Rikisstjórnin samþykkir að skoða lánalínu til Icelandair

Ríkið mun eiga sam­tal um lána­línu til Icelandair Group ef full­nægj­andi árangur næst í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins.

Á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag var sam­þykkt til­laga fjög­urra ráð­herra, þar á meðal for­manna allra stjórn­ar­flokk­anna, um að ríkið væri til­búið að eiga sam­tal um mögu­lega veit­ingu lána­línu eða ábyrgð á lánum til Icelandair Group.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að aðkoma stjórn­valda sé háð því að full­nægj­andi árangur náist í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins í sam­ræmi við þær áætl­anir sem kynntar hafa verið, þar með talið að afla nýs hluta­fjár.

Full­trúum stjórn­valda hafi verið haldið upp­lýstum um stöðu Icelandair und­an­farnar vikur þar sem fram hafi komið að félagið vinnur að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu og söfnun nýs hluta­fjár.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun að ríkið hefði verið í sam­skiptum við Icelandair og að sér­stakur starfs­hópur væri nú að störfum til þess að fá upp­lýs­ingar um stöðu félags­ins til þess að und­ir­byggja ákvarð­ana­töku fram­tíð­ar­inn­ar.

[adspot]„Það sem hefur gerst á und­an­förnum vikum er að félagið sjálft hefur tekið frum­kvæði. Það hefur verið greint frá því opin­ber­lega í Kaup­höll og nú er boðað að félagið hygg­ist fara í hluta­fjár­aukn­ingu og um mögu­lega aðkomu rík­is­ins að mál­efnum félags­ins í tengslum við fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þess er nú verið að ræða á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar og ég vænti þess að við getum brugð­ist við og lagt fram skýr svör um það hvernig við sæjum þá fyrir okkar að það gæti orðið með aðkomu rík­is­ins,“ sagði Bjarni en Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði hann út í stöðu Icelandair og hver áform rík­is­stjórn­ar­innar væru varð­andi félag­ið.

Það væri skoðun Bjarna að Icelandair væri eitt mik­il­væg­asta fyr­ir­tæki lands­ins og að allt við­skipta­mód­elið sem teng­ist Kefla­vík­ur­flug­velli væri í raun og veru und­ir. Þar af leið­andi hefðu þau í rík­is­stjórn­inni „sett kraft og tekið mjög alvar­lega þeirri stöðu sem er uppi komin hjá fyr­ir­tæk­in­u“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár