Formaður BÍ: Fjarstæðukenndir órar hjá stjórn Íslenska flugmannafélagsins

Hjálmar Jónsson seg­ist hafa skiln­ing á því að starfs­menn WOW air hafi áhyggjur af störfum sínum en að rekja ein­hvern hluta af rekstr­ar­vanda fyr­ir­tæk­is­ins til umfjöll­unar blaða­manna sé að fara í geit­ar­hús að leita ullar.

Hjálmar Jónsson
Hjálmar Jónsson Mynd: Kjarninn.

Hjálmar Jónsson, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, segir að ekki þurfi annað en horfa til umfjöll­unar blaða­manna um Icelandair og erf­ið­leika þess félags, sam­keppn­is­að­ila WOW, til að sjá hversu fjar­stæðu­kenndir órar séu á ferð­inni í stjórn Íslenska flug­manna­fé­lags­ins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá for­mann­inum sem birt er á vef BÍ.

[links]Stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW a­ir, ÍFF, hefur óskað eftir rann­sókn á „hlunn­indum og sporsl­um“ til­ ­blaða­manna, svo sem fríð­miða­hlunn­indum frá helsta sam­keppn­is­að­ila WOW a­ir. Stétt­ar­fé­lagið óskar eftir þess­ari rann­sókn í ljósi „óvæg­inn­ar“ umfjöll­unar íslenskra frétta­miðla um WOW air að und­an­förnu.

„Það er ábyrgð blaða­manna að fjalla á gagn­rýnin hátt um mik­il­væg fyr­ir­tæki í íslensku efna­hags­lífi, að ekki sé talað um flug­fé­lög sem starfa á við­kvæmum neyt­enda­mark­aði. Það er skuld­bind­ing blaða­manna gagn­vart íslenskum almenn­ingi. Ég hef skiln­ing á því að starfs­menn WOW air hafi áhyggjur af störfum sínum, en að rekja ein­hvern hluta af rekstr­ar­vanda fyr­ir­tæk­is­ins til umfjöll­unar blaða­manna er að fara í geit­ar­hús að leita ullar,“ segir Hjálmar í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár