Betur borgandi ferðamenn

Þrátt fyrir 17 pró­sent fækkun ferða­manna frá falli WOW air hefur lengri dval­ar­tími ferða­manna og aukin neysla þeirra mildað högg ferða­þjón­ust­unnar. Icelandair hefur átt stóran þátt í því að ferða­mönnum hafi ekki fækkað meira.

Erlendum ferða­mönnum til Íslands hefur fækkað um rúm­lega 13 pró­sent það sem af er ári. Ferða­mönnum hefði þó fækkað mun meira ef far­þega­sam­setn­ing í leiða­kerfi Icelandair hefði ekki breyst, að því er fram kemur í árlegri ferða­þjón­ustu­út­tekt Arion banka.

Ferða­menn dvelja nú lengur á land­inu og eyða fleiri krónum. Arion banki spáir að ferða­mönnum muni fjölga um 2 pró­sent á næsta ári, 7 pró­sent árið 2021 og 4 pró­sent á ár­inu 2022.[adspot]

Tveir af hverjum þremur komið til landsins með Icelandair

Í úttekt Arion banka kemur fram að frá því að flug­fé­lagið WOW air hætti starf­semi í lok mars á þessu ári hefur ferða­mönnum fækkað um 17 pró­sent sam­borið við sama tíma­bil í fyrra. Ferða­mönnum tók þó að fækka strax við árs­byrjun enda hafi WOW air dregið segl sín umtals­vert saman áður en rekstur þess stöðv­að­ist og hefur þeim fækkað um 13 pró­sent frá árs­byrjun. 

Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 30 pró­sent fleiri ferða­menn til Íslands en á síð­asta ári, á meðan heild­ar­fjöldi far­þega félags­ins hefur auk­ist um 11 pró­sent. Það skýrist af breyttri sam­setn­ingu far­þega í leiða­kerfi Icelandair.

Í úttekt­inni segir að sam­setn­ing far­þega í leiða­kerfi Icelandair hefði hald­ist óbreytt frá 2018 má áætla að um 100 þús­und færri ferða­menn hefðu heim­sótt landið þar sem af er þessu ári, að öðru óbreyttu. Í stað þess að ferða­mönnum hafi fækkað um 13 pró­sent væri sam­drátt­ur­inn nær 20 pró­sentum.

Hver ferðamaður eyðir mun meira

Ferða­þjón­ustan verður áfram langstærsta útflutn­ings­grein Íslend­inga og tekju­sam­dráttur ferða­þjón­ustu verður lík­lega minni í ár en Arion banki ótt­að­ist. Lengri dval­ar­tími ferða­manna og aukin neysla hvers og eins ferða­manns, bæði í krónum og erlendri mynt, spilar þar inn í.

Á öðrum árs­fjórð­ungi 2019 jókst neysla á hvern ferða­mann um 10 pró­sent í erlendri mynt og 24 pró­sent í krónu. Samkvæmt grein­ingu bank­ans má rekja þessa auknu neyslu til minni oftaln­ingar ferða­manna en áður, áherslu­breyt­ingu hjá Icelandair og breyttrar sam­setn­ingar ferða­manna í kjöl­far falls WOW air.

Í grein­ing­u ­­Arion ­­banka kemur fram að við­­búið að neysla myndi aukast sökum geng­is­veik­ingar krón­unnar en hversu mikla aukn­ingu kom á óvart. Hver ferða­maður eyddi að með­al­tali 36 þús­und fleiri krónum á öðrum árs­fjórð­ungi en fyrir ári síðan, sé ekki leið­rétt fyrir gengi.

Dvelja nærri sólarhring lengur

Í kjöl­far gjald­­þrots WOW air í mars jókst vægi erlendra flug­­­fé­laga í flug­­fram­­boði lands­ins en erlend flug­­­fé­lög fljúga alla jafna sjaldnar í viku til lands­ins. Sú þróun sem og áherslu­breyt­ing hjá Icelandair virð­ist hafa leitt til þess að hver ferða­maður dvelur lengur og eyðir meira. Til að mynda voru með­al­út­gjöld hvers ferða­manns á vegum WOW air 44 þús­und króna lægri í fyrra en ferða­manns á vegum Icelandair.

Dval­ar­tími allra þjóð­erna, að Kín­verjum og Pól­verjum und­an­skildum, hafa lengst frá falli WOW air ef miðað er við hót­elgistinætur eða alls 17 pró­sent aukn­ing á hvern ferða­mann. Gistinætur erlendra ferða­manna á hót­elum voru sam­tals 2,2 millj­ónir á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins og fækk­aði um 1 pró­sent milli ára.

Rúmlega fjórðungs færri sæti í boði í vetur

Arion banki spáir að fram­boðs­sam­drátt­ur­inn í flugi sem varð til með brott­hvarfi WOW air verði mætt með tak­mörk­uðu leyti í vetur. Erlend flug­fé­lög munu auka fram­boð sitt um sjö pró­sent í vetur og munu alls þrettán flug­fé­lög bjóða upp á reglu­legar áætl­un­ar­ferðir í vetur, jafn mörg og í fyrra.

Þrátt fyrir það verða rúm­lega 20 pró­sent færri flug­sæti í boði til lands­ins miðað við fyrra­vetur.

Að lokum spáir bak­inn að ferða­þjón­ustan eigi eftir að taka við sér á næsta ári en það hægt. Grunnspá bank­ans gerir ráð fyrir að ferða­mönnum muni fjölga um 2 pró­sent á næsta ári. Þá er tekið fram í úttekt­inni að fjölgun ferða­manna muni þó ráð­ast að miklu af því hvort að hér tak­ist á loft nýtt flug­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár