ÍFF óskar eftir rannsókn á hlunnindum til blaðamanna

Í ljósi „óvæg­innar“ umfjöll­unar um WOW air óskar Íslenska flug­mannafélagið, stéttarfélag flug­manna WOW air, eftir rann­sókn á hlunn­indum til blaða­manna frá helsta sam­keppn­is­að­ila WOW air.

Stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW air, ÍFF, óskar eftir rann­sókn á „hlunn­indum og sporslum“ til blaða­manna, svo sem fríð­miða­hlunn­indum frá helsta sam­keppn­is­að­ila WOW air. Stétt­ar­fé­lagið óskar eftir þess­ari rann­sókn í ljósi „óvæg­innar“ umfjöll­unar íslenskra frétta­miðla um WOW air að und­an­förnu. Þetta kemur fram í bréfi frá stétt­ar­fé­lag­inu sem stílað er á Hjálmar Jónsson, for­mann Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Vilja einnig láta kanna heimildaöflun íslenskra blaðamanna

Í bréf­inu segir að stétt­ar­fé­lagið óski eftir þess­ari rann­sókn með til­liti til gagn­sæis blaða­manna gagn­vart les­endum sínum. Í bréf­inu seg­ist stétt­ar­fé­lagið enn­fremur vilja láta kanna heim­ilda­öflun íslenskra blaða­manna um mál­efni WOW air hverju sinni. Það sé vegna þess að margir þeirra reiða sig meðal ann­ars á upp­lýs­ingar frá blogg­ara, búsettum í Svíþjóð, sem sé „sjálf­skip­aður helsti sér­fræð­ingur Íslands í flug­málum og oftar en ekki sé vitnað í „órök­studdar hug­leið­ingar hans.“[adspot]

Þar er lík­ast til átt við vef­inn Túristi.is sem haldið er úti af Krist­jáni Sig­ur­jóns­syni, Íslend­ingi sem býr í Svíþjóð, og hefur um margra ára skeið sér­hæft sig í umfjöllun um ferða­þjón­ustu á Íslandi.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár