Núverandi hluthafar Icelandair þynnast niður í 15,3 prósent eign

Icelandair Group ætlar að sækja rúma 29 millj­arða króna í nýtt hlutafé í júní. Gangi það eftir mun íslenska ríkið kanna mögu­leik­ann á því að veita félag­inu lána­línu eða ábyrgð lána. Lán­veit­endur verða hvattir til að breyta skuldum í hlutafé.

Icelandair Group ætlar að auka hlutafé sitt um 30 þús­und milljón hluti. Útgefið hlutafé í dag er 5.437.660.653 hlutir. Núver­andi eign hlut­hafa verður því 15,3 pró­sent af útgefnu hlutafé ef það tekst að selja alla ætl­uðu hluta­fjár­aukn­ing­una.

Fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð, sem verður almennt og fer fram í júní­mán­uði, á að safna rúm­lega 29 millj­örðum króna, eða 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala, í aukið hlutafé. Miðað við það má ætla að til standi að selja hvern hlut í hluta­fjár­út­boð­inu á rúm­lega eina krónu á hlut. Gengi Icelandair við lok við­skipta í dag í Kaup­höll­inni var 2,37 krónur á hlut.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi til Kaup­hallar Íslands í kvöld.

Í til­kynn­ing­unni segir að stjórn Icelandair muni einnig óska eftir því að núver­andi hlut­hafar gefi eftir for­gangs­rétt á nýút­gefnum bréfum í félag­inu. „Útboðið verður þannig opið almenn­ingi sem og fag­fjár­festum. Stjórn mun taka ákvörðun um úthlutun hluta en leit­ast verður við að skerða ekki úthlutun til núver­andi hlut­hafa og starfs­manna.“

Á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag var sam­þykkt til­laga fjög­urra ráð­herra, þar á meðal for­manna allra stjórn­ar­flokk­anna, um að ríkið væri til­búið að eiga sam­tal um mögu­lega veit­ingu lána­línu eða ábyrgð á lánum til Icelandair Group.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að aðkoma stjórn­valda sé háð því að full­nægj­andi árangur náist í fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins í sam­ræmi við þær áætl­anir sem kynntar hafa ver­ið, þar með talið að afla nýs hluta­fjár.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði í Kast­ljósi í kvöld að ábyrgðir rík­is­ins gætu hið minnsta numið yfir tíu millj­örðum króna.

Lífeyrissjóðir verða í stóru hlutverki

Stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group, ­­banda­ríski fjár­­­­­­­fest­ing­­­­ar­­­­sjóð­­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement, hefur und­an­farið minnkað hlut sinn í félag­inu úr 13,7 pró­sent í 13,2 pró­sent. Fyrst með því að selja 0,2 pró­sent hlut og svo aftur með því að selja 0,3 pró­sent hlut á allra síð­ustu dög­um.

[adspot]Þetta má sjá á nýbirtum hlut­haf­alista Icelandair Group þar sem fjöldi hluta­bréfa í eigu PAR Capital Mana­gement, hefur dreg­ist saman um 16,5 millj­ónir frá því í síð­ustu viku.

Næst stærsti eig­and­inn í Icelandair, á eftir Par Capital Mana­gement, er Líf­eyr­is­­­sjóður verzlunarmanna með 11,8 pró­­­sent hlut og þar á eftir koma líf­eyr­is­­­sjóð­irnir Gildi (7,24 pró­­­sent) og Birta (7,1 pró­­­sent). Alls eiga íslenskir líf­eyr­is­­­sjóðir að minnsta kosti 43,6 pró­­­sent í Icelandair Group með beinum hætti, en mög­u­­­lega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjár­fest­ing­ar­sjóði sem eiga einnig stóran hlut í félag­inu.

Núver­andi eign hlut­hafa mun fara niður í 15,3 pró­sent við vænta hluta­fjár­aukn­ingu, tak­ist að selja hana alla.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans munu íslensku líf­eyr­is­­­sjóð­irnir sem eru á meðal stærstu eig­enda félags­ins leika lyk­il­hlut­verk í end­ur­fjár­mögnun Icelandair Group. Því er við­búið að þeir haldi sterkri stöðu í eig­enda­hópnum.

Vilja að kröfuhafar breyti skuldum í hlutafé

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í kvöld kemur líka fram að sam­hliða hluta­fjár­út­boð­inu muni Icelandair Group kanna mögu­leika á því að breyta skuldum í hlutafé. Á meðal þeirra sem Icelandair skuldar umtals­vert fé er rík­is­bank­inn Lands­bank­inn. Léleg rekstr­ar­nið­ur­staða Icelandair á árinu 2018 gerði það að verkum að skil­málar skulda­bréfa sem félagið hafði gefið út voru brotnir. Mánuðum saman stóðu yfir við­ræður við skulda­bréfa­eig­end­urna um að end­ur­semja um flokk­anna vegna þessa. Þær við­ræður skil­uðu ekki árangri og 11. mars 2019 var greint frá því að Icelandair hefði fengið lánað 80 millj­ónir dala, þá um tíu millj­arða króna, hjá inn­lendri lána­stofnun gegn veði í tíu Boeing 757 flug­vélum félags­ins, sem eru komnar nokkuð til ára sinna. Láns­fjár­hæðin var nýtt sem hluta­greiðsla inn á útgefin skulda­bréf félags­ins.

Því var verið að flytja hluta af fjár­mögnun Icelandair frá skulda­bréfa­eig­endum og yfir á banka í eigu íslenska rík­is­ins vegna þess að ekki tókst að semja við þá. Hinn rík­is­bank­inn, Íslands­banki, hefur líka lánað Icelandair fé, en bein rík­is­á­byrgð er á starf­semi beggja bank­anna í gegnum eign á hlutafé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár