Rekstrartap Icelandair var 26,8 milljarðar króna frá áramótum og út mars

Lausa­fjár­staða Icelandair Group er ekki komin undir þau við­mið sem félagið vinnur eftir, en fer þangað bráðum. Útflæði fjár­magns hjá félag­inu minnkar um 1,7 millj­arða króna á næstu þremur mán­uðum eftir að það rak stóran hluta starfs­fólks.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot

Útflæði fjár­magns hjá félag­inu minnkar um 1,7 millj­arða króna á næstu þremur mán­uðum eftir að það rak stóran hluta starfs­fólks.

Icelandair Group skil­aði 26,8 millj­arða króna rekstr­ar­tapi á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Þetta kemur fram í bráða­birgða­tölum upp­gjörs félags­ins fyrir fyrsta árs­fjórð­ung árs­ins 2020 sem birt var í Kauphöll Íslands í kvöld. End­an­legt upp­gjör verður birt á mánu­dag, 4. maí.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að útbreiðsla COVID-19 og yfir­grips­miklar ferða­tak­mark­anir í kjöl­far hennar hafi leitt til mik­ils sam­dráttar í eft­ir­spurn eftir flugi og ferða­lögum og haft veru­leg áhrif á starf­semi Icelandair Group. „Bráða­birgða­tölur úr upp­gjöri félags­ins gefa til kynna að tekjur hafi dreg­ist saman um 16% og numið 26,9 millj­örðum króna (209 millj­ónum dala). Virð­is­rýrnun við­skipta­vildar í tengslum við COVID-19 nam 14,8 millj­örðum króna (115 millj­ónum dala). Þá hafði nei­kvæð þróun elds­neyt­is­varna, sem nam 6,6 millj­örðum króna (51 milljón dala), einnig veru­lega nei­kvæð áhrif á afkomu félags­ins í fjórð­ungnum. Að teknu til­liti til þess­ara þátta, gefa bráða­birgða­tölur í upp­gjöri félags­ins fyrir fyrsta árs­fjórð­ung 2020 til kynna að EBIT hafi verið nei­kvætt um 26,8 millj­arða króna (208 millj­ónir dala).“

Lausa­fjár­staða félags­ins er enn sögð yfir því við­miði sem félagið vinnur eftir en stefna þess hefur verið sú að lausa­fjár­staða félags­ins fari ekki undir 29 millj­arða króna (200 millj­ónir dala) á hverjum tíma. „Miðað við áætl­anir um áfram­hald­andi lág­marks­tekju­flæði, gerir félagið ráð fyrir að lausa­fjár­staða þess fari undir ofan­greint við­mið á næstu vikum. Þá hefur félagið, í ljósi nei­kvæðrar þró­unar elds­neyt­is­varna milli­fært 2,6 millj­arða (18 millj­ónir dala) inn á bundna reikn­inga hjá mót­að­ilum sínum.“

Icelandair hefur gripið til ýmissa aðgerða til að bæta lausa­fjár­stöðu sína á und­an­förnum vikum. Auk þess hefur félagið sagt stórum hluta starfs­fólks upp störfum, en fyrr í vik­unni var 2.140 manns sagt upp til við­bótar við þá 230 sem reknir voru í lok mars.. Sam­an­lagt er gert ráð fyrir að þær aðgerðir sem gripið hefur verið til muni minnka útflæði fjár­magns um 1,7 millj­arða króna á næstu þremur mán­uðum, þegar tekið er til­lit til mót­væg­is­að­gerða íslenskra stjórn­valda þar sem hluti upp­sagn­ar­frests starfs­fólks er greiddur.

Útboð framundan sem þynnir núverandi hlutafa verulega út

Í gær var greint frá því að Icelandair Group ætli að auka hlutafé sitt um 30 þús­und milljón hluti. Útgefið hlutafé í dag er 5.437.660.653 hlut­ir. Núver­andi eign hlut­hafa verður því 15,3 pró­sent af útgefnu hlutafé ef það tekst að selja alla ætl­uðu hluta­fjár­aukn­ing­una.

[adspot]Fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð, sem verður almennt og fer fram í júní­mán­uði, á að safna rúm­lega 29 millj­örðum króna, eða 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala, í aukið hluta­fé. Miðað við það má ætla að til standi að selja hvern hlut í hluta­fjár­út­boð­inu á rúm­lega eina krónu á hlut. Gengi Icelandair við lok við­skipta í gær í Kaup­höll­inni var 2,37 krónur á hlut.

Á rík­­is­­stjórn­­­ar­fundi í gær var sam­­þykkt til­­laga fjög­­urra ráð­herra, þar á meðal for­­manna allra stjórn­­­ar­­flokk­anna, um að ríkið væri til­­­búið að eiga sam­­tal um mög­u­­lega veit­ingu lána­línu eða ábyrgð á lánum til Icelandair Group.

Í til­­kynn­ingu á vef stjórn­­­ar­ráðs­ins sagði að aðkoma stjórn­­­valda sé háð því að full­nægj­andi árangur náist í fjár­­hags­­legri end­­ur­­skipu­lagn­ingu félags­­ins í sam­ræmi við þær áætl­­­anir sem kynntar hafa ver­ið, þar með talið að afla nýs hluta­fjár.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði í Kast­ljósi í gær­kvöldi að ábyrgðir rík­is­ins gætu hið minnsta numið yfir tíu millj­örðum króna.

Líf­eyr­is­sjóðir verða í stóru hlut­verki

Stærsti ein­staki hlut­hafi Icelandair Group, ­­banda­ríski fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­sjóð­­­­­ur­inn PAR Capital Mana­gement, hefur und­an­farið minnkað hlut sinn í félag­inu úr 13,7 pró­­sent í 13,2 pró­­sent. Fyrst með því að selja 0,2 pró­­sent hlut og svo aftur með því að selja 0,3 pró­­sent hlut á allra síð­­­ustu dög­­um.

Þetta má sjá á nýbirtum hlut­haf­a­lista Icelandair Group þar sem fjöldi hluta­bréfa í eigu PAR Capital Mana­gement, hefur dreg­ist saman um 16,5 millj­­ónir frá því í síð­­­ustu viku.

Næst stærsti eig­and­inn í Icelandair, á eftir Par Capital Mana­gement, er Líf­eyr­is­­­­sjóður verzlunarmanna með 11,8 pró­­­­sent hlut og þar á eftir koma líf­eyr­is­­­­sjóð­irnir Gildi (7,24 pró­­­­sent) og Birta (7,1 pró­­­­sent). Alls eiga íslenskir líf­eyr­is­­­­sjóðir að minnsta kosti 43,6 pró­­­­sent í Icelandair Group með beinum hætti, en mög­u­­­­lega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóði sem eiga einnig stóran hlut í félag­in­u.

Núver­andi eign hlut­hafa mun fara niður í 15,3 pró­sent við vænta hluta­fjár­aukn­ingu, tak­ist að selja hana alla.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans munu íslensku líf­eyr­is­­­­sjóð­irnir sem eru á meðal stærstu eig­enda félags­ins leika lyk­il­hlut­verk í end­­ur­fjár­­­mögnun Icelandair Group. Því er við­búið að þeir haldi sterkri stöðu í eig­enda­hópn­um.

Vilja að kröfu­hafar breyti skuldum í hlutafé

Í til­kynn­ing­unni sem send var út í gær­kvöldi kom líka fram að sam­hliða hluta­fjár­út­boð­inu muni Icelandair Group kanna mögu­leika á því að breyta skuldum í hluta­fé. Á meðal þeirra sem Icelandair skuldar umtals­vert fé er rík­is­bank­inn Lands­bank­inn. Léleg rekstr­ar­nið­ur­staða Icelandair á árinu 2018 gerði það að verkum að skil­málar skulda­bréfa sem félagið hafði gefið út voru brotn­ir. Mán­uðum saman stóðu yfir við­ræður við skulda­bréfa­eig­end­urna um að end­ur­semja um flokk­anna vegna þessa. Þær við­ræður skil­uðu ekki árangri og 11. mars 2019 var greint frá því að Icelandair hefði fengið lánað 80 millj­ónir dala, þá um tíu millj­arða króna, hjá inn­lendri lána­stofnun gegn veði í tíu Boeing 757 flug­vélum félags­ins, sem eru komnar nokkuð til ára sinna. Láns­fjár­hæðin var nýtt sem hluta­greiðsla inn á útgefin skulda­bréf félags­ins.

Því var verið að flytja hluta af fjár­mögnun Icelandair frá skulda­bréfa­eig­endum og yfir á banka í eigu íslenska rík­is­ins vegna þess að ekki tókst að semja við þá. Hinn rík­is­bank­inn, Íslands­banki, hefur líka lánað Icelandair fé, en bein rík­is­á­byrgð er á starf­semi beggja bank­anna í gegnum eign á hluta­fé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár