Erfið staða innanlandsflugs

Í nýjum drögum að heild­stæðri flug­stefnu stjórn­valda kemur fram að staða inn­an­lands­flugs sé erfið. Fjöldi far­þega hefur dreg­ist saman um 20 pró­sent á síð­ustu tíu árum og afkoma flug­fé­lag­anna tveggja þykir óásætt­an­leg.

Á sama tíma og milli­landa­flug hefur vaxið mikið hér­lendis hefur orðið tals­verður sam­dráttur í inn­an­lands­flugi. Tvö flugfélög stund­uðu áætl­un­ar­flug inn­an­lands árið 2018 en sam­kvæmt drögum að nýrri flug­stefnu stjórn­valda hefur rekstur þeirra verið þungur. Á síð­ustu tíu árum hefur far­þegum í inn­an­lands­flugi fækkað um fimmt­ung og tekjur flug­fé­lag­anna tveggja ekki staðið undir kostn­aði.

Afkoma í innanlandsflugi ekki verið ásættanleg

Í nýjum drögum að græn­bók um stefnu stjórn­valda í mál­efnum flug­rekstrar og flug­tengdrar starf­semi hér á landi, sem starfs­hópur sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra vann, kemur fram að mikil þróun hafi orðið í flug­reks­rti hér á landi á und­anförnum áratugum og að umfang grein­ar­innar hafi auk­ist veru­lega, einkum á síðustu tíu árum.

Flug­ferðum til og frá land­inu hefur fjölgað og mun fleiri flugfélög fljúga til lands­ins en áður. Árið 2008 flugu færri en fimm félög allt árið til Íslands en tíu árum seinna flugu hingað til lands 31 félag, þar af voru 11 erlend félög sem flugu allt eða nær allt árið. [adspot]

Á meðan milli­landa­flug hefur auk­ist veru­lega hér á landi hefur rekstur flug­fé­laga sem fljúga inn­an­lands verið erf­iður og fjöldi far­þega dreg­ist saman. Í flug­stefn­unni segir að afkoma í inn­an­lands­flugi hafi ekki verið ásætt­an­leg hjá þeim tveimur félögum sem hafa sinnt þess­ari þjónustu á síðast­liðnum árum. Fargjöldin og þar með tekj­urnar hafi ekki staðið undir kostn­aði og félögin því verið rekin með tapi.

Á vormánuðum 2019 lýstu stjórnendur Icelandair því yfir að rekstur Air Iceland Connect væri mjög erf­iður og skoða þyrfti allar leiðir til að bæta hann. Önnur flugfélög í inn­an­lands­flug­rekstri hafa einnig átt í erf­ið­leikum og í stefn­unni segir að ljóst sé að rekstr­ar­um­hverfi þeirra er erfitt.

Farþegum fækkað um 20 prósent

Eftir mik­inn sam­drátt í ferða­þega­fjölda frá árinu 2008 fór far­þegum í inn­an­lands­flugi aftur að fjölga árið 2014 og á þremur árum fjölg­aði far­þegum um 14,5 pró­sent. Má það að ein­hverju leyti rekja til fjölgun erlendra ferð­manna hér á landi en talið er að þeir séu um 20 pró­sent af far­þega­fjöldanum í inn­an­lands­flugum. Hins vegar segir í stefn­unni að þeir ferða­menn sem fari spar­lega með fé séu ólíklegir til að nýta sér inn­an­lands­flugið en sá hópur hefur ein­kennt þá aukn­ingu sem hefur verið í fjölda ferð­manna hér á landi á síðast­liðnum árum. Á síðasta ári fækk­aði far­þegum í inn­an­lands­flugi aftur og segir í flug­stefn­unni að útlit sé fyrir að í ár verði aftur fækkun milli ára.

Í stefn­unni segir að sveiflur í far­þega­fjölda í inn­an­lands­flugi megi rekja til nokk­urra þátta. Álög á inn­an­lands­flug hafi auk­ist á síð­ustu árum en á tíma­bil­inu 2009 til 2013 þre­föld­uð­ust álögur vegna hækk­ana á lend­ing­ar­gjöldum, kolefn­is­skatti og flug­leið­sögu­gjaldi. Þeim kostn­að­ar­auka hefur verið velt út í verð­lag en rann­sóknir sýna að verð­teygni í flug er um 0,5 til 1,0 sem þýðir að með 10 pró­sent verð­hækkun verður 5 til 10 pró­sent fækkun í fjölda far­þega, svo dæmi sé tekið. 

Auk þess hafi aðrar sam­göngu­bætur í sam­fé­lag­inu áhrif en eftir að Land­eyj­ar­höfn var tekin í notkun árið 2010, sama ár og álögur á flug voru auknar, er áætlað að í kjöl­farið hafi orðið 70.000 far­þega­fækkun í flugi inn­an­lands. Í heild­ina hefur far­þegum í inn­an­flugi fækkað um 20 pró­sent frá árinu 2008.

Þá hefur far­þegum í inn­an­lands­flugi ekki ein­ungis fækkað heldur hefur frakt einnig minnkað en frá árinu 2013 hefur hún dreg­ist saman um þriðj­ung. Með frakt í þessum skiln­ingi er átt við bæði hefð­bundna frakt og póst. Samkvæmt starfs­hópnum geta nokkrar ástæður verið fyrir þess­ari minnkun, svo sem almennur samdráttur í póstsend­ingum, fækkun flug­ferða inn­an­lands og aukin sam­keppni við land­flutn­inga. Að mati hóps­ins gera þessar breyt­ingar á frakt­flutn­ingum ásamt erf­iðri stöðu í far­þega­flutn­ingum stöðu inn­an­lands­flugs­ins erf­iða.

Tveggja milljarða uppsöfnuð viðhaldsþörf

Í drög­unum að græn­bók­inni eru lag­aðar til ýmsar til­lögur til að styrkja flug­rekstur hér á landi til fram­tíðar en hóp­ur­inn telur að inn­an­lands­flug skipti miklu máli fyrir íslenskt atvinnu­líf. „Inn­an­lands­flugið er þýðing­ar­mik­ill samgöngumáti fyrir Íslend­inga og skiptir miklu máli fyrir atvinnulífið og almenn­ing þegar kemur að teng­ingum fjölmennra þéttbýlis­staða á lands­byggð­inni við höfuð­borg­ina,“ segir í stefn­unni

Hópurinn leggur meðal ann­ars til að almenn­ings­sam­göngur á milli Reykja­vík­ur­flug­vallar og Kefla­vík­ur­flug­vallar verði styrktar svo að flug­far­þegar geti auð­veld­lega farið á milli alþjóða­flugs og inn­an­lands­flugs.

Auk þess leggur hóp­ur­inn mikla áherslu á að stjórn­völd tryggi aukið fjár­magn til fram­kvæmda á flug­völlum en í stefn­unni segir að eftir hrun hafi við­hald og nýfram­kvæmdir á flug­völlum setið á hak­anum. Hópurinn áætlar að upp­söfnuð við­halds­þörf flug­valla um allt land sé um tveir millj­arðar króna. Starfs­hóp­ur­inn segir að ástandið sé orðið víða óvið­un­andi sem hafi meðal ann­ars leitt til þjón­ustu­skerð­ingar.

Jafn­framt leggur hóp­ur­inn til að stofn­aður verði sjóður um upp­bygg­ingu vara­flug­valla sem verði einkum fjármagn­aður af flug­rek­endum en einnig íslenska ríkinu í upp­hafi í því skyni að ráða bót á brýnustu þörfinni. Hópurinn leggur til inn­heimt verði hóflegt flug­valla­gjald hjá flug­rek­endum sem mun renna inn í sjóðinn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár