WOW air studdi þjóðaratkvæðagreiðslur um Reykjavíkurflugvöll

WOW air og stétt­ar­fé­lag flug­manna félags­ins studdu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar með umsögn sem dag­sett er tíu dögum fyrir þrot flug­fé­lags­ins.

Áframhaldandi vera Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni hefur verið pólitískt bitbein árum saman.
Áfram­hald­andi vera Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni hefur verið póli­tískt bit­bein árum saman. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tíu dögum áður en að WOW air skil­aði inn flug­rekstr­ar­leyfi sínu, hætti starf­semi og hóf gjald­þrota­með­ferð skil­aði fyr­ir­tækið og stétt­ar­fé­lag flug­manna þess inn sam­eig­in­legri umsögn um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar.

[links]Í umsögn­inni, sem fram­kvæmda­stjóri flug­rekstr­ar­sviðs WOW, for­maður íslenska flug­manna­fé­lags­ins og for­maður Örygg­is­nefndar íslenska flug­manna­fé­lags­ins skrifa saman undir segir að þessir aðilar telji „aug­ljóst að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um þetta brýna sam­göngu­mál þurfi að fara fram sem fyrst svo nást megi var­an­legur friður um Reykja­vík­ur­flug­völl allra lands­manna.“

Umrædd þings­á­lykt­un­ar­til­laga var lögð fram af full­trúum fimm flokka á Alþingi í fyrra. Fyrsti flutn­ings­maður hennar er Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Auk hans eru sex aðrir þing­menn flokks­ins á meðal flutn­ings­manna henn­ar. Aðrir flutn­ings­menn koma úr Mið­flokki, Fram­sókn­ar­flokki, Vinstri grænum og Flokki fólks­ins. Sam­bæri­legar til­lögur voru fluttar haustið 2016 og vorið 2017 en fengu ekki braut­­ar­­gengi á þingi.

[adspot]Í grein­­ar­­gerð segir að mark­mið til­­lög­unnar sé að „ þjóðin fái tæki­­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­­­völl­­ur­inn og mið­­stöð inn­­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­­sjá­an­­legri fram­­tíð, m.a. með til­­liti til þjóð­hags­­legra hags­muna. Ljóst er að ríkir almanna­hags­munir fel­­ast í greiðum sam­­göngum innan lands og að stað­­setn­ing flug­­vall­­ar­ins, sem er mið­­stöð inn­­an­lands­flugs, hefur afar mikla þýð­ingu í því sam­hengi. Flug­­­völl­­ur­inn gegnir mjög mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir almenn­ing í land­inu vegna sjúkra- og neyð­­ar­flugs svo og sem vara­flug­­völl­­ur. Þá gegnir flug­­­völl­­ur­inn mjög mik­il­vægu hlut­verki í almanna­varna­­kerfi lands­ins.“

Telur sjálfstjórnarrétt skertan

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti umsögn borg­ar­lög­manns í um til­lög­una í síð­ustu viku. Hún var á þann veg að Reykja­vík­ur­borg legg­ist ein­dregið gegn því að til­lagan verði sam­þykkt, meðal ann­ars vegna þess að hún skerðir stjórn­skrár­varðan sjálf­stjórn­ar­rétt borg­ar­inn­ar, að slík laga­setn­ing gengi gegn skipu­lags­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins og væri í and­stöðu við óskráða meg­in­reglu stjórn­skip­unar um með­al­hóf. Sú umsögn bíður nú sam­þykki borg­ar­stjórnar. Þá hafa íbúa­sam­tök mið­borg­ar­innar sent inn umsögn sem viðrar sam­bæri­leg sjón­ar­mið og þau leggj­ast einnig gegn atkvæða­greiðsl­unni.

Flestir aðrir umsagn­ar­að­ilar sem skilað hafa inn umsögn, að uppi­stöðu sveit­ar­fé­lög á lands­byggð­inni, styðja þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una.

Flugmenn styðja þjóðaratkvæði

Það gera Félag íslenskra atvinnu­flug­manna og WOW air/Íslenska flug­manna­fé­lagið líka.

Í umsögn WOW air/Íslenska flug­manna­fé­lags­ins, sem er dag­sett 18. mars eða tíu dögum áður en WOW air fór í þrot, segir meðal ann­ars að það sé mat umsagn­ar­að­ila „að mál­efni Reykja­vík­ur­flug­vallar séu ekki einka­mál höf­uð­borg­ar­innar, heldur alls lands­ins og þess vegna er þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla þjóð­þrifa­mál. Sem dæmi á ríkið meiri­hluta lands­ins undir flug­vell­inum og af þeim sökum hlýtur þjóðin að þurfa hafa loka­orð um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar, en ekki bara Reykja­vík­ur­búar.“

Í umsögn Félags íslenskra atvinnu­flug­manna segir meðal ann­ars að það sé „mjög skilj­an­legt að fólk sjái ofsjónum yfir því hvað Reykja­vík­ur­flug­völlur tekur mikið pláss. Reykja­vík­ur­flug­völlur var upp­haf­lega hann­aður sem her­flug­völlur þar sem bygg­ingum var dreift um í hern­að­ar­legum til­gangi. Vegna þeirrar til­vist­ar­kreppu sem flug­völl­ur­inn hefur verið í er ásýnd og ástand bygg­ing­anna eins og raun ber vitni. Þar er fyrst og fremst um að kenna langvar­andi óvissu um fram­tíð vall­ar­ins. Þetta er í raun sú byggð sem mætti etv. þétta í Reykja­vík, byggðin sem til­heyrir Reykja­vík­ur­flug­velli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár