Virði Icelandair að fara undir tíu milljarða en tapið á þremur mánuðum var 31 milljarðar

Icelandair tap­aði rúm­lega tvisvar sinnum hærri fjár­hæð á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins en félagið gerði sam­an­lagt á árunum 2018 og 2019.

Icelandair Group tap­aði 30,9 millj­arði króna á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs. Á árunum 2018 og 2019 nam sam­an­lagt tap félags­ins tæp­lega 14 millj­örðum króna. Það tap­aði því rúm­lega tvisvar sinnum hærri upp­hæð frá ára­mótum og út mars­mánuð 2020 en það gerði á tveimur heilum árum þar á undan.

Árs­fjórð­ungs­upp­gjör Icelandair Group var birt í kvöld og afkoman var hörmu­leg líkt og reiknað hafði verið með. Fyrsti árs­fjórð­ungur er vana­lega slakur í rekstri flug­fé­laga enda utan hefð­bund­ins háanna­tíma. Í fyrra tap­aði Icelandair til að mynda 6,7 millj­örðum króna á honum. Tapið á fyrsta árs­fjórð­ungi í ár er því 23,4 millj­örðum krónum meira en það var á sama tíma í fyrra.

Ástæðan er vit­an­lega að lang­mestu leyti áhrif útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og þær yfir­grips­miklu ferða­tak­mark­anir sem þær höfðu í för með sér. Ein­skiptis­kostn­aður vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins nam 23,3 millj­örðum króna.

[adspot]Eigið fé Icelandair Group var 27,2 millj­arðar króna í lok mars, eða 191,2 millj­ónir dala. Lausa­fjár­staðan nam 40 millj­örðum króna, eða 281 milljón dala, í lok mars og er því enn yfir 29 millj­arðar króna, 200 milljón dala, við­mið­inu sem Icelandair vinnur eftir að fara ekki undir. Í lok árs 2019 átti Icelandair um 302 millj­ónir dala í laust fé.

Ljóst er að apríl og næstu mán­uðir voru ekki til að bæta stöðu Icelandair. Félagið flaug undir fimm pró­sent af flug­á­ætlun sinni í síð­asta mán­uði.

Icelandair sagði upp 2.140 manns í síð­ustu viku til við­bótar við þá 230 sem félagið rak í lok mars. Í síð­ustu viku til­kynntu stjórn­völd um að þau myndu greiða stóran hluta launa starfs­fólks fyr­ir­tækja eins og Icelandair í upp­sagn­ar­fresti og að þau myndu skoða að lána félag­inu eða ábyrgj­ast lán til þess ef það tæk­ist að end­ur­skipu­leggja sig fjár­hags­lega. Sú end­ur­skipu­lagn­ing felur í sér að biðla til kröfu­hafa að breyta kröfum í hlutafé og að auka hlutafé félags­ins um 30 þús­und milljón hluti, sem myndi þynna núver­andi hlut­hafa að óbreyttu niður í sam­eig­in­lega 15,3 pró­sent eign. Vonir standa til að Icelandair geti safnað 29 millj­örðum króna í nýtt hlutafé með þessum hætti.

Virði bréfa í félag­inu hrundi í dag, alls um 19,8 pró­sent, og stendur í 1,9 krónum á hlut. Það hefur aldrei verið lægra og er nú í fyrsta sinn undir tveimur krónum á hlut. Mark­aðsvirðið er nú 10,3 millj­arðar króna. Tap Icelandair Group á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var því þrefalt núver­andi mark­aðsvirði félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár