Afkoma Icelandair batnar eftir að kostnaður við MAX innleiðingu flyst á næsta ár

Icelandair gerir ráð fyrir því að afkoma á þriðja árs­fjórð­ungi verði svipuð og hún var í fyrra. Afkoma félags­ins á þeim árs­fjórð­ungi, sem er sá stærsti í ferða­þjón­ustu, dróst mikið saman milli 2017 og 2018.

Icelandair Group sendi í gær­kvöldi jákvæða afkomu­við­vörun til Kaup­hallar Íslands þar sem fram kemur að, miðað við fyr­ir­liggj­andi for­sendur, verði afkoma félags­ins nei­kvæð um 35-55 millj­ónir Banda­ríkja­dala á árinu 2019, eða um 4,4 til 6,8 millj­arða króna miðað við gengi dags­ins í dag, fyrir greiðslu skatta og vaxta­gjalda. Áður hafi verið búist við tapi upp á 70 til 90 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 8,7 til 11,2 millj­arða króna.

Ástæðan fyrir breyt­ing­unni er sú að Boeing 737 MAX vélar félags­ins munu ekki fara í loftið fyrr en í fyrsta lagi í mars á næsta ári og því flyst væntur kostn­aður vegna inn­leið­ingar þeirra inn í flota Icelandair á ný yfir á næsta ár, í stað þess að falla til í ár. Þetta var til­kynnt fyrir helgi en áður hafði félagið gegnið út frá því að fá vél­arnar aftur til vinnu í jan­úar 2020. Við­ræður milli Icelandair og Boeing, um bóta­greiðslur vegna þess fjár­tjóns sem Icelandair hefur orðið fyrir vegna kyrr­setn­ing­ar, eru í gangi en hafa ekki skilað end­an­legri nið­ur­stöðu.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni sem send var út í gær kemur einnig fram að nú þegar upp­gjör þriðja árs­fjórð­ungs liggi að mestu leyti fyrir, en það verður gert opin­bert 31. októ­ber, sé ljóst að „EBIT og nettó afkoma á fjórð­ungnum er svipuð því sem hún var á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir veru­leg áhrif kyrr­setn­ingar MAX véla á rekstur félags­ins. Þá gerir félagið ráð fyrir betri afkomu á fjórða árs­fjórð­ungi þessa árs en á sama fjórð­ungi í fyrra.“

Þriðji árs­fjórð­ungur er sá mik­il­væg­asti í starf­semi Icelandair. Hann nær yfir júlí, ágúst og sept­em­ber sem eru með stærstu mán­uðum árs­ins í ferða­þjón­ustu. Í fyrra nam hagn­aður

Icelandair eftir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) um 115 millj­ónir Banda­ríkja­dala, Það var umtals­vert lægri rekstr­ar­hagn­aður en Icelandair var með á sama árs­fjórð­ungi árið 2017, þegar hann var 156 millj­ónir dala. Um var að ræða sam­drátt upp á 26 pró­sent.

Í til­kynn­ingu Icelandair segir að vel hafi gengið að draga úr áhrifum af kyrr­setn­ingu MAX vél­anna að und­an­förnu, auk þess sem umbætur í leiða­kerf­inu og bætt tekju­stýr­ing séu farin að skila félag­inu árangri.

Túlka má þessa stöðu sem varn­ar­sigur hjá Icelandair, enda aðstæður félags­ins krefj­andi og for­dæma­lausar, vegna kyrr­setn­ingar á hluta flota félags­ins, eins og Bogi Nils Bogason, for­stjóri, hefur lýst stöðu mála hjá félag­inu. Á síð­ustu tveimur árs­fjórð­ungum hefur félagið tapað um 11 millj­örðum króna, og er því upp­færð afkomu­spá veru­lega jákvæð tíð­indi fyrir félagið, þrátt fyrir áfram­hald­andi erf­ið­leika.

Mark­aðsvirði félags­ins var um 33 millj­arðar við lokun mark­aða á föstu­dag­inn, en eigið fé félags­ins nam um mitt ár nam 55 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár