Vilja fjölga farþegum í innanlandsflugi um fimmtung

Stjórn­völd ætla sér að bæta grund­völl inn­an­lands­flug hér á landi og er mark­miðið að fjöldi far­þega með inn­an­lands­flugi verði 440 þús­und árið 2024 en það er rúm­lega 70.000 fleiri far­þegar en árið 2018.

Fjölga á far­þegum í inn­an­lands­flugi um fimmt­ung fyrir árið 2024 sam­kvæmt nýrri aðgerða­á­ætlun sam­göngu­ráð­herra. Á síð­asta ára­tug hefur far­þegum í inn­an­lands­flugi fækkað um fimmt­ung og tekjur flug­fé­lag­anna tveggja ekki staðið undir kostn­aði. Stjórn­völd stefna að því að styrkja grund­völl inn­an­lands, meðal ann­ars með því að nið­ur­greiði far­gjöld til fólks sem býr fjarri höfuð­borg­ar­svæð­inu

Fyrsta flugstefna stjórnvalda

Í síð­ustu viku

kynnti

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra fyrstu flug­stefnu Íslands. Heild­stæð flug­stefna er liður í stefnu­mörkun sam­göngu­á­ætl­unar en Sigurður Ingi kynnti sam­hliða flug­stefn­unni end­ur­skoð­aða sam­göngu­á­ætlun fyrir tíma­bilið 2020 til 2034.

Í nýju flug­stefn­unni eru meðal ann­ars kynntar aðgerðir sem miða að því að styrkja grund­völl inn­an­lands­flugs, bæta sam­þætt­ingu þess við aðra hluta samgöngu­kerf­is­ins, þar með talið milli­landa­flug, og gera það þannig að raun­hæfum og skil­virkum kosti fyrir lands­menn.

Samkvæmt stefn­unni er mik­il­væg aðgerð á þessu sviði að íbúum á lands­byggð­inni verði gert kleift að nýta sér betur inn­an­lands­flugið með kostn­að­arþátttöku hins opin­bera. Er þá átt við að hið opin­bera nið­ur­greiði far­gjöld til fólks sem býr fjarri höfuð­borg­ar­svæð­inu og auð­velda þeim þannig að sækja þangað mið­læga þjónustu með hag­kvæmum og skil­virkum hætti.[adspot]

70.000 fleiri farþegar

Samkvæmt stefn­unni er mark­miðið að árið 2024 verði fjöldi far­þega sem ferð­ast með inn­an­lands­flug 440 þús­und. Árið 2018 voru far­þeg­arnir 368.600 og þarf því far­þegum að fjölga um tæp­lega 20 pró­sent á næstu árum.

[links]Á síð­asta ára­tug hefur far­þegum í inn­an­lands­flugi hins vegar fækkað um 20 pró­sent og út­lit er fyrir því að í ár verði aftur fækkun milli ára. Í græn­bók ráð­herra frá því í sumar kemur fram að sveifl­ur í far­þega­fjölda í inn­an­lands­flugi megi rekja til nokk­urra þátta.

Þar á meðal hafi álög á inn­an­lands­flug auk­ist á síð­ustu árum en á tíma­bil­inu 2009 til 2013 þre­föld­uð­ust álögur vegna hækk­ana á lend­ing­ar­gjöld­um, kolefn­is­skatti og flug­leið­sögu­gjaldi. Þeim kostn­að­ar­auka hefur verið velt út í verð­lag en rann­sóknir sýna að verð­teygni í flug er um 0,5 til 1,0 sem þýðir að með 10 pró­sent verð­hækkun verður 5 til 10 pró­sent fækkun í fjölda far­þega, svo dæmi sé tek­ið.

Á vor­mán­uðum 2019 lýstu stjórnendur Icelandair því yfir að rekstur Air Iceland Conn­ect væri mjög erf­iður og skoða þyrfti allar leiðir til að bæta hann. Önnur flug­félög í inn­an­lands­flug­rekstri hafa einnig átt í erf­ið­leikum og í græn­bók­inni segir að ljóst sé að rekstr­ar­um­hverfi þeirra sé erfitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár