Öllum stofnunum og fyrirtækjum í ríkiseigu gert að kolefnisjafna starfsemi sína

Allar stofn­anir rík­is­ins, fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eigu rík­is­ins og Stjórn­ar­ráð­inu er skylt að setja sér loft­lags­stefnu og mark­visst vinna að því að kolefn­is­jafna starf­semi sína í nýju frum­varpi umhverf­is­ráð­herra.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, mælti í gær á Alþingi fyrir frum­varpi til laga um breyt­ingu á lögum um loft­lags­mál. Í frum­varp­inu er lögð sú skylda á Stjórn­ar­ráð Íslands, stofn­anir rík­is­ins og fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eigu rík­is­ins skuli að setja sér lofts­lags­stefnu.

Verði frum­varpið að lögum þurfa rík­is­að­ilar að setja fram skil­greind mark­mið um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og kolefn­is­jöfnun við­kom­andi starf­semi í loft­lags­stefn­unni, auk aðgerða svo þeim mark­miðum verði náð. Í loft­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins, sem verið er að leggja loka­hönd á, er meðal ann­ars gert ráð fyrir kolefn­is­jöfnun flug­ferða starfs­manna.

Loksins hafa loftlagsmálin fengið þann sess sem þeim ber

Í fram­sögu Guð­mundar Ingi á Alþingi í gær kom fram að frá því að lög um loft­lags­mál voru sett fyrir sjö árum hafi loft­lags­vand­inn vaxið og með­vit­und um hann stór­auk­ist. Aukin krafa sé nú gerð um við­brögð og aðgerðir á alþjóða­vísu, sem og í íslensku sam­fé­lagi. „ Margt hefur breyst og rík þörf er á að upp­færa lögin. Rík­is­stjórnin hefur sett lofts­lags­málin á odd­inn og mikil vinna á sér nú stað varð­andi þennan mála­flokk. Loksins hafa lofts­lags­málin fengið þann sess sem þeim ber,“ sagði Guð­mundur Ingi.

Í frum­varp­inu eru lagðar fram ýmsar breyt­ingar sem miða því að að ná mark­miðum Ísland í loft­lags­málum, þar á meðal um sam­drátt í losun til 2030 sam­kvæmt ákvæðum Par­ís­ar­samn­ings­ins, um kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2040 og um aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum og efldar rann­sóknir og vöktun.

Kolefnisjafna flugferðir starfsmanna

Guð­mundur Ingi sagði að það að skylda rík­is­að­ila til að setja sér lofts­lags­stefnu, líkt og gert er í frum­varp­inu, marki ákveðin þátta­skil og að sú skyldi muni hafa marg­feld­is­á­hrif hér á landi ef frum­varpið verði sam­þykkt. Hann telur að þetta muni ekki ein­ungis draga úr losun heldur felst gildið ekki síst í því for­dæmi sem Stjórn­ar­ráðið og aðrir opin­berir aðilar sýni með þessu.

Í loft­lags­stefnu Stjórn­ar­ráðs­ins, sem verið er að leggja loka­hönd á, er gert ráð fyrir því að ráðið kolefn­is­jafni starf­semi sína. Þar með talið er sú losun sem verður vegna flug­ferða starfs­manna Stjórna­ráðs­ins, jafnt innan lands sem utan. Í stefn­unni er auk þess gerð krafa á rík­is­stofn­anir um slíka kolefn­is­jöfnun. Þetta kemur fram í svari Guð­mundar Inga við fyr­ir­spurn Ara Trausta Guð­munds­sonar, þing­manns Vinstri Grænna um sam­göngu­samn­inga og kolefn­is­jöfnun vegna flug­ferða.

Í svari Guð­mundar kemur einnig fram að eitt þeirra mark­miða sem rík­is­að­ilar geta sett sér í lofts­lags­stefnum sínum sé að auka hlut­fall starfs­manna sem eru með sam­göngu­samn­inga, þar sem starfs­menn nýta sér almenn­ings­sam­göngur eða vist­vænan ferða­máta til að ferð­ast til og frá vinnu. Hann segir að það sé aftur á móti í höndum hvers og eins rík­is­að­ila að ákveða hvort boðið sé upp á slíka samn­inga fyrir starfs­menn en margir rík­is­að­ilar bjóða þegar upp á sam­göngu­samn­inga fyrir starfs­menn sína. Stjórn­ar­ráðið hyggst með sinni eigin lofts­lags­stefnu efla sam­göngu­samn­inga allra ráðu­neyta og sam­ræma þá.

Þá er gert ráð fyrir því í frum­vapr­inu að Umhverf­is­stofnun leið­beini rík­is­stofn­unum um gerð og fram­kvæmd lofts­lags­stefnu og að hún nái til starf­semi við­kom­andi aðila og los­unar sem teng­ist henni. Árlega skili síðan Umhverf­is­stofnun skýrslu til ráð­herra um árangur stofn­ana rík­is­ins og fyr­ir­tækja í meiri­hluta­eigu rík­is­ins.

Loftlagsráð fest í lög

Í frum­varp­inu er jafn­framt í fyrsta skipti kveðið á um Lofts­lags­ráð í lögum og tekið fram að ráðið sé sjálf­stætt og óhlut­drægt í störfum sínum. Lofts­lags­ráð hefur þegar hafið störf og er skipað full­trúum atvinnu­lífs, sveit­ar­fé­laga, umhverf­is­sam­taka og háskóla­sam­fé­lags­ins. Ráðið á að leið­beina stjórn­völdum um gerð áætl­unar um hvernig megi aðlaga íslenskt sam­fé­lag óum­flýj­an­legum lofts­lags­breyt­ingum.

Jafn­framt er lagt til nýtt ákvæði í frum­varp­inu sem fjallar um aðlögun íslensks sam­fé­lags að lofts­lags­breyt­ingum. Verði frum­varpið að lögum verður fest í lög sú skylda ráð­herra að láta vinna áætlun um aðlögun íslensks sam­fé­lags að lofts­lags­breyt­ingum, á grund­velli bestu vís­inda­legrar þekk­ingar. Í frum­varp­inu er einnig ákvæði um skýrslu sem ráð­herra lætur vinna um áhrif lofts­lags­breyt­inga á nátt­úru­far og sam­fé­lag á Íslandi. Slíkar skýrslur hafa áður verið unnar að beiðni ráð­herra, en í ljósi fyr­ir­sjá­an­legra áhrifa og breyt­inga á nátt­úru­far og sam­fé­lag verður slík skýrslu­gerð nú lög­fest.

Önnur ákvæði frum­varps­ins varða breyt­ingar á gild­andi ákvæðum lag­anna, til dæmis varð­andi lofts­lags­sjóð. Samkvæmt frum­varp­inu munu fjár­veit­ingar til lofts­lags­mála munu ekki ein­göngu koma í gegn um lofts­lags­sjóð. Sjóð­ur­inn mun hins vegar gegna mik­il­vægu hlut­verki þar og fær skýr­ari leið­sögn varð­andi verk­efni sín með þeim til­lögum sem hér eru settar fram. Gert er ráð fyrir að sjóð­ur­inn taki til starfa innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár