Hógvær frásögn sem varðar líf – í nafni móður Jarðar

Leik­list­ar­gagn­rýn­andi Kjarnans skrifar um gjörn­ing Andra Snæs Magna­sonar í Borg­ar­leik­hús­inu.

Borgarleikhúsið: Um tímann og vatnið

Höfundur: Andri Snær Magnason

Flytj­endur: Andri Snær Magnason, Högni Egilsson, Skólakór Kárs­nes­skóla

Það er óneit­an­lega athygl­is­vert að ganga inn í stóra sal Borg­ar­leik­húss­ins þegar leik­húsið býður til kvöld­stundar með lista­manni – sem að þessu sinni er Andri Snær Magnason rit­höf­undur sem flytur frá­sögn sína um tím­ann og vatnið ásamt tón­list­ar­mann­inum Högna Egils­syni og svo er loka­hljómur í blá­end­ann fram bor­inn af Skólakór Kárs­nes­skóla til að minna á að erindið er ekki síst ætlað ungu kyn­slóð­inni, þeirri sem erfa skal landið, já, jörð­ina alla, lofts­lagið og vist­kerfið.

Athygl­is­vert vegna þess að und­ir­rit­aður hefur sjaldan séð jafn eins­leitan áhorf­enda­sk­ara í leik­húsi, jafn “land­vernd­ar­legt” públíkúm ef svo má að orði kom­ast – þetta ekki sagt til að gera minna úr við­burð­inum, öðru nær, en áhorf­enda­hóp­ur­inn var ein­fald­lega ákaf­lega eins­leitur og þótt það kunni að virka dálítið fyndið, er það engu að síður áhyggju­efni þegar að er gætt. Andra Snæ þarf vart að kynna þjóð­inni – hann hefur skrifað ljóð og bækur, jafnt fyrir börn sem full­orðna, og ein bók einkum gerði nafn hans frægt víðar en bara á Íslandi: Drauma­landið, en í þeirri bók skoð­aði hann afdrif Kár­an­hnjúka þegar virkj­unin við þá kennda var byggð og öræfin norðan Vatna­jök­uls munu aldrei verða söm á eftir. Þar tók hann sér stöðu svo um mun­aði í umhverf­is­mál­unum.

[adspot]Við­brögðin við bók­inni Drauma­landið vörp­uðu líka ljósi á að á Íslandi búa tvær þjóðir – ein, sem telur sjálf­sagt að virkja og lítur á það sem hluta af veg­ferð­inni til fram­fara og fram­tíðar, og svo er önnur þjóð, sem telur að nátt­úran eigi að njóta vafans og að virkj­anir séu óaft­ur­kræf nátt­úru­spjöll. Áhorf­endur Borg­ar­leik­húss þetta kvöld voru full­trúar þeirrar þjóðar.

Það er þess vegna áhyggju­efni, miðað við til­gang og mark­mið Andra Snæs, að áhorf­enda­hóp­ur­inn virð­ist ein­göngu heyra til þessum seinni hóp; þeim sem þegar eru sann­færðir í trúnni og hafa komið í Borg­ar­leik­húsið til að hlýða á boð­skap síns erki­bisk­ups. Andra Snæ er áreið­an­lega í mun að gefa hinum þegar sann­færðu and­lega styrk­ingu, efla þá í þeirri vissu að ef ekk­ert verður að gert varð­andi lofts­lags­vána stefnir óhjá­kvæmi­lega í óefni – en mér segir ekki síður hugur að hann vilji líka tala til þeirra sem enn eru grun­lausir og ekki síst til þeirra sem líta á hnatt­ræna hlýnun sem hind­ur­vitni og bábiljur.

Hugs­an­lega eru ein­hverjir grun­lausir í salnum, en ekki varð mikið vart við síð­ast­nefnda hóp­inn – þann hóp sem raun­veru­lega þyrfti að hlusta á Andra Snæ og taka fyrstu skrefin í átt að skiln­ingi á því sem er að ger­ast í kringum okkur og um leið fyrstu skrefin í átt að skiln­ingi á því hvernig eigi að segja frá því. “The Media is the Message” sagði eitt sinn fjöl­miðla­fræð­ing­ur­inn Marshall Mcluhan og Andri Snær leiðir vönduð rök að því að skiln­ingur á lofts­lags­vánni eins og hún blasir við á okkar tímum hefst á því að umturna tungu­mál­inu, læra það upp á nýtt, beita því í þágu breyt­inga!

Andri Snær býður gestum sínum uppá mik­il­feng­legt ferða­lag í tíma og rúmi á stóra sviði Borg­ar­leik­húss­ins. Það er mik­il­feng­legt í ljósi þess að það tekur á lofts­lags­vánni sem sögð er vofa yfir okkur og vera lífs­spurs­mál verði ekki að gert í tæka tíð, en einnig vegna þess að þær breyt­ingar á vist­kerf­inu sem eru í vændum, eru svo stór­tækar og gíf­ur­legar að ekki einu sinni tungu­málið nær að lýsa þeim þannig að skilj­an­legt verði venju­legum manni og þar er kannski að finna skýr­ing­una á and­vara­leys­inu sem virð­ist ríkja þegar kemur að við­bragði okkar manna – við skiljum hrein­lega ekki hvað er að ger­ast, gerum okkur ekki grein fyrir umfangi breyt­ing­anna né hversu hratt þær eiga sér stað. Fljótum sof­andi að feigðar­ósi.

Andri Snær full­yrðir – og styður það rökum sótt í vís­indin – að á aðeins næstu hund­rað árum – sem spanna svona einsog þrjár, kannski fjórar kyn­slóðir – mun jörðin okkar ganga í gegnum breyt­ingar sem eru stærri en svo að tungu­málið, mynd­hverf­ingar okkar, lík­inga­mál og kenn­ingar geti höndlað þær. Um breyt­ing­arnar sem slíkar þarf tæp­lega að efast, þótt vissu­lega sé þrefað um það í athuga­semda­kerfum félags­miðla hvort þær verði jafn afdrifa­ríkar og ham­fara­spá­menn segja og svo auð­vitað hverjum sé um að kenna – nátt­úr­unni eða mann­inum!

Hvað sem því líður þá eru nægar vís­bend­ingar sem kveða á um að afdrifa­ríkra breyt­inga sé að vænta. Það er kjána­skapur að horfast ekki í augu við það. Hins vegar virð­ist lausnin vera sú, sem mann­inum er ótöm­ust: að breyta lífs­stíl og hegðan, að horfa til ann­arra lausna en sívax­andi hag­vaxtar, að láta móður Jörð í friði og virða hennar þol­mörk.

Andri Snær horfir á umhverf­is­málin, lofts­lags­breyt­ingar og ham­fara­vána útfrá afar athygl­is­verðu sjón­ar­miði – í því skyni að reyna að sjá sam­hengi hlut­anna og gera það skilj­an­legt öðrum: hann byrjar á því að segja frá jökla­ferðum afa síns og ömmu (sem reynd­ast kynnt­ust og felldu hugi saman á stærsta jökli Evrópu!) sem er upp­haf þeirra jökla­rann­sókna sem við búum að í dag. Þekking okkar á jöklum, við­horf okkar til þeirra og ann­arrar ósnort­innar nátt­úru er hreint ekki gam­alt ef því er að skipta, yngra en ald­ar­gam­alt þegar að er gáð. Hér á Íslandi var það nátt­úru­vís­inda­mað­ur­inn Sveinn Pálsson sem rann­sak­aði jökla einna fyrstur en svo hefj­ast ekki skipu­legar rann­sóknir á jöklum fyrr en með sænsk-íslenska leið­angrinum 1936 á Vatna­jökul undir stjórn Jóns Eyþórs­sonar veð­ur­fræð­ings og sænska jökla­fræð­ings­ins Hans Ahlmanns.

Ósjálfrátt dettur manni í hug að kannski háir þetta reynslu­leysi okkur, til­finn­inga­tengsl okkar við móður Jörð, þau sem byggja á þekk­ingu, eru svo ný af nál­inni að við verðum að leita til goð­sagna og nátt­úru­trúar fyrri tíma til að skilja hvers eðlis þessi til­finn­inga­tengsl eru og hvers móðir Jörð má krefj­ast af okkur.

Frásögn Andra Snæs er lipur, fer vel í eyra og það er býsna auð­velt að fylgj­ast með, jafn­vel þegar kemur að ströng­ustu vís­indum. Honum er lagið að breyta öllum yfir­þyrm­andi, vís­inda­legum stærðum í skilj­an­legar stærðir, skýrðar á manna­máli, frá­sögnin verður spenn­andi og grípur mann ekki síst vegna tungu­máls­ins, orð­fær­is­ins sem hann notar til að flytja frá­sögn­ina til okkar, færa okkur hana og gera hana að okkar.

[adspot]Það auð­veldar sögu­mann­inum Andra Snæ – sem vissu­lega er frá­bær sögu­maður sem veit hvað virkar á áheyr­endur – að áheyr­endur eru alger­lega með á nót­unum, þeir eru sá söfn­uður sem frá­söguglaðir sagna­menn vilja hafa í kringum sig. Það sýnir vissu­lega styrk Andra Snæs sem boð­bera mik­il­vægs erindis en það er dálítið eins og þyrfti að gera átak í því að koma hinum van­trú­uðu inn í sal­inn, þeim sem misst hafa af því að kýrin Auðhumla er upp­haf lífs á jörð­inni og að Auðhumla er jök­ull Himala­ya­fjalla.

Hvað sem því líður – Andri Snær er áhrifa­mik­ill boð­beri þeirra tíma­lausu gilda sem minna okkur mann­fólkið á að við erum ekki nema brot af vist­kerf­inu og verðum að finna okkar sess í því þannig að ekki sé gengið á vist­kerfið vegna þess að við horfum ekki bara til okkar þarfa, heldur einkum vegna þess að okkur hættir til að horfa umfram þarf­irnar og vilja meira. Það kall­ast græðgi og hentar engan veg­inn móður Jörð.

Það væri ósk­andi að allir – ekki síst þeir sem efast um vax­andi hnatt­ræna hlýnun – gæfu sér tíma til að hlusta á hóg­væra frá­sögn Andra Snæs. Hún ein­kenn­ist af gildum sem hollt er að hafa í huga: mann­kær­leik og virð­ingu fyrir móður Jörð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiklist

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár