eða annan veg, að hinum hálf­op­in­bera hluta þess, líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu, með­töldum.

Með nýjum kjara­samn­ingum, með afnámi drýgsta hluta skatt­byrðar launa og alls per­sónu­af­sláttar, er því ekki frá­leitt að ætla að vægi þessa vinnu­afls­frekasta helm­ings hag­kerf­is­ins muni minnka um allt að þriðj­ung – sem sagt í krónum talið – en að helm­ingur þess sem þá er eftir muni á sam­svar­andi máta drag­ast saman um 15 til 20%. Fjórð­ung­ur­inn sem þá er eftir, sem snýr að orku­frek­ustu sviðum og auð­linda­nýt­ingu, en þeim mun minna að hag­nýt­ingu vinnu­afls, mun svo gróft á litið sem næst standa í stað – í krónum talið. Þetta myndu jafn­vel blindustu hag­fræð­ingar fall­ast á, ein­ungis að þeir yrðu þeirrar gæfu aðnjót­andi að fá virt fyrir sér allan fíl­inn.

Í heild­ina tekið, gróft á litið, má því gera ráð fyrir um það bil fimmt­ungs sam­drætti lands­fram­leiðslu – í krónum talið – sem svarar til um 2,5% á ári miðað við 10 ára aðlög­un­ar­tíma. Ef við gerum jafn­framt ráð fyrir 2,5% raun­hag­vexti á sama tíma – ekki síst af völdum mun betri nýt­ingar verð­mæt­anna af völdum hvatans til orku­sparn­aðar – þá myndi lands­fram­leiðslan raunar standa í stað, sem sagt í krónum talið. Krónan myndi þá með öðrum orðum hafa styrkst sem svarar til afnáms gervi­fjár­ins, enda stæðum við og hag­kerfi okkar – fíll­inn – ekki lengur á brauð­fótum.

Ljóst má vera sam­kvæmt þessu að tekjur og gjöld hins opin­bera munu lækka sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu án þess þó að í nokkru sé hróflað við raun­virði þess hluta hag­kerf­is­ins frekar en ann­arra hluta. Mæli­kvarð­inn – krónan – er áfram hinn sami en það sem er mælt er nú hvorki tví­mælt né marg­mælt, teygt eða togað eða alls ekki mælt, líkt og venjan hefur löngum verið í þró­uðum hag­kerfum með þeim afleið­ingum að vísi­tölur flestar eru marklausar, hvað þá geng­is­vísi­tölur gjald­miðla.

Við gerum því ráð fyrir að hinn opin­beri hluti muni minnka um þriðj­ung – í krónum talið – frá því að vera um 42% af vergri lands­fram­leiðslu í um 28%. Þar af næmi hlutur rík­is­ins um 20%, miðað við sömu hlut­falls­legu skipt­ingu og nú, og hlutur sveit­ar­fé­laga þá um 8%, og myndi þátt­taka hins opin­bera engu að síður vera söm og jöfn og nú. Mælingin væri ein­ungis orðin orðin rétt­ari, einmitt með afnámi mest alls gervi­fjár­ins, og væri þá jafn­framt sýnt fram á að raun­veru­legur hlutur hins opin­bera í hag­kerf­inu er alls ekki svo stór sem af er látið.

Aðrar greinar hag­kerf­is­ins hljóta þá að vega mun meira en menn hafa hingað til viljað vera láta, hvað þá hinar afl­frek­ustu og auð­linda­háð­ustu greinar – orku­bú­skapur, stór­iðja, sjáv­ar­út­vegur – sem eru einmitt þær greinar þar sem mestrar fram­leiðni gætir, auk þess sem sívax­andi hlutur gagna­vera mun telja á kom­andi árum. Þessar greinar munu því eðli máls sam­kvæmt leggja mun stærri hlut­falls­legan skerf til þjóð­ar­bús­ins en hingað til hefur verið reiknað með að þær gerðu, alls burt­séð frá gjald­eyr­is­tekj­unum sem slíkum. Krón­urnar – allar í heild sinni, sem slíkar – væru þó ekki fleiri heldur þvert á móti færri, en á hinn bóg­inn væri hver króna því verð­mæt­ari sem næmi brott­falli alls gervi­fjár­ins.

Í hnotskurn

Að áður gefnum for­sendum um 2,5% árlegan sam­drátt lands­fram­leiðslu á 10 ára aðlög­un­ar­tíma til árs­ins 2030 – í krónum talið – og 2,5% árlegan raun­hag­vöxt af völdum mun betri nýt­ingar verð­mæt­anna á sama tíma, þá mun u.þ.b. 3.000 millj­arða króna verg lands­fram­leiðsla standa í stað allt tíma­bilið – sem sagt í krónum talið – en núver­andi u.þ.b. 42% hlut­deild, um 1.250 millj­arðar króna, mun þá með ári hverju lækka þar til að hlut­deildin nemur um 28% eða um 850 millj­örðum króna árið 2030 – sam­an­ber bók­halds­lyklana tíu hér framar – og munu þá um 610 millj­arðar falla rík­inu í skaut og um 240 millj­arðar renna til sveit­ar­fé­lag­anna, að með­töldum fast­eigna­tengdum gjöldum.

10% virð­is­auka­skattur – tíund af öllum inn­lendum við­skiptum á öllum stigum fjár­muna­mynd­unar, einka­neyslu og sam­neyslu og af öllum inn­flutn­ingi vöru og þjón­ustu – væri án und­an­tekn­inga. Skatt­ur­inn væri því sem næst algjör mæli­kvarði á allar hreyf­ingar nær alls fjár í umferð og sökum þess hve lágur hann væri þeim mun minni hvati væri til skattsvika. Skatt­skil myndu því batna til muna – sem og ekki síður myndu nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöldin bjóða upp á miklum mun minni mögu­leika á svikum en nokkurn tím­ann það skatt­kerfi sem við nú búum við, sem meira og minna býður bók­staf­lega upp á svart hag­kerfi, neð­an­jarð­ar­hag­kerfi, í flestum greinum þjóð­ar­bú­skap­ar­ins. Sykur­út­lát eru þá ýmist eftir sam­komu­lagi eða alls engin, til að mynda þegar um ræðir hrein svik – hrein vöru- eða þjón­ustu­skipti, alls án fjár­út­láta.

Hvorki var­an­leg fjár­mun­myndun, svo sem í mynd fast­eigna, né neins­konar lausa­fjár­myndun, svo sem kaup bif­reiða eða gerð lista­verka og hús­bún­aðar, væri und­an­skilin virð­is­auka­skatti, né heldur nokkur þjón­usta, hvorki almenn­ings­sam­göngur né góð­gerð­ar­starf­semi, fjár­mála­þjón­usta, félags­leg þjón­usta, heil­brigð­is­þjón­usta, happ­drætti, vátrygg­inga­starf­semi eða rekstur skóla og mennta­stofn­ana.

Allur raun­veru­legur virð­is­auki, hverju nafni sem nefn­ist, væri skatt­skyldur, hvort sem er hagn­aður af útseldri vöru eða útseldri vinnu, hvort sem er í formi arðs, vaxta, leigu eða ann­ars, en ávallt skyldi reglan um inn­skatt og útskatt í heiðri höfð, jafnt í við­skiptum með notað sem nýtt.

Eðli máls sam­kvæmt bæri notuð vara ein­ungis virð­is­auka­skatt að því marki skatt­stofns sem næmi jákvæðum mis­mun á sölu­verði og bók­færðu verði fyrir sölu. Flest sala á not­uðu væri því í raun skatt­laus, og þá því fremur sem verð héld­ist í hendur við eðli­legar afskriftir – raunaf­skriftir, að teknu til­liti til reglu­legs end­ur­mats, end­ur­bóta og nota­gildis. Eðlilega bæri þó öll þjón­usta við sölu, jafnt á nýju sem not­uðu, virð­is­auka­skatt, regl­unni sam­kvæmt. Hvað fast­eignir ein­stak­linga varðar myndi þó vera litið til fast­eigna­mats fremur en afskrifta og heim­ilt væri að upp­færa bók­fært verð og trygg­inga­mat bif­reiða, og hugs­an­lega fleiri áþekkra lausa­fjár­muna, með hlið­sjón af sann­an­legum end­ur­bótum, við­haldi og nota­gildi, líkt og gildir um fast­eigna­mat.

[adspot]Und­an­þágur frá skatt­inum væru óheim­ilar, sama hvort almenn­ings­sam­göngur eða góð­gerð­ar­starf­semi ætti í hlut, félags­leg þjón­usta, listir eða hvers kyns menn­ingar- og íþrótta­starf­semi, enda greiddu heldur engir laun­þegar þess­ara greina tekju­skatt, ekki frekar en nokkrir aðrir laun­þegar í land­inu, né heldur nokkur rekstur af neinu tagi. Eðli máls sam­kvæmt væri það á verk­sviði Alþingis og eftir atvikum sveita­stjórna að veita þeim greinum stuðn­ing sem sam­komu­lag væri um og þá með þeim hætti að fram­lög kæmu skýrt fram í fjár­lögum eða sveit­ar­stjórna­sam­þykktum, en ekki sem skatta- eða gjalda­af­sláttur í hinum ýmsu óljósu myndum, og væri vissu­lega hvers kyns stuðn­ingur eðli­lega öllum frjáls og heim­ill, ein­stak­lingum jafnt sem fyr­ir­tækjum og félaga­sam­tökum.

Í stað tekju­skatts kæmu hin marg­vís­legu gjöld fyrir not af nátt­úr­unni. Því háð­ari sem atvinnu­rekstur væri jarð­ar­gróð­anum og hinum ýmsu tak­mörk­uðu nátt­úru­hlunn­indum og gæðum, því hærri gjöld bæri rekst­ur­inn – kolefn­is­gjald, orku­nýt­ing­ar­gjald, umhverf­is­gjald, veiði­rétt­ar­gjald, veg­gjald, fast­eigna­gjöld – allt eftir eðli og áherslum rekstr­ar­ins. Sam­svar­andi gilti í raun um neyt­endur, ein­stak­ling­ana, að því háð­ari sem þeir væru vöru og þjón­ustu sem beint og óbeint væri leidd af hinum ýmsu hlunn­indum eða orku­frekri eða meng­andi nátt­úr­u­nýt­ingu, allt eftir þeim lífsmáta sem hver og einn kysi sér, því hærri gjöld bæri hver og einn – beint og óbeint með kaupum sínum og við­skiptum.

Hagnaður af rekstri lög­að­ila sem ann­arra rekstr­ar­að­ila, að öllum útgjöldum og sköttum hvers árs greiddum, myndi engu að síður skila virð­is­auka­skatti af greiddum arði eða á hinn bóg­inn virð­is­auka­skatti og nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöldum af nýrri fjár­muna­myndun. En því arð­bær­ari sem rekstur væri, þá því fremur myndi hagn­að­ur­inn vekja laun­þega og laun­þega­hreyf­ingu til vit­undar um mögu­leik­ana á stærri hlut­deild í ágóð­anum, mögu­leik­ana á betri kjörum, hærri launum.

Það skyldi því vera eitt af grund­vall­ar­at­riðum kjara­bar­áttu, að öllum fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­að­ilum væri skylt að birta skýra árs­reikn­inga sam­kvæmt lög­bundnum bók­halds­lyklum svo að ekki léki vafi á afkomu neinna, auk þess sem nið­ur­stöðu­tölur skatt­fram­tala ein­stak­linga væru opin­berar.

Rekstur sem skil­aði ekki neinum hagn­aði – enda rynnu þá allar tekjur í launa­greiðslur og í hin ýmsu önnur útgjöld – skil­aði engu að síður og ávallt skatti af virð­is­auka, af mis­mun sölu­and­virðis og aðfanga­virðis. Hreinn tap­rekstur nyti þá heldur engra frá­drátt­ar­liða, líkt og löngum hefur verið heim­ilt sam­kvæmt gild­andi skatta­lögum að draga má upp­safnað tap af rekstri margra ára frá hagn­aði ár eftir ár. Ábyrgð á tapi yrði því ekki lengur borin af hinu opin­bera heldur ein­ungis af rekstr­ar­að­il­unum sjálfum, enda væri hverskyns rekstur á for­sendum slíks opin­bers stuðn­ings sem fólg­inn er í skattaí­viln­unum úr sög­unni.

Ofur­hagn­aður og ofsa­gróði sem hvorki skil­aði sér í lægra verði vöru eða þjón­ustu né í bættum kjörum laun­þega, hvað þá heldur í eðli­legri fjár­muna­myndun, væri skýrt merki um ein­hvers konar fákeppni og ein­okun rekstrar, sam­ráð rekstr­ar­að­ila eða yfir höfuð merki um skort á allri heil­brigðri sam­keppni, og væri þó lík­ast til merki um allt þetta í senn. Hátekju­skattar myndu þá ein­ungis leiða til hærra verðs á vöru eða þjón­ustu, lak­ari kjara laun­þega eða enn minni eðli­legrar fjár­muna­mynd­unar, enda býður fákeppni og ein­okun ein­fald­lega upp á það að slíkum tekju­skatti sé smurt á flest annað en einmitt ofur­launin, ofur­tekj­urnar, svo að í engu er þá hróflað við eig­in­legu ráð­stöf­un­arfé hinna skatt­lögðu.

Svarið liggur því þvert á móti og ekki síst í ein­földun skatt­kerf­is­ins og ein­földun greiðslu- og launa­kerfa – ein­földun bók­halds – svo að mögu­leikar á mis­notkun kerf­anna séu sem minnstir. Að svo komnu máli reyn­ist aðhald neyt­enda, laun­þega­hreyf­ingar og opin­berra eft­ir­lits­að­ila mun skil­virkara en ella, sem og ekki síður aðhald sam­keppn­is­að­ila á mark­aði. Reynist það á hinn bóg­inn ekki duga til þá er það skýr vís­bend­ing um laga­lega galla eða lélega eft­ir­fylgni hegn­ing­ar­laga, laga um félög og firmu, laga um sam­keppni og sam­keppn­is­eft­ir­lit, fjár­mál og fjár­mála­eft­ir­lit, en ekki merki um vansköttun, enda ber ein­fald­lega að upp­ræta illa fengið fé, gera það upp­tækt að réttum lögum, en ekki að verð­launa ofur­laun með gervi­sköttum.

Bókhaldarinn

Luca Pacioli, sem fyrstur lýsti tví­hliða bók­haldi í rök­legu sam­hengi – og þá ekki síður hinni sið­ferði­legu hlið þess jafn­framt – hlýtur að vera búinn að snúa sér marg­sinnis í gröf sinni, ekki síst þennan tíma sem launa- og tekju­skatta­skrímslið hefur verið að hreiðra um sig í vel­ferð­ar­þjóð­fé­lögum okkar, þessi risa­eðla sem drottnar nú yfir jörð­inni, ekki síst merg­sjúg­andi hin van­þró­aðri riki á for­sendum þeirrar alröngu geng­is­skrán­ingar gjald­miðla sem bein­línis er afleið­ing af gervifé skrímsla­fræð­anna, gull­inu sem risa­eðlan er einmitt svo gráðug í. Hefur Luca Pacioli þó að lík­indum legið nokkuð rólegur í gröf sinni þessar aldir sem menn voru enn að móta og liðka hans ágætu reikni­vél til fulln­ustu, áður en þeir fóru að mis­nota vél­ina svo herfi­lega.

Brask­arar og fjár­glæfra­menn nær­ast á háu flækju­stigi engu síður en risa­eðlan sem elskar að éta sömu krón­urnar aftur og aftur, sleikj­andi út um yfir marg­þvegnum doll­urum á hlað­borði allsnægt­anna, sléttum og strauuðum jenum, pundum, evrum, sjúg­andi svo merg­inn úr júönum, rúp­íum, lírum, pesum, ríölum, rúblum og slotum, slít­andi sinar frá beinum í græðgi sinni fær eðlan samt aldrei yfir sig nóg. Þvotta­vélin mallar lát­laust og krefst sífellt fleiri þvotta­vél­ar­við­gerð­ar­manna til að halda sér við – við­skipta­fræð­inga, mark­aðs­fræð­inga, pen­inga­hag­fræð­inga, MBA í við­gerðum, Machine Business Administrators.

Því skyldi hið opin­bera ann­ars vera að kosta dýrt, margra ára háskóla­nám í fræðum sem eru þó svo ein­föld í sínu innsta eðli að hvaða góður gagn­fræð­ingur sem væri af bók­hald­braut myndi ein­fald­lega loka bók­inni – en ella neita að skrifa undir? Því skyldi það ann­ars hafa verið ein helsta málsvörn lög­giltra end­ur­skoð­enda í hrun­málum að klækirnir hefðu verið þeim kenndir í háskól­anum? Hvaða þörf höfum við fyrir her manna sem gegna því hlut­verki fyrst og fremst að finna smugur í frum­skógi skatta­laga og launa­kerfa og búa til frá­drætti og til­færslur, velt­andi krónum frá einu fyr­ir­tæki til ann­ars, laum­andi arði úr einni skúff­unni í aðra, búandi til papp­íra hér og papp­íra þar, papp­írs­fyr­ir­tæki, og svo gjarnan látið heita að allt sé undir hatti og regn­hlíf móð­ur­fyr­ir­tækis sem þó er lík­leg­ast að eng­inn viti nein almenni­leg deili á, ekki frekar en það væri skugg­inn af sjálfu sér, líkt og það sé meg­in­til­gangur rekstrar að verpa fyr­ir­tækjum líkt og hænur gul­leggjum, sem öllum ætti þó að vera ljóst að þær geta alls ekki?

Það tók aldir að vinda ofan af ægi flóknum ferlum him­in­tungl­anna sem reynd­ust þó ein­ungis vera manna­setn­ingar, hvað þá heldur að nokkrum tæk­ist að sanna að væru ferlar að vilja Guðs. Fáfræði leitar ávallt upp­hafn­ingar og tor­ræð­asta til­bún­ings – þ.e.a.s. fái hún undir sig vængi. Sé henni blásið nóg í brjóst þá bólgnar hún svaka­lega út líkt og einmitt risa­eðlan sem er þó svo sak­laus í sínu innsta eðli, eig­in­lega bara gælu­dýr sem við elskum að fá að kljást við á skjánum, jafn­vel að fara í sjó­mann við í draumum okkar og hug­ar­heimum, líkt og þegar Don Kíkóti barð­ist við sínar vind­myllur.

Og það er það sem hún einmitt er, risa­eðlan, okkar hug­ar­burður, og þó svo algjör til­bún­ingur að hún lifir raun­veru­lega á meðal vor, engu lík­ara en væri hún hluti af lög­mál­inu. Við fáum hvergi hönd á henni fest, frekar en rönd við reist, en samt er hún hér, gín­andi yfir okkur, segj­andi okkur fyrir verkum, skip­andi, gerðu þetta, gerðu hitt, hlýddu mér – og við hlýðum. Nákvæm­lega eins og þegar jörðin var í miðju alheims og allt skyldi hlýta vilja lög­giltra end­ur­skoð­enda Guðs.

Græna bókhaldið

Samkvæmt tvö­földu bók­haldi skal hver reikn­ings­færsla ávallt eiga sér sam­svörun í gagn­stæðri færslu ann­ars reikn­ings. Rekstr­ar­tekjur eins eru leiddar af rekstr­ar­gjöldum ann­ars, efna­hags­reikn­ingur er leiddur af rekstr­ar­reikn­ingi. Það er því svo, að hagn­aður eins eða tap er ávallt afleið­ing af tapi eða hagn­aði ann­ars.

Gjöld nátt­úr­unnar sem við heimtum af henni eru því tekjur okkar en það sem við látum henni í té til end­ur­gjalds fær­ist á hinn bóg­inn henni til tekna, vonum við, enda skyldu þær tekjur hennar svo mynda aftur nýjan arð, jarð­ar­gróða, okkur til handa – og þannig koll af kolli. Svo lengi sem ekki er ójafn­vægi í þessum við­skiptum þeim mun liðugar skyldu þau ganga.

Þegar allt kemur til alls þá felur nátt­úran í sér sitt eigið innra bók­hald – tekjur og gjöld, eign og skuld – í stuttu máli sagt, afskriftir og vexti. Hún er sífellu að afskrifa hluta af sjálfri sér, sem m.a. kemur fram í marg­vís­legri hrörnun og dauða, en jafn­framt myndar hún vöxt á móti, sem birt­ist í nýrri jarð­myndun og nýju lífi, sem ann­ars vegar fær­ist til gjalda í iðrum jarðar og hins vegar, þegar á allt er litið og flest er rakið til enda, í orku­búi sól­ar­innar, enda er það vissu­lega sólin sem af forða sínum greiðir mest alla vext­ina.

Algjör sjálfs­þurft­ar­sam­fé­lög jurta, dýra eða manna, sem taka litlum sem engum breyt­ingum til langs tíma litið, nema að því leyti að líf tekur við af dauða og dauði af lífi, þau lifa þá í jafn­vægi við nátt­úr­una, og má þá raunar segja að þau séu sam­gróin nátt­úr­unnar græna bók­haldi þar sem vissu­lega skipt­ast þó á skin og skúrir og sumt kann á köflum að lit­ast svart eða hvítt.

En ef gjöld eins skulu ávallt eiga sér sam­svörun í tekjum ann­ars, hver hagn­ast þá á afskriftum? Hvað nátt­úr­una varðar má segja að hvert nýtt líf hafi hagnað af erfðum sínum frá hinu dauða, hinu afskrif­aða – að því hlotn­ist vöxtur sinn að líf­fræði­legum og umhverf­is­legum erfðum, sem rót sína eiga sér sem sagt ekki síst í sól­ar­ljós­inu. Hvaða tekjur vega þá á móti afskriftum fast­eignar, bif­reiðar, hús­gagns eða mat­væla? Þær birt­ast í raun­inni í hagn­aði, hag þeirra sem hafa not af eign­unum eða fæð­unni. Fyrir notin gjalda þeir því vexti, leigur eða hverjar þær greiðslur sem nægja til við­halds, end­ur­nýj­unar eða bóta á því sem afskrif­ast af völdum notk­un­ar­innar. Beri eign á hinn bóg­inn engan arð, enga vexti, þá ein­fald­lega afskrif­ast hún og eyð­ist þar til að lokum að hún er að fullu töpuð. Afnotin end­ur­spegla þá ein­ungis hagnað þess sem neytir – svo lengi sem á nef­inu stendur – vexti sem í raun falla þá í skaut neyt­and­anum án end­ur­gjalds, en á hinn bóg­inn blasir þá vaxta­tap við eig­and­anum, sem gæti þó allt eins verið neyt­and­inn sjálfur sem hver annar. Aug­ljós­lega hljóta slíkar afskriftir án nokk­urs vaxtar á móti leiða af sér tor­tím­ingu.

Þegar öllu er á botn­inn hvolft þá snýst allur rekstur, hvort sem er ein­stak­linga, fyr­ir­tækja eða þjóð­fé­laga, um afskriftir og vexti. Því meiri sem afskrift­irnar eru, afföllin, sóunin, töpin, þeim mun hærri vaxta hljótum við að krefj­ast og í marg­breyti­legri myndum – að öðrum kosti stæðum við uppi að lokum slypp og snauð. Á hinn bóg­inn, þá því frekar sem við miðum að var­an­leika og þar með að sem hægustum afskriftum, m.ö.o. að bættri með­ferð og nýt­ingu orku og hrá­efna, ekki síður en mann­afls og allrar hugs­unar, þekk­ingar, þeim mun lægri verður vaxtakrafan – hagn­að­ar­krafan, arð­sem­is­krafan, launa­krafan, leigu­krafan, banka­krafan – án þess þó að við höfum nokk­urs misst í raun­veru­legum launum, tekjum, arði, leigum eða hvaða öðrum eðli­legum vöxtum sem er, heldur nýtum við ein­ungis jarð­ar­gróðan mun betur, upp­skerum þeim mun minni græðgi og falska gróða­von, skyldi mega ætla.

[adspot]Í raun­inni lýtur allt að afskriftum í einni eða annarri mynd, sumt reyndar svo að það afskrif­ast varla nema á millj­ónum eða millj­örðum ára. Mannanna verk eru þó fæst afskrifuð á lengri tíma en á um 10 til 100 árum, allt eftir því hve vel er vandað til þeirra, og eru þó dæmi um þús­unda ára gömul verk sem enn stand­ast fylli­lega tím­ans tönn. Öll þekk­ing okkar væri reyndar til einskis ef hún væri ekki í sífellu end­ur­nýjuð, ávöxtuð, með upp­eldi, þjálfun og kennslu, að öðrum kosti myndi hún með öllu afskrif­ast, glat­ast, á einum manns­aldri. Afskrift­ar­tími mat­væla er þó almennt miklum mun skemmri og eru þó fáar vörur háðar jafn marg­breyti­legu geymslu­þoli – allt eftir því hvaða aðferð er við­höfð við til­bún­ing mat­væl­anna, með­höndlun þeirra, vinnslu, dreif­ingu og geymslu, og þó ekki síður eftir því með hvaða hætti við nýtum mat­vælin og njótum þeirra, sem hvers ann­ars jarð­ar­gróða, hvort sem eitt­hvað áþreif­an­legt á í hlut eða það sem ekki verður í aska látið.

Því er það, hvort sem mat­væli eiga í hlut, hús­eign, bíll, þekk­ing, matur, gam­all róm­verskur vegur eða hin ýmsu súm­er­isku verk og bús­hlutir enn forn­ari, að afgjaldið, vext­irnir, sem við greiðum til mót­vægis afskrift­unum, helg­ast ekki síst af end­ingu, nýtni og nota­gildi verð­mæt­anna.

Öll okkar vinna, allt okkar starf og strit, snýst um það eitt að skapa vöxt til mót­vægis afskriftum. Væru afskriftir engar þá væri himna­ríki á jörð – alla­vega eins og lög­giltir end­ur­skoð­endur Guðs hafa skýrt það ríki fyrir okkur um aldir, þús­öldum saman. Allt sem eyð­ist, allt sem af er tekið, krefst end­ur­nýj­unar og bóta, að öðrum kosti blasir örbyrgð ein við og skyldum við þó varla afskrifa leið­ina til himna­ríkis. En þeim mun minna sem eyðir mölur og ryð, þeim mun létt­ari verður starf­inn.

Heimsbókhaldið

Munum við þá bara fá hálft tonn af buxum fyrir einnar viku vinnu verk­fræð­ings ef öll þessi nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöld verða lögð á og tekju­skattar afnumdir?

Já, reyndar, nokkurn veg­inn, afar gróft á litið, kannski þó því minna þegar frá líður. En höfum þá í huga að hinn helm­ing­inn, hitt hálfa tonnið, munu fram­leiðslu­ríkin einmitt geta nýtt sjálfum sér í hag. Þeim mun færri þurfa þá að ganga um í gat­slitnum buxum og fengju ríkin þó engu að síður verk­fræði­vinn­una óskerta í sinn hlut, sem sagt sem næst óskatt­lagða af okkur.

Höfum þá jafn­framt í huga, að ekki ein­ungis mun verk­fræð­ings­vinnan lækka í verði gagn­vart útflutn­ingi heldur ekki síður á okkar eigin innri mark­aði, sem og einnig vinna lög­ræð­inga, lækna og presta ekki síður en hag­fræð­inga, end­ur­skoð­enda, mark­aðs­fræð­inga, versl­un­ar­manna, fata­hönn­uða og þeirra sem vinna að sauma­skap jafnt sem við smíðar og við­gerðir, t.d. við smíði, sam­setn­ingar eða við­gerðir á sauma­vélum. Innlend buxna­fram­leiðsla ætti þá vissu­lega meiri mögu­leika en ekki síður við­gerðir á buxum sem öðrum fatn­aði. Buxna­sala í heild, sem og sala ann­ars fatn­aðar, myndi því drag­ast saman sökum betri nýt­ingar – við myndum sem sagt afskrifa fatnað á lengri tíma og upp­skera vext­ina í bættri nýt­ingu launa, enda mun þá flest það sem ekki felur í sér drjúgan efn­is­kostnað lækka þeim mun meira í verði.

Að því gefnu að gjöld fyrir not af nátt­úr­unni yrðu hin almenna regla víð­ast hvar á jörð en tekju­skattar und­an­tekn­ing, þá gefur auga­leið að launa­kostn­aður myndi drag­ast saman sem hlut­fall af virði heims­fram­leiðslu, og þá því frekar þar sem tekju­skattar hafa vegið drjúgt – að alls óhögg­uðum kaup­mætti, jafn­að­ar­virði ráð­stöf­un­ar­tekna laun­þega jafnt sem fjár­magns­eig­enda. Andvirði orku og hrá­efna myndi á sam­svar­andi máta vaxa sem gagn­stætt hlut­fall af heild, enda kemur manns­höndin þeim mun minna að vinnslu hrá­efna og hrá­vöru á okkar dögum sem hún er orðin vél­rænni á flestum sviðum og orku háð ekki síður en umhverf­inu.

Verð á flestri hrá­vöru er háð heims­mark­aðs­verði – and­stætt við flest almenn vinnu­laun í heim­inum – en þrátt fyrir mun minni eft­ir­spurn af okkar hálfu, vegna bættrar nýt­ingar á flestum sviðum og þar af leið­andi lengri afskrifta flestra hluta, þá mun orku­frek frum­fram­leiðsla ekki lækka í verði, enda myndu nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöldin einmitt vega á móti lækkun launa og fjár­magnstekna í þeim geira af völdum afnáms tekju­skatta, sér­stak­lega í hágjalda­ríkjum. Engu að síður, og af nákvæm­lega sömu völdum, vegna afnáms tekju­skatt­anna, mun öll spar­neytin úrvinnsla hrá­efn­anna lækka í verði sem og lítt orku­frek dreif­ing unn­innar vöru og þá ekki síst öll mark­aðsum­sjón og smá­sölu­þjón­usta.

Þrátt fyrir minni eft­ir­spurn af hálfu okkar Vest­ur­landa­manna þá myndi heims­fram­leiðsla síður en svo drag­ast saman, enda myndi þörf lág­launa­ríkj­anna aukast að sama skapi. Útflutn­ingur þeirra á fram­leiðslu­vörum til okkar myndi sann­ar­lega drag­ast veru­lega saman en fram­leiðsla þeirra í heild alls ekki. Andvirði hvers árs­verks verk­fræð­ings sem þau keyptu af okkur væri á hinn bóg­inn orðið þeim miklu verð­mæt­ara og þeim mun meiri mögu­leikar væru þá á að laga alla fram­leiðslu­tækni, orku- og hrá­efna­nýt­ingu, að grænu bók­haldi – einmitt af völdum hvatans til sparn­aðar sem nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöld, að þeim inn­leiddum, myndu leiða til. Tekj­urnar af gjöld­unum myndu þá ekki síst nýt­ast þeim til vel­ferð­ar­sköp­unar – og þá þar á meðal, svo sem gefur að skilja, til kennslu í verk­fræði.

Sam­dráttur í útflutn­ingi fram­leiðslu­varn­ings mun þá falla lággjalda­ríkj­unum sjálfum í skaut, án þess þó að þau missi nokk­urs í útflutn­ings­tekjum (sama verk­fræð­ings­vinnan óbreytt til end­ur­gjalds hverju útfluttu hálfu tonni, söm og jöfn sem áður af heilu tonni), og einmitt koma vinnu­afl­inu – sem jafn­framt eru neyt­endur – til góða í bættum kjörum. Hafi laun í lággjalda­ríki numið and­virði einnar buxna­skálmar fyrir ein­hverja til­tekna vinnu- eða tíma­ein­ingu, þá myndu þau að minnsta kosti hækka sem næmi virði hinnar skálm­ar­innar – launin næmu þá sem sé heilum buxum en ekki bara hálfum.

Greiðslu­geta neyt­enda í lággjalda­rík­unum myndi með öðrum orðum aukast – eft­ir­spurn eftir vöru og þjón­ustu héld­ist því í hendur við aukið fram­boð allra hálfu tonn­ana sem þá nýtt­ust á inn­an­lands­mark­aði þeirra, en ekki líkt og nú, að heilu tonn­unum er nær ein­vörð­ungu skipt á milli okkar, á okkar innri mark­aði. Verðlag í lággjalda­ríkj­unum myndi vissu­lega frekar stíga á mjög orku­frekum sviðum í kjöl­far álagn­ingar nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjalda, enda væri á þeim sviðum minni afléttum tekju­sköttum til að dreifa til mòt­vægis líkt og hjá okkur, og vega fyr­ir­tækja­skattar þó vafa­laust drjúgt á köflum. Kaup­máttur, raun­virði ráð­stöf­un­ar­tekna launa, myndi á hinn bóg­inn aukast á flestum öðrum sviðum, og þá ekki ein­vörð­ungu í hlufall­inu heilar buxur mót hálfum eða þaðan af meira, heldur einnig vegna auk­ins kaup­máttar gagn­vart seldri vinnu og marg­vís­legri vöru og þjón­ustu, af völdum afnáms tekju­skatta og þess gervi­fjár sem þó er fyrir hendi, þó að minna vægi hafi en í ríkjum okkar. Þar mun þá vega þyngst afnám skatta af létt­iðn­aði, af allri opin­berri þjón­ustu, af almennri sölu á vöru og þjón­ustu og af vax­andi milli­stétt og hástétt, þá ekki síst í nýmark­aðs­ríkjum.

Almennt verð­lag og kaup­lag í hágjalda­ríkj­unum myndi á hinn bóg­inn hníga veru­lega með afnámi ofur­skatt­anna og gervi­fjár­víxl­verk­un­ar­innar, án þess þó að kaup­mætti ráð­stöfn­un­ar­tekna launa í heild væri haggað – yrði kaup­mátt­ur­inn raunar hærri á flestum sviðum þjón­ustu og lágorku­fram­leiðslu en minni fyrst og fremst á orku­frek­ustu sviðum, sem og alls staðar. Verðlag jafnt sem kaup­lag í heim­inum myndi með öðrum orðum leita jafn­vægis og virði vöru og þjón­ustu jafn­ast til muna eftir löndum og geng­is­vísi­tölur gjald­miðla þá sýna æ rétt­ari vog.

Heims­við­skipti myndu mót­ast æ meira af skiptum á þekk­ingu og þjón­ustu enda er flutn­ings­kostn­að­ur­inn þeim mun minni sem kostn­að­ur­inn er meiri af hinum þung­lama­legri og meira meng­andi flutn­ingi. Marg­vís­leg mengun væri vissu­lega heimil, í lofti, láði sem á legi, enda væru boð og bönn sjaldn­ast nauð­syn­leg, en því meiri mengun sem staf­aði af flutn­ingum jafnt sem öðru, innan sem utan efna­hags­lög­sögu ríkja, þeim mun hærri gjöld rynnu til hins opin­bera, enda kæmu ríki sér saman um skipt­ingu meng­un­ar­gjalda af utan­lög­sögu­starf­semi. Ríki sem neit­uðu slíku sam­starfi myndu vænt­an­lega vera úti­lokuð frá mörk­uðum.

[adspot]Flutn­ings­að­ilar jafnt sem aðrir sem ekki gættu að ýtr­ustu meng­un­ar­vörnum, myndu raunar að sjálf­gefnu úti­loka sig frá sam­keppni og þar með frá öllum mörk­uðum, enda myndu þá meng­un­ar­gjöld sem önnur nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöld bera starf­semi þeirra ofur­liði. Fram­leiðni, hvort sem er á sviði flutn­inga eða hvers sem er ann­ars, sem ekki veldur því að gjalda til baka notin af nátt­úr­unni – er ein­fald­lega óarð­bær. Gildir þá einu hve vand­lega bók­haldið er þvegið, fægt og fag­ur­bónað.

Bók­halds­lykl­arnir tíu eru verk­færi sem hvert ein­asta ríki getur nýtt sér sem vog­ar­skálar raun­veru­legrar fram­leiðni, ein­ungis myndi inn­byrðis vægi skál­anna vera breyti­legt eftir löndum. Ríki sem eru fátæk að grænni orku hlytu þá að afla þeim mun meiri tekna af kolefn­is­gjöldum en eftir því minni tekna af hreinum orku­nýt­ing­ar­gjöldum – eða á hinn bóg­inn öfugt, líkt og hér. Á sam­svar­andi máta myndi vægi hinna ýmsu umhverfis- og auð­linda­gjalda vera mis­mun­andi eftir löndum, allt eftir því hve rík eða fátæk þau eru að nátt­úru­auði og allt eftir því hvers eðlis auð­ur­inn er. Er varla nokk­urt ríki þó svo ósnortið af nátt­úr­u­nýt­ingu að ekki kæmu til hin ýmsu umhverf­is­gjöld til mót­vægis not­unum. Gjöld af fast­eignum á hjólum – veggjöld - væru alla­vega nota­drjúg tekju­lind víð­ast hvar, auk hinna sígildu fast­eigna­gjalda.

Þrátt fyrir vax­andi fram­leiðslu í heim­inum, þrátt fyrir sam­drátt neyslu Vest­ur­landa­búa en þeim mun meiri neyslu íbúa þró­un­ar­ríkj­anna, þá myndu nátt­úr­u­nýt­ing­ar­gjöld samt leiða til slíkrar hag­kvæmni rekstrar sam­kvæmt grænu bók­haldi, að mengun í heild myndi minnka. Fram­leiðslu- og þjón­ustu­stig þró­un­ar­ríkj­anna færi vissu­lega vax­andi um hríð en betri nýt­ing á flestum stigum, vax­andi virð­ing fyrir jarð­ar­gróð­anum, myndi á hinn bóg­inn leiða til hæg­ari afskrifta á flestum sviðum, hvar sem væri. Vextir til mót­vægis víxl­verkun skatta og sýnd­ar­við­skiptum gervi­fjár myndu því lækka og nálg­ast æ meira virði eig­in­legra raun­vaxta, sem væru þá þeim mun lægri sem hag­nýt­ing gróð­ans væri betri, afskriftir hæg­ari.

Hvert er þá málið? Eru ekki vextir einmitt lágir í flestum vel­ferð­ar­ríkjum, jafn­vel svo að liggja sem næst núlli nú um stundir í hinum best meg­andi ríkjum? Sann­ar­lega, en þá ræðir ein­ungis um við­ur­kennda vexti í við­ur­kenndum við­skiptum, einmitt þar sem MBA-við­gerðir koma mest við sögu, en ekki um vext­ina sem við greiðum til mót­vægis marg­föld­un­ar­á­hrifum skatt­anna, afföll­unum af völdum atvinnu­leysis og afleiddri örorku, af völdum æ ein­hæf­ari vinnu og vél­rænni sam­skipta, af völdum æ vél­rænni til­veru æ fleiri. Í stuttu máli sagt, af völdum æ hrað­ari afskrifta mann­afls jafnt sem raunar flestra hluta, reyndar alveg í öfugu hlut­falli við ævi­líkur. Það þarf þó ekki að koma neinum á óvart, enda er heil­brigð­is­þjón­usta nán­ast eina gilda atvinnu­greinin þar sem flest mark­mið og meg­in­á­herslur hafa miðað að sem lengstum afskriftum – sem sé að sem lengstri ævi – en þó þegar allt kemur til alls á kostnað æ hraðri afskrifta, lélegrar end­ingar, lélegrar nýtni mest alls hins jarð­ar­gróð­ans.

Heimilisbókhaldið

Glíma van­þró­uðu ríkj­anna er nokkuð ann­ars eðlis en okkar þó að sumt sé vissu­lega nokkuð kunn­ug­legt í þeim hágjalda­ríkjum sem ekki hafa náð fullum tökum á mark­aðs- og vel­ferð­ar­við­gerðum – t.d. tveggja stafa stýri­vaxta­tölur og efna­hags­legar dýfur sem einatt má reikna með að fái þriðj­ung eða fjórð­ung lands­manna til að súpa hveljur um hríð.

Drjúgur hluti rík­is­borg­ara lifir gjarnan utan hins form­lega hag­kerfis, ýmist baslar í bæjum og þorpum í hinum afskekkt­ari hér­uðum og sveitum eða hokrar við sjálfs­þurft­ar­bú­skap, eða á hinn bóg­inn við alls kyns brask og basl í fátækra­hverfum stór­borg­anna, og kunna þó ýmsir að vera rót­lausir með sinn fót­inn í hvorum heimi. Fjöldinn allur kemur varla við sögu í hag­skýrslum verst stöddu ríkj­anna, skýrslum um vinnu­markað, um vinn­andi og atvinnu­lausa, né þá í örorku­skýrslum, frekar en að mjög margir íþyngi þá þeim sem halda skóla­skrár og sjúkra­skrár. Engu að síður vegur fjöld­inn allur drjúgt í mann­tals­skýrslum þó að vissu­lega þeim mun skemur ýmsir séu þar með á blaði, sem leiðir beint af dán­ar­líkum kvörð­uðum á vel­ferð­ar­skala. Heim­il­is­bók­hald flestra þess­ara hálf­gerðu utan­rík­is­borg­ara myndi vera kallað svart á vest­ræna vísu þó að helgist ein­ungis af sjálfs­bjarg­ar­við­leytni hvers og eins og er það þó sjaldn­ast svart­ara en svo að undan nokkrum sköttum sé yfir­leitt að svíkj­ast, að telja megi, hvort eð er.

Samt er komið raf­magn næstum því alls staðar og fáar sveitir eru svo afskekktar eða svo illa fyrir komið fátækra­hverfi að ekki sé sjón­varp og net í ein­hverri mynd. Það er því ekki ólík­legt að börn drekki í sig líf Kar­dashian‎-fjöl­skyld­unnar með móð­ur­mjólk­inni og hangi svo frekar inni á spjall­rás um sprengju­tækni á ung­lings­árum en að fram­halds­skóli eða vinna sé í boði, eða á hinn bóg­inn að þeir taki frekar þann slag að skjót­ast sem hæst upp á fót­bolta­stjörnu­him­in­inn. Enski bolt­inn hefur þá kannski kryddað barn­dóms­árin og fyr­ir­mynd­ar­líf Beckham-fjöl­skyld­unnar heillað ung­ling­inn meira en allt baslið og barasta draumar um brota­járns­brask.

Líkurnar á að sprengj­urnar bæti til­veru þeirra eru þó harla minni en engar, og varla heldur meiri lík­urnar í fót­bolt­anum en einn á móti hund­rað þús­und, að verði atvinnu­knatt­spyrnu­menn, eða milljón að þeir verði það á heims­vísu, þó kannski einn á móti hund­rað eða þús­und, að geti brauð­fætt sig í fram­tíð­inni sem ung­linga­þjálf­arar. Herinn mun þó yfir­leitt taka flestum opnum örmum sem nýta vilja þjálfun sína sem fót­göngu­liðar, jafn­vel að ung­liðum sé þá gefin von um lið­þjálfa­tign er fram líði stundir. Laun lang­flestra eru afar víða mjög lág en hástétt­ar­innar þeim mun miklu hærri og stétta­skipt­ing og verka­skipt­ing reyndar sums staðar slík að jafna má til léns­skipu­lags – eru óðulin þá lík­ast til þó fremur löguð að ein­hvers slags iðn­skipu­lagi, ein­hvers konar mjólk­urkú okkar, en að eig­in­legum land­bún­aði sem höf­uð­léni.

[adspot]Það er á hinn bóg­inn ein­kenni nýmark­aðs­ríkja að til verður mið­stétt sem jafnar nokkuð metin. Þriðj­ungur lands­manna kann þá að búa á svæðum þar sem flétt­ast saman stór­borgir og stór­bú­skapur við þróuð iðn­að­ar­svæði og líta má til sam­ans á sem ríki í rík­inu er jafn­vel bjóði kjör er líkja megi við sumt það sem sæmi­legt vel­ferð­ar­ríki kann að bjóða, enda skástu laun þá einmitt orðin skatt­ber­andi og breiðu bökin all­fleiri. Þriðj­ungur þjóðar kann þá að búa enn við baslið og sjálfs­þurft­ar­bú­skap­inn í hinum fjar­læg­ari eða afskekkt­ari hér­uðum og sveitum, og er hann þó í beinum tengslum við borg­ar­lífs­menn­ing­una – einmitt fyrir til­stuðlan sjón­varps og nets, og þó ekki síður, þegar allt kemur til alls, vegna náinna tengsla, oft­ast sterkra sveitar- eða fjöl­skyldu­tengsla, við far­and­verka­fólkið sem myndar þá einmitt hinn síð­asta þriðj­ung þjóðar, afar gróft á litið. Með hálfan hug­ann heima í sveit­inni, litla bænum eða þorp­inu, leitar far­and­verka­fólkið að fót­festu í borg­inni, rót­laust eins og þangið, þó alandi örlitla von í brjósti um að fá ein­hvern tím­ann snúið aftur heim en ekki bara í stop­ulum fríum eða í lif­andi skjá­mynd í far­sím­anum.

Tengsla­netin eru marg­slungin og gegna þó í sínu innsta eðli líku hlut­verki og marg­miðl­unin sem tengdi saman sveitir, þorp, bæi og borgir iðn­bylt­ing­ar­innar á Vest­ur­löndum. Og nú sem fyrr eru far­and­verka­menn­irnir fót­göngu­liðar bylt­ing­ar­innar. Sjónvarp, far­símar, tölvur og net hafa vissu­lega leyst að mestu af hólmi tíma­rit, dag­blöð, sendi­bréf og dreifi­bréf, sem voru helstu miðl­arnir í árdaga bylt­ing­ar­innar, áður en land­sími var svo loks lagður, inter­net síns tíma, rit­sím­inn sem svo umbreytt­ist í tal­síma um það bil sem reglu­legt útvarp hófst og kvik­mynda­gerð, sem krist­all­að­ist síðan saman í sjón­varpi. Með hug­bún­aðar- og net­bylt­ing­unni hafn­aði svo allt saman að lokum í einni sæng – og til varð marg­miðlun nútím­ans.

Bylt­ingin er síkvik og hefur fyrir löngu breiðst út um allar jarðir. Her fót­göngu­lið­anna, sem lagði af stað úr sveitum Englands, Skotlands og Wales undir lok 18. aldar, tekur sífellt á sig nýjar og marg­breyti­legri myndir, í hverju land­inu eftir annað, frá einum tíma til ann­ars. Ávallt á her­inn það þó sam­merkt, hver sem hann er, hvar sem hann er á hverjum tíma, hvar sem hann skýtur rótum, að hann krefst að lokum mála síns – sömu vel­ferðar og allir hinir – alls þess sem marg­miðl­unin á öllum tímum hefur einmitt upp­lýst hann um.

Ella er ekki von á góðu, vofa þá yfir borg­ara­styrj­aldir, átök milli ríkja eða ein­hvers slags heims­stríð. Er þó sjaldn­ast neitt minna í gangi en harð­vít­ugar deilur – og næstum alltaf með ein­hvers konar yfir­bragði trú­ar­bragða­deilna, sem á öllum tímum eru þó ekk­ert annað í sínu innsta eðli en við­skipta­stríð, heilög bar­áttan um brauðið.

Og nú sem jarð­ar­búar eru óðum að verða 8 millj­arðar tals­ins – nú þegar miðl­unin er orðin svo miklu fjöl­þætt­ari, öfl­ugri, hrað­virk­ari og útbreidd­ari en nokkru sinni fyrr – gæti mis­skipt­ingin verið aug­ljós­ari? Eru þá reyndar ótaldir nær 2 millj­arðar sem munu bæt­ast í hóp okkar á allra næsta ald­ar­fjórð­ungi – sem fyrst og fremst munu þó upp vaxa í óróa­sömum þró­un­ar­lönd­unum. Og hvers mun þá verða að vænta?

Vandi okkar er því ærinn, enda er bein­línis veru­legur skortur á vel­ferð yfir­vof­andi – að öllu óbreyttu – sem harð­ast mun þá lenda á hverjum? Það hefur bein­línis verið gefið út – og er dag­skipun beint frá París, stimpluð í flestum höf­uð­borgum heims – að við skulum herða orku­ól­ina. Vandinn krist­all­ast svo í því að við Vest­ur­landa­búar, sem til jafn­aðar sitjum að lang­mestri vel­ferð allra jarð­ar­búa, gerum ekki grein­ar­mun á vel­ferð og orku. Að herða orku­ól­ina hljóti því að vera sama og að herða sjálfa sultar­ól­ina, sama og alls eng­inn hag­vöxtur – bara ávísun á enda­laust strit og jafn­vel vel­ferð­ar­missi! Að hugur okkar og heili hafi jafn­vel verið svo ræki­lega þveg­inn, að skol­ast hafi út allur auð­særri skiln­ingur?

Herragarðurinn

Downton Abbey lýsir því af mik­illi fágun hve and­stæð­urnar voru enn býsna miklar fyrir öld – hér um slóðir – þó þær væru þá engu lengur líkar him­in­hróp­andi mót­sögn­unum er Jeppi á Fjalli upp­lifði á sinni löngu liðnu tíð í leik­riti sínu sem var skrifað á tíma upp­lýs­ing­ar­innar á Vest­ur­löndum, á tíma hins upp­lýsta ein­veldis, áður en róm­an­tíkin tók völdin og iðn­bylt­ingin. Leiðin milli aðals og und­ir­sáta gat þá samt sem áður verið svo skömm að draumur gat orðið að veru­leika eina dag­stund þó að engin væri marg­miðl­unin, hokrandi leigu­lið­inn á herra­garð­inum segj­andi fyrir verkum sem væri hann þá bar­ón­inn sjálfur, skip­andi fyrir á óðals­setr­inu, gerðu þetta, gerðu hitt, hlýddu mér – en bar­ón­inn naut þess ósegj­an­lega að lát­ast sem hann í geggj­uðum draumi honum hlýddi. Þegar allt kom til alls var þetta ein­ungis sjón­ar­spil, þess tíma dægradvöl aðals­ins, þess tíma Downton Abbey, sem bar­ón­inn dró þó afar stóran lær­dóm af:

Af litlu ævin­týri má oft lær­dóm stóran draga:

látum aldrei stjórn og völd í hendur múga­manns.

Honum er það ekki í blóð borið í háu að sitja sæti

að sinna kvik­fén­aði og draga plóg er eðli hans.

(Úr Lokasöng Baróns – Holberg, Megas)

Ef við á hinn bóg­inn, fyrir seiglu okkar og harð­fylgi, erum einmitt sá gamli Jeppi sem þrátt fyrir allt fékk loks stjórn­ina og völdin í sínar hendur – fyrir alda­langa bar­áttu, blóð, svita og strit – erum við þá ekki einmitt sá barón sem nú í háu sæti situr á herra­garð­inum Jörð? Og hver er þá sá múga­maður sem nú dregur plóg­inn? Bóndinn að plægja fyrir bómull­arplöntum í Bangla­desh? Nilla þá að sauma herr­anum baðmull­ar­buxur í borg­inni? Nema að Jeppi gamli fyrir seiglu sína leiki nú kvik­fjár­hirði í Downton Abbey? Jafnvel að fyrir harð­fylgi sitt sé orð­inn herr­ans stofu­þjónn – eða bryti? Nilla þá Joanne Froggatt eða Phyllis Logan? Eða jafn­vel sjálf Elizabeth McGovern holdi klædd?

Óðalið sjálft telur ein­ungis um fimmt­ung eða sjött­ung allra íbúa herra­garðs­ins en ræður beint og óbeint yfir öfugu hlut­falli flestra auð­linda víð­áttu­mik­illa skatt­lend­anna. Það stýrir hönnun og gerð flestra hluta á jörð, fer með fram­leiðslu­stjórn í flestum greinum og setur mark­aðs­setn­ingu afurð­anna skýr vel­ferð­ar­mark­mið svo að óðals­búar geti vel við unað. Baróninn stýrir lofts­lags­ráð­stefnum í frí­stundum sínum frá klúbbnum, skil­greinir þá höf­uð­mark­miðin, sem snú­ast nú um að bægja frá lofts­lagsvá sem steðjar að herra­garð­inum af völdum fram­leiðslu­meng­unar.

Meng­un­ina á markað! hljómar um sali – kjör­orð sem auð­fræð­ingar bar­óns hafa hannað handa ridd­urum hring­borðs­ins. Fram­leiðslu­af­urðir okkar eru tvenns konar, útskýra hinir frómu fræð­ingar fyrir ráð­stefnu­gestum – ann­ars vegar sú afurð sem við viljum kaupa og hins vegar meng­unin sem fæstir vilja en gleypa samt við, enda stæði þeim ella engin afurð til boða. Hvort tveggja er því mark­aðs­af­urð sem ber þar af leið­andi að meta til fjár!

Því skyldum við þá hefta frelsi þess til athafna er vill og getur? spyr bar­ón­inn hring­borðið fagn­andi. Hér fengum við dæmið sem hrópar skýr­ast til vor. Fyrst almúg­inn vill ekki kaupa meng­un­ina því skyldu athafna­menn­irnir þá ekki fá að versla með hana sín á milli á sínum einka­mark­aði?

Eftir dynj­andi lófa­klapp dettur allt í dúna­logn þegar Nilla sprettur upp eins og fjöður og þrumar yfir borðið með vönd sinn á lofti:

Því skyldi þeim hlotn­ast meng­unin á silf­ur­fati til að manga með og hirða af henni gróða? En allur almúgi gjaldi þá skuld­ar­innar og heim­ur­inn skað­ans af athöfnum þess­ara umhverf­is­sóða!

Baróninn er stokk­inn af stað að gagn­stæðum hluta borðs­ins og hljóðar á móti yfir öxl sér, hop­andi undan á hlaupum með­fram borð­inu:

Vér sem með­fædda höfum siði og fágun megum hafa fyrir lýðnum vit og jafn­vel tugta hann ofur­lítið og aga. Því skyldi ekki lýð­ur­inn gjalda þeim sem gjalda ber fyrir allan sinn vel­ferð­ar­gróða? Varla skyldum vér fara að greiða skatta og gjöld, kona?

Nilla dregur sífellt á hann en nokkrir auð­fræð­ingar hafa sprottið á fætur og hlaupa með skjald­borg slegna um bar­ón­inn hring eftir hring honum til varnar kringum borðið, svellandi móður undan vendi Nillu og snuprandi rómi:

Ef rúm er fyrir verslun með mengun á mark­aði, Jeppi barón, þá er það ekki ein­ungis merki um að opin­ber meng­un­ar­gjöld séu alltof lág og öll litlu gjöldin fyrir notin af nátt­úr­unni, heldur ekki síst merki um óheil­brigða sam­keppni, Jeppinn þinn – ein­okun og fákeppni sér­út­val­inna mark­aðs­sóða sem hlotn­ast að gjöf fyrir subbu­skap sinn eign­ar­réttur og einka­réttur á mengun. Því skyldi ann­ars þeim öðl­ast réttur til meng­un­ar­gróða, þeim sem einmitt verst hafa gengið um auð­lind­irnar?

[adspot]Þú vilt skatt­heimtu! hrópar auð­fræð­ingur upp yfir sig. Rústa öllu sem við höfum byggt upp! hrópar annar ákaf­lega. Brjóta niður sjáv­ar­út­veg­inn, land­bún­að­inn, iðju­verin, gagna­verin! hljóðar mark­aðsvið­gerð­ar­maður upp yfir sig sem hann stekkur inn í skjald­borg­ina miðja og reynir árang­urs­laust að ná vend­inum af Nillu. Brjóta okkur öll niður, svipta okkur hag­sæld­inni og allri vel­megan! æpir vel­ferð­ar­við­gerð­ar­maður og hoppar á eftir félaga sínum inn í skjöldum prýdda hring­iðuna. Svipta okkur sann­leik­anum, öllu rétt­mæti okkar, nornin þín, það er það sem þú vilt! hvæsir aðal­auð­fræð­ing­ur­inn örvænt­ing­ar­fullur að Nillu. Ná heims­yf­ir­ráðum – brjóta niður Google, brenna Amazon, rústa Microsoft, mauka Apple, kippa öllum fótum undan Facebook og Twitter, lama öll gagna­verin okkar, skrúfa alveg fyrir Netflix, það er það sem þú hefur í hyggju, skað­ræð­is­skepnan þín! botnar aðstoð­ar­auð­fræð­ingur hans him­in­hróp­andi röddu.

Hring­borðið er að leys­ast upp í sam­felldan, stríðan, iðandi straum þar sem hver eltir skottið á öðrum hring eftir hring kringum ráð­stefnu­borðið í inni­legri við­leytni sinni til að reyna að skilja af hverju sal­ur­inn logar nú allt í einu í auð­fræði­legum deilum. Var ekki ann­ars hug­myndin að ræða loft­lags­vána? Hvað eru þessir sér­fræð­ingar þá eig­in­lega að fara? Réttmæti hvað? Réttmæti skatt­heimtu? Sann­leikur hvað? Sann­leikur um sjáv­ar­út­veg, land­bún­að­inn, iðju­verin, gagna­verin? Allt í fári hjá Google? Jesús minn almátt­ugur! Og Amazon, Apple, Microsoft og líka Facebook? Og Twitter! Netflix!

Gagnaver hvað? Var bar­ón­inn að dreyma? Sofnaði hann undir ræðum? Hvílík martröð! En að bjóða upp á alla græna orku ókeypis? Gætu þá ekki allir hætt að menga og allir sætu sáttir á sárs­höfði? Væri það ekki þarft inn­legg í umræð­una?

Þau ganga snöggvast út í kvöld­verð­ar­hléinu og teyga að sér rökk­ur­sval­ann, Akra­fjall og Skarðs­heiði eins og djúp­bláir draumar í haust­húm­inu. Yfir Esjunni grúfir þung­búið ský eins og risa eðla að búa sig undir mið­næt­ur­lúr­inn sinn. Væri það ekki ann­ars gott efni í erindið eftir hlé? Blað­laust og inn­lifað, svona fag­ur­græn upp­ljómun, alveg iðja­grænn draumur í skýjum?

Það er víst verið að sýna Downton Abbey í bíó, segir Nilla þegar þau ganga inn til að setj­ast að borðum. Framhald af ser­í­unum, Georg og María spila núna stóra rullu. Gætum við ekki farið á morgun, elskan? Gætum tekið ung­linga­skinnin með, höfum ekki séð þau svo lengi. Hefðir gott af því, væni, að taka smá stund­ar­hlé. Þú varst sífellt að dotta undir spjall­borð­inu áðan.

Höfundur hefur áhuga á auð­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár