Sjálfstæðisflokkur þríklofinn gagnvart þjóðaratkvæði um Reykjavíkurflugvöll

Greidd voru atkvæði um umsögn borg­ar­lög­manns um að leggj­ast gegn þjóð­ar­at­kvæði um Reykja­vík­ur­flug­völl í borg­ar­ráði í gær. Einn borg­ar­ráðs­maður Sjálf­stæð­is­flokks studdi umsögn­ina, annar var á móti og þriðji sat hjá.

Hildur Björnsdóttir, sem sat í öðru sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Eyþór Arnalds, oddviti flokksins, greiddu atkvæði með mismunandi hætti.
Hildur Björns­dóttir, sem sat í öðru sæti á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, og Eyþór Arnalds, odd­viti flokks­ins, greiddu atkvæði með mis­mun­andi hætti. Mynd: Facebook-síða Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík

Á borg­ar­ráðs­fundi í gær var lögð fram umsögn borg­ar­lög­manns um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem lögð hefur verið fram á Alþingi um um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar. Flutn­ings­menn þeirrar til­lögu á Alþingi koma úr fimm stjórn­mála­flokkum og fyrstu flutn­ings­maður hennar er Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Auk hans eru sex aðrir þing­menn flokks­ins á meðal flutn­ings­manna hennar.

Umsögn stað­geng­ils borg­ar­lög­manns í mál­inu var á þann veg að Reykja­vík­ur­borg legg­ist ein­dregið gegn því að til­lagan verði sam­þykkt, meðal ann­ars vegna þess að hún skerðir stjórn­skrár­varðan sjálf­stjórn­ar­rétt borg­ar­innar, að slík laga­setn­ing gengi gegn skipu­lags­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins og væri í and­stöðu við óskráða meg­in­reglu stjórn­skip­unar um með­al­hóf.

[adspot]Umsögnin var sam­þykkt með fimm atkvæðum í borg­ar­ráði, einn borg­ar­ráðs­maður sat hjá og einn greiddi atkvæði á móti. Hún mun nú fara til end­an­legrar stað­fest­ingar hjá borg­ar­stjórn. Fjögur þeirra atkvæða sem greidd voru með því að sam­þykkja umsögn­ina komu frá borg­ar­ráðs­mönnum sitj­andi meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Vinstri grænna og Pírata. Fimmta atkvæðið kom síðan frá Hildi Björns­dóttur, Sjálf­stæð­is­flokki. Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­inni, sat hjá við atkvæða­greiðsl­una en Marta Guð­jóns­dóttir, þriðji borg­ar­ráðs­maður Sjálf­stæð­is­flokks, greiddi atkvæði gegn sam­þykkt umsagn­ar­innar. Því var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík, þrí­klof­inn í afstöðu sinni gagn­vart umsögn um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um veru flug­vallar í Vatns­mýr­inni.

Ólíkar bókanir

Borg­ar­ráðs­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna lögðu fram sam­eig­in­lega bókun vegna máls­ins. Í henni segir að við­ræður um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar séu í góðum far­vegi milli rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar þar sem verið sé að kanna aðra kosti undir stað­setn­ingu inn­an­lands­flugs. „Það vekur því furðu að slík þings­á­lykt­un­ar­til­laga liggi fyrir þing­inu á meðan verið er að vinna í mál­inu. Und­ir­skriftir íbúa um allt land urðu til þess að nið­ur­lagn­ingu flug­vall­ar­ins var frestað. Nið­ur­staða Rögnu­nefnd­ar­innar var afdrátt­ar­laust að besta stað­setn­ingin væri í Hvassa­hrauni. Um langa hríð hefur það verið stefna Reykja­vík­ur­borgar að flug­völl­ur­inn víki úr Vatns­mýri og er það jafn­framt stefna þeirra flokka sem mynd­uðu meiri­hluta eftir kosn­ingar sl. vor. Stór flug­völlur í mið­borg er tíma­skekkja en betur færi á að hafa hann á eða við höf­uð­borg­ar­svæðið. Þá gengur þessi til­laga til þings­á­lykt­unar um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í ber­högg við ákvæði stjórn­ar­skrár­innar um að sveit­ar­fé­lög ráði sjálf mál­efnum sínum. Lög­gjaf­inn getur með engu móti ein­hliða sam­þykkt veru­lega skerð­ingu á stjórn­ar­skrár­vörðum rétti Reykja­vík­ur­borgar.“

Þrír áheyrn­ar­full­trúar eru í borg­ar­ráði, frá Sós­í­alista­flokki Íslands, Mið­flokknum og Flokki fólks­ins. Vigdís Hauks­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, lagði fram eigin bókun í mál­inu þar sem sagði meðal ann­ars að það væri mis­skiln­ingur að áfram­hald­andi vera flug­vall­ar­ins í Vatns­mýr­inni væri skipu­lags­mál í Reykja­vík. „Markmið til­lög­unnar er að lands­menn allir fái tæki­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­völl­ur­inn og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð, m.a. með til­liti til þjóð­hags­legra hags­muna. [...]Það skal áréttað hér að það er skoðun borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins að skipu­lags­vald þeirra sveit­ar­fé­laga sem hafa alþjóða­flug­velli verði fært til rík­is­ins.“

Fulltrúi flokks fólksins andvígur þingsályktunartillögu formanns

Marta Guð­jóns­dóttir lagði ein borg­ar­ráðs­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks fram sér­staka bókun þar sem hún minnti á að 70 þús­und manns hefðu skrifað undir í und­ir­skrifta­söfnun á vegum félags­ins Hjartað í Vatns­mýr­inni 2013, sem vildi að flug­völl­ur­inn yrði áfram þar sem hann er. „Meiri­hluti borg­ar­stjórnar virti þau sjón­ar­mið sem þar komu fram að vettugi og sóp­uðu und­ir­skrifta­söfn­un­inni undir teppi og hefur haldið áfram að fara gegn vilja meiri­hluta borg­ar­búa og lands­manna í þessu máli. Nú setur meiri­hlut­inn sig upp á móti þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið og leggur til að þjóðin fái ekki að segja álit sitt á mál­inu á lýð­ræð­is­legan hátt. Þessi fram­ganga er til marks um það að allt tal meiri­hlut­ans um íbúa­lýð­ræði og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð er mark­leysa. Það getur ekki talist rétt­læt­an­legt að ein­ungis 23 borg­ar­full­trúar taki end­an­lega ákvörðun í þessu mik­il­væga máli sem snertir ekki bara borg­ina heldur alla lands­byggð­ina.“

[adspot]Kolbrún Bald­urs­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, lagði einnig fram bókun þar sem sagði að flokk­ur­inn væri „and­vígur því að farið verði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Reykja­vík­ur­flug­völl, en áréttum að flug­völl­ur­inn verði í Vatns­mýr­inni þangað til að annað hent­ugra stæði finnst fyrir þennan nauð­syn­lega flug­völl fyrir alla lands­byggð­ina.“

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, er einn flutn­ings­manna til­lög­unnar um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýr­inni.

Sjúkra­hús við Hring­braut notað sem rök

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan sem lögð var fram í fyrra gerir ráð fyrir því að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vall­ar. Sam­bæri­legar til­lögur voru fluttar haustið 2016 og vorið 2017 en fengu ekki braut­ar­gengi á þingi.

Í grein­ar­gerð segir að mark­mið til­lög­unnar sé að „ þjóðin fái tæki­færi til þess að segja hug sinn um málið og hafa áhrif á það hvar flug­völl­ur­inn og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs verða í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð, m.a. með til­liti til þjóð­hags­legra hags­muna. Ljóst er að ríkir almanna­hags­munir fel­ast í greiðum sam­göngum innan lands og að stað­setn­ing flug­vall­ar­ins, sem er mið­stöð inn­an­lands­flugs, hefur afar mikla þýð­ingu í því sam­hengi. Flug­völl­ur­inn gegnir mjög mik­il­vægu örygg­is­hlut­verki fyrir almenn­ing í land­inu vegna sjúkra- og neyð­ar­flugs svo og sem vara­flug­völl­ur. Þá gegnir flug­völl­ur­inn mjög mik­il­vægu hlut­verki í almanna­varna­kerfi lands­ins.“

[adspot]Þá er sér­stak­lega til­tekið að stjórn­völd hafi markað þá opin­beru stefnu í heil­brigð­is­málum að aðeins verði byggt upp og rekið eitt hátækni­sjúkra­hús og það við Hring­braut í Reykja­vík, í næsta nágrenni við flug­völl­inn. „Greiðar sam­göngur milli flug­vallar og sjúkra­húss­ins eru því afar mik­il­væg­ar.“

Á að víkja í áföngum eftir 2022

Ekki hefur verið ein­hugur um hvort að mið­­stöð inn­­an­lands­flugs verði áfram í Vatns­­­mýr­inni í Reykja­vík eða verði færð ann­að. Ráð­andi öfl í Reykja­vík­­­ur­­borg hafa lengi viljað að flug­­­völl­­ur­inn verði færður svo hægt sé að byggja í Vatns­­­mýr­inni og þétta þar með höf­uð­­borg­ina. Um sé að ræða verð­­mætasta bygg­ing­­ar­landið innan marka hennar sem sé auk þess afar mik­il­vægt fyrir þróun henn­­ar.

Sam­­kvæmt sam­­göng­u­á­ætlun er gert ráð fyrir að flug­­­völl­­ur­inn verði þar sem hann er til 2022 en aðal­­­skipu­lag Reykja­vík­­­ur­­borgar gerir ráð fyrir að hann víki í áföngum eftir það ár. Sum­arið 2016 komst Hæst­i­­réttur Íslands að þeirri nið­­ur­­stöðu að íslenska ríkið þyrfti að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­­­ur­­borg um loka norð­aust­­­ur/suð­vest­­­ur­-flug­braut­inni, sem stundum hefur verið kölluð neyð­­­ar­braut­in, á Reykja­vík­­­ur­flug­velli.

Fyrsta þings­á­­lykt­un­­ar­til­lagan um þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðsl­una var lögð fram í kjöl­far­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár