Isavia afskrifaði 2,1 milljarð vegna WOW air

Isavia tap­aði miklu fyrri hluta árs­ins. Stærsta hluta taps­ins má rekja til nið­ur­færslu á kröfu á WOW air, sem fór í þrot í mars.

Isavia, fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins sem á og rekur meðal ann­ars Kefla­vík­ur­flug­völl, tap­aði rúm­lega 2,5 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Tap félags­ins fyrir skatta og fjár­magnsliði var 942 millj­ónir króna.

Ástæðan fyrir hinu mikla tapi er fyrst og síð­ast sú að fyr­ir­tækið færði niður kröfu sína á WOW air um tæp­lega 2,1 millj­arð króna. WOW air fór í þrot í lok mars síð­ast­lið­ins. 

Rekstr­ar­af­koma Isavia á fyrri hluta árs­ins 2018 var jákvæð upp á tæpa 1,6 millj­arða króna. Því er um að ræða við­snún­ing upp á 4,1 millj­arð króna milli ára.

Í til­kynn­ingu frá Isavia segir að þessa breyt­ingu megi „ einkum rekja til auk­innar nið­ur­færslu við­skiptakrafna upp á 2.054 millj­ónir króna, nei­kvæðra geng­is­á­hrifa vegna erlendra lána upp á 1.989 millj­ónir króna og minnk­andi tekna upp á 854 millj­ónir króna. Þrátt fyrir fækkun ferða­manna, einkum skiptifar­þega, varð ekki breyt­ing á mestu álags­tímunum á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þetta setti félag­inu þröngar skorður varð­andi nið­ur­skurð. Þá þótti félag­inu ekki fært annað en að fram­kvæma reikn­ings­halds­lega nið­ur­færslu á ríf­lega tveggja millj­arða kröfu vegna WOW air.“

Vélin kyrrsetta flogin á brott

Svein­björn Ind­riða­son, for­stjóri Isavia, segir að afkoman beri þess skýrt merki að WOW air hafi orðið gjald­þrota í mars. Ferða­mönnum sem fóru um Kefla­vík­ur­flug­völl fyrstu sex mán­uði þessa árs hafi fækkað um hátt í 900 þús­und, eða 20,3 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra.

Við þetta hafi bæst deilur vegna kyrr­setn­ingar á þotu sem WOW air hafði verið með í rekstri, en Isavia hafði kyrr­sett og ætlað sér að nota sem trygg­ingu fyrir greiðslu skulda félags­ins við sig. Svein­björn segir að ákvörðun Hér­aðs­dóms Reykja­ness um að fresta ekki rétt­ar­á­hrifum úrskurðar um afhend­ingu þot­unnar hafi komið í veg fyrir að kyrr­setn­ing­ar­málið færi eðli­lega leið í dóms­kerf­inu og gert það að verkum að vél­inni umræddu hafi nú verið flogið af landi brott. „Við teljum þá ákvörðun hér­aðs­dóm­ara ámæl­is­verða, en erum að leita leiða til að koma mál­inu á ný á æðra dóm­stig.“

WOW skuld sem jókst sífellt

Vandræði WOW air byrj­uðu fyrir alvöru á síð­asta ári og þá byrj­aði skuld flug­fé­lags­ins við Isavia að hlað­ast upp. Isavia og WOW air gerðu sam­komu­lag um það í lok sept­em­ber 2018, skömmu eftir að skulda­bréfa­út­boði í WOW air hafði verið lokið, hvernig félagið átti að greiða upp skuld sína við Kefla­vík­ur­flug­völl. Skuld WOW air við Isavia hafði vaxið hratt mán­uð­ina á undan, og stóð í rúm­lega millj­arði króna í lok júlí 2018. Þá hafði hún tvö­fald­ast á rúmum mán­uði. Hún end­aði í mun hærri upp­hæð.

Isavia taldi sig geta tryggt að skuldin feng­ist greidd með vegna þess að ákvæði loft­ferða­laga ættu að heim­ila fyr­ir­tæk­inu að kyrr­setja vél WOW air til að tryggja greiðslu gjalda sem væru gjald­fall­inn.

Þegar WOW air fór svo loks í þrot í lok mars var skuld félags­ins við Isavia vel yfir tveir millj­arðar króna. Vélin sem var kyrr­sett fyrir greiðslu þeirrar skuldar, og WOW air hafði haft til umráða, var hins vegar ekki í eigu WOW air heldur hafði félagið leigt hana. Eig­and­inn var Air Lease Corporation (ALC) og hann hafði engan áhuga á því að borga skuld WOW air til að losa vél­ina sína.

Deilur vegna þessa röt­uðu fyrir Hér­aðs­dóm Reykja­nes sem komst hann að þeirri nið­ur­stöðu að ALC þyrfti ekki að greiða allar þær skuldir WOW air gagn­vart Isavia sem safn­ast höfðu upp heldur ein­ungis þær skuldir sem tengd­ust beint þot­unni sem kyrr­sett var.

Þetta gerði það að verkum að Isavia þurfti að afskrifa kröfu vegna WOW air sem nam 2,8 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár