30 manns sagt upp í Fríhöfninni og hundrað manns boðið lægra starfshlutfall

Tekjur Frí­hafn­ar­innar hafa dreg­ist saman um 98 pró­sent vegna far­ald­urs­ins. 130 af alls 169 starfs­mönnum hefur verið sagt upp eða boðið lægra starfs­hlut­fall.

Nær engir ferðamenn koma lengur til landsins.
Nær engir ferða­menn koma lengur til lands­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Frí­höfnin, sem er dótt­ur­fé­lag Isavia sem rekur versl­un­ar­starf­semi á Kefla­vík­ur­flug­velli, hefur sagt upp 30 af 169 starfs­mönnum. Auk þess var 100 til við­bótar boðið áfram­hald­andi starf en í lægra starfs­hlut­falli.

Þá verða engar sum­ar­ráðn­ingar í fram­línu­störfum hjá Isavia í ár vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins. Þær ráð­staf­anir koma Það kemur til við­bótar við að í lok mars var 101 starfs­manni félags­ins sagt upp störfum vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar og 37 til við­bótar boðið áfram­hald­andi starf í lægra starfs­hlut­falli. Áður en áhrifa COVID-19 fór að gæta var áformað að ráða 140 manns í sum­ar­afleys­ingar hjá Isavia.

[adspot]Í frétta­til­kynn­ingu frá Isavia vegna þessa segir að ekki séu fyr­ir­hug­aðar frek­ari aðgerðir hjá móð­ur­fé­lagi Isavia og dótt­ur­fé­lög­unum Isavia ANS og Isavia Inn­an­lands að svo stöddu.

Þar er haft eftir Þorgerði Þrá­ins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Frí­hafn­ar­innar, að tekjur félags­ins hafi dreg­ist saman um 98 pró­sent. „Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hefur verið lögð áhersla á að verja störf eins og hægt er. Um síð­ustu mán­aða­mót var tekin sú ákvörðun að segja ekki upp föstu starfs­fólki en ráða ekki í sum­ar­störf hjá Frí­höfn­inni. Málin hafa hins vegar þró­ast þannig að nú er útlit fyrir að flug­um­ferð muni verða afar tak­mörkuð næstu mán­uði og tíma­bilið þar sem áhrifa Covid 19 gætir verði lengra en von­ast var til.“

Svein­björn Ind­riða­son, for­stjóri Isavia, segir á sama stað að Isavia sé í þeirri stöðu fjár­hags­lega að geta enn sem komið er leyft sér að horfa til hausts­ins en ekki ein­ungis til næstu vikna eða örfárra mán­aða. Óvissan um fram­haldið í flug­tengdum rekstri sé þó enn afar mikil og ekki sé hægt að úti­loka að það þurfi að grípa til frek­ari aðgerða síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár