Losun vegna flugferða ráðuneytanna hátt í þúsund tonn í fyrra

Í loft­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins má finna aðgerðir um hvernig ráðu­neytin ætla að kolefn­is­jafna starf­semi sína. Þar á meðal hvernig draga megi úr losun vegna flug­ferða starfs­manna en þær eru 70 pró­sent af heild­ar­losun Stjórn­ar­ráðs­ins.

Loftlagsstefna Stjórnarráðsins um samdrátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og kolefnisjöfnun allra tíu ráðuneytanna og Rekstarfélags stjórnarráðsins var samþykkt í ríkisstjórn í gær. Stjórnarráðið hyggst draga úr losun sinni á koltvísýring um samtals 40 prósent fyrir árið 2030. Auk þess stefnir Stjórnarráðið á að hafa verið kolefnishlutlaust í meira en tíu ár árið 2030 og binda að auka meira CO2 en það losar. 

Í loftlagsstefnunni má finna greiningu á kolefnisfótspori Stjórnarráðsins og aðgerðir til draga úr því. Þar á meðal markmið um að draga úr flugferðum á vegum ráðuneytanna en losun koltvísýrings vegna flugferða starfsmanna, bæði innanlands og erlendis, var 963 tonn í fyrra.

Liður í að ná markmiðum Parísarsamningsins

[links]Í síð­ustu viku mælti Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, fyrir frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um loft­lags­mál á Alþingi. Í frum­varp­inu er lögð sú skylda á Stjórn­ar­ráð Íslands, stofn­anir rík­is­ins og fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eig­u ­rík­is­ins skuli að setja sér lofts­lags­stefnu. Verði frum­varpið að lögum þurfa rík­is­að­ilar að setja fram skil­greind mark­mið um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og kolefn­is­jöfnun við­kom­andi starf­semi í loft­lags­stefn­unni, auk aðgerða svo þeim mark­miðum verði náð.

Haustið 2018 kynnti rík­is­stjórnin aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 Aðgerða­á­ætl­unin er helsta tæki stjórn­valda til að tryggja að Ísland nái mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins til 2030 og mark­miði rík­is­stjórn­ar­innar um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40 pró­sent fyrir árið 2030 og ná kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2040. Lofts­lags­stefna Stjórn­ar­ráðs­ins er ein af aðgerðum rík­is­stjórn­ar­innar til að ná þessu mark­miði og er stefn­unni einnig ætlað að vera fyr­ir­mynd og hafa áhrif vítt og breitt um sam­fé­lagið.

Flug starfsmanna 70 prósent af heildarlosun Stjórnarráðsins

Í loft­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins eru birtir útreikn­ingar á kolefn­is­spori Stjórn­ar­ráðs­ins en sam­kvæmt þeim hefur flug starfs­manna ráðu­neyt­anna erlendis mestu lofts­lags­á­hrifin eða 67 pró­sent af heild­ar­losun ráðu­neyt­anna. Þar á eftir koma ferðir starfs­manna til og frá vinnu eða um 16 pró­sent af heild­ar­losun, akstur á vegum ráðu­neyta 7 pró­sent, losun frá mötu­neytum 5 pró­sent , flug starfs­manna inn­an­lands 3 pró­sent, losun vegna þess úrgangs sem til fellur 1 pró­sent og loks orku­notkun 1 pró­sent.

Heild­ar­losun Stjórn­ar­ráðs­ins var 1377 tonn árið 2018, þar af var losun vegna flug­ferða á vegum ráðu­neyt­anna og Rek­star­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins 963,4 tonn. Mest var losun Utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins eða alls 403 tonn af koltví­sýr­ing vegna flug­ferða í fyrra.

Vegna þess­arar gíf­ur­legu los­unar frá flug­ferðum starfs­manna ákvað Stjórn­ar­ráðið að veita því sér­staka athygli að finna leiðir til að draga úr losun vegna flugs án þess þó að setja alþjóð­legu sam­starfi og skuld­bind­ingum Íslands skorður.

Ætla koma upp fjarfundabúnaði í öllum ráðuneytum

Í stefn­unni segir að Ísland sé eyja og því sé flug nær eini ferða­kost­ur­inn en Stjórn­ar­ráðið telur að það leyn­ist tæki­færi til sam­dráttar með skipu­lagn­ingu og fjölgun fjar­funda. Því ætlar Stjórn­ar­ráðið að koma upp fjar­funda­bún­aði í öllum ráðu­neytum og setja sér mark­mið um að auka hlut­fall fjar­funda.

Jafn­framt segir í stefn­unni að gerð verði ítar­leg grein­ing á flug­ferðum ráðu­neyt­anna og grein­ing tæki­færa til að draga úr losun vegna flugs. Auk þess verði þróuð vef­lausn sem veitir upp­lýs­ingar um kolefn­is­spor mis­mun­andi flug­leiða og tengir los­un­ar­tölur úr flug­ferðum við mark­mið um sam­drátt í losun. Þannig á að fást nauð­syn­leg yfir­sýn yfir losun vegna flug­ferða sem er for­senda þess að geta dregið mark­visst úr henni.

Fyrir árið 2022 hefur Stjórn­ar­ráðið sett sér mark­mið um draga úr flugi starfs­manna inn­an­lands um 19 pró­sent og erlendis um 2 pró­sent.

Bjóða upp á rafhjól og óska eftir visthæfum leigubílum

Annað mark­mið í loft­lags­stefn­unni er draga úr losun vegna ferða starfs­manna til og frá vinnu um 21 pró­sent fyrir árið 2022. Því hefur nú þegar haf­ist handa við að koma upp hjóla­skýli og sturtu­að­stöðu fyrir starfs­menn í ráðu­neyt­unum. Jafn­framt verður hleðslu­stöðvum fyrir raf­bíla fjölgað við öll ráðu­neyti.

Enn fremur hyggst Stjórn­ar­ráðið draga úr losun vegna akst­urs á vegum ráðu­neyta um 30 pró­sent. Starfs­mönnum hefur þegar verið boðið afnot af raf­hjólum til reynslu og aðgang að deili­bíl. Þá verður bíla­floti Stjórn­ar­ráðs­ins end­ur­nýj­aður fyrir 2021 með það að mark­miði að ráð­herra og þjón­ustu­bílar verði án jarð­efna­elds­neytis. Auk þess mun Stjórn­ar­ráðið gera samn­inga við bíla­leigur um vist­hæfa bíla og jafn­framt verður óskað sér­stak­lega eftir vist­hæfum leigu­bílum.

Auk fyrr­greindra aðgerða verður komið á sér­stöku land­græðslu­svæði sem ráðu­neytin og stofn­anir geta nýtt fyrir kolefn­is­jöfnun. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, ítrek­aði í til­kynn­ingu um loft­lagstefn­una að það megi þó ekki gleyma að stóra verk­efnið sé að draga úr losun. „Það er mik­il­vægt að fyr­ir­tæki og stofn­anir kolefn­is­jafni starf­semi sína en við megum þó aldrei gleyma því að stóra verk­efnið er að draga úr losun. Gildi lofts­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins er ekki síst að styðja við við­leitni sem flestra til að draga úr losun og sóun og senda jákvæð skila­boð út í sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár