Haftalosun til bjargar

Fjár­magns­höftin eru svo gott sem úr sög­unni með aflétt­ingu bindi­skyld­unnar fyrr í mán­uð­inum. Aukið frelsi krón­unnar eru góðar fréttir fyrir neyt­endur, en nú þegar hefur það stoppað af frek­ari vaxta­hækk­anir í bili.

Már Guðmundsson Seðlabankastjóri við losun gjaldeyrishaftanna árið 2017.
Már Guð­munds­son Seðla­banka­stjóri við losun gjald­eyr­is­haft­anna árið 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Seðla­bank­inn minnt­ist á „kafla­skil“ í til­kynn­ingu sinni um aflétt­ingu hinnar svoköll­uðu bindi­skyldu á mánu­dag­inn fyrir tveimur vikum síðan. Aðgerðin markar vissu­lega breytta tíma, en með henni eru fjár­magns­höftin sem sett voru á íslensku krón­una árið 2008 nær alveg losuð. Þótt bank­inn muni enn hlut­ast í fjár­magns­hreyf­ingum til og frá land­inu er þetta skref mik­il­vægt fyrir íslensku krón­una og hefur nú þegar haft mikil og góð áhrif á efna­hags­lífið.

Til varnar gegn spákaupmennsku

Þrátt fyrir að gjald­eyr­is­höft á íslenska neyt­endur, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði voru losuð fyrir tveimur árum síðan hefur Seðla­bank­inn hindrað frjálst flæði fjár­magns til lands­ins með svo­kall­aðri bindi­skyldu síðan árið 2016. Samkvæmt henni var erlendum fjár­festum gert að festa fimmt­ung af fjár­magni sínu hér til lengri tíma, en með því varð Ísland að óálit­legri kosti fyrir fjár­fest­ingar erlendis frá.

Margir úr fjár­mála­líf­inu hafa gagn­rýnt þessa reglu, þar á meðal Samtök Atvinnu­lífs­ins og Agnar Tómas Möller, annar stofn­enda GAMMA. Samkvæmt Agnari hefur til­vist hennar bein­línis leitt til hærri vaxta hér á landi vegna fjár­magns­skorts­ins sem hún skapar hér á landi.

Seðla­bank­inn hefur hins vegar sagt bindi­skyld­una vera nauð­syn­lega til að koma í veg fyrir óstöðuga krónu og vaxta­muna­við­skipti líkt og þau sem við sáum fyrir hrun. Gylfi Zoëga, hag­fræði­pró­fessor og full­trúi í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, sagði í við­tali við Stöð 2 í fyrra að bindi­skyldan stöðvi sókn í vaxta­muna­við­skipti, en án hennar væri ill­mögu­legt að vera með sjálf­stæðan gjald­miðil og hlúa að upp­bygg­ingu lífs­kjara á traustum grunni.

Samkvæmt til­kynn­ingu Seðla­bank­ans fyrr í mán­uð­inum hafa nú loks mynd­ast aðstæður til að afnema bindi­skyld­una. Þar sem raun­vextir á Íslandi séu nú orðnir sam­bæri­legir því sem ger­ist erlendis sé minni hætta á þeirri spá­kaup­mennsku sem fylgir vaxta­muna­við­skiptum og óstöð­ug­leika í gengi krón­unnar undir frjálsum fjár­magns­flutn­ingum.

Minnk­andi vaxta­munur milli Íslands og ann­arra landa sést vel þegar íslensk og banda­rísk skulda­bréf eru borin saman, en mun­ur­inn á ávöxt­un­ar­kröfu þeirra hefur snar­minnkað eftir að inn­flæð­is­höftin voru sett á í júní 2016. Muninn má sjá á mynd hér að ofan, en hann var upp á sitt minnsta í des­em­ber síð­ast­liðnum þegar Seðla­bank­inn til­kynnti afnám bindi­skyld­unnar.

Aldrei frjálst fjármagn undir krónu

Bindi­skyldan var ein af aðgerðum Seðla­bank­ans til að stuðla að fjár­mála­stöð­ug­leika eftir losun útflæð­is­haft­anna árið 2017, en sam­kvæmt bank­anum eru fjár­magns­höft til og frá land­inu svo gott sem úr sög­unni nú þegar hún er afnumin.

Hins vegar, þótt höftin séu farin að nafn­inu til, verða fjár­magns­flutn­ingar til og frá land­inu aldrei að fullu frjálsir svo lengi sem Íslend­ingar hafa krón­una í núver­andi mynd. Ásgeir Jónsson, Ásdís Krist­jáns­dóttir og Illugi Gunn­ars­son minn­ast á þetta í skýrslu sinni um fram­tíð íslenskrar pen­inga­stefnu, en þar segir að sjálf­stæð pen­inga­stefna sé aðeins mögu­leg ef ein­hver stjórn er á fjár­magns­hreyf­ingum lands­ins.

Þetta hefur Seðla­banka­stjóri líka sagt, en Seðla­bank­inn hefur útli­stað fjölda aðgerða sem hann gæti farið í eftir losun hafta. Þeirra á meðal eru inn­grip í gjald­eyr­is­mark­að­inn, tak­mörkun á útrás íslenskra banka og bann á lán í erlendum gjald­miðlum til þeirra sem hafa tekjur í krónum.

Samkvæmt bank­anum er nauð­syn­legt að hafa mögu­leika á að beita slíkum aðgerðum til þess að halda fjár­mála­stöð­ug­leika nú þegar íslenska krónan er svo gott sem hafta­laus og fylgir núver­andi pen­inga­stefnu.

Neytendur græða

Þrátt fyrir að hafa skapað stöð­ug­leika í gjald­eyr­is­mál­unum voru inn­flæð­is­höftin ekki ókeypis fyrir íslenska neyt­endur. Þar sem bindi­skyldan tor­veld­aði erlendum fjár­festum að binda fé sitt hér á landi leiddi hún til þess að gengi krón­unnar var veik­ara en það hefði ann­ars verið. Með veik­ara gengi hækkar verð á inn­fluttri vöru og þjón­ustu, en þannig sköp­uðu höftin verð­bólgu­þrýst­ing og minnk­uðu svig­rúm Seðla­bank­ans til vaxta­lækk­unar.

Afnám haft­anna eru því góðar fréttir fyrir Íslend­inga, en sam­hliða þeim hefur gengi krón­unnar styrkst umtals­vert og verð­bólgu­þrýst­ingur minnkað. Áhrif hafta­los­un­ar­innar eru greini­leg ef litið er til helstu við­skipta­mynta Íslands, en tvær stærstu styrk­ingar krón­unnar gagn­vart þeim á síð­ustu sex mán­uðum áttu sér stað ann­ars vegar þegar los­unin var til­kynnt í des­em­ber og hins vegar þegar bindi­skyldan var loks afnumin í byrjun mars.

Styrk­ing­una má sjá á mynd hér að ofan. Á síð­ustu tveimur vikum hefur krónan styrkst um rúm 3 pró­sent gagn­vart pundi, evru og Banda­ríkja­dal, en rúm tveggja vikna styrk­ing nam 4,6 pró­sentum eftir til­kynn­ingu um losun haft­anna síð­ast­lið­inn des­em­ber.

Mikilvægt mótvægi

Mars­mán­uður hefur sann­ar­lega ekki verið tíð­inda­lít­ill, en margt benti til þess að krónan gæti veikst nokkuð og verð­bólgu­vænt­ingar auk­ist. Þar ber fyrst að nefna ólgu á vinnu­mark­aði og verk­fallsund­ir­bún­ing, en hag­fræð­ingar hafa bent á að launa­hækk­anir umfram fram­leiðni­aukn­ingu leiði til verð­bólgu og geng­is­veik­ingu. Einnig hafa reglu­lega borist fréttir af ótraustri stöðu WOW air, en mögu­legt gjald­þrot fyr­ir­tæk­is­ins gæti leitt til snarprar geng­is­veik­ingar vegna sam­dráttar í ferða­þjón­ust­unni og til­heyr­andi verð­bólgu­skots.

Sömu sögu er að segja um nýlegar fréttir um loðnu­leysi, en sam­dráttur í sjáv­ar­út­veg­inum eykur hætt­una á geng­is­veik­ingu. Ofan á þetta allt ríkti svo mikil óvissa um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið í síð­ustu viku, en slíkar fréttir leiða alla jafna til veik­ara gengis þar sem erlendir fjár­festar draga gjarnan úr fjár­fest­ingum í löndum þar sem póli­tískur óstöð­ug­leiki ríkir.

Hins vegar, þvert á allar ofantaldar ástæður, styrkt­ist krónan um 3 pró­sent á meðan á öllu þessu stóð, auk þess sem verð­bólgu­vænt­ingar lækk­uðu úr 3,4 pró­sentum niður í 3 pró­sent. Á kynn­ing­ar­fundi Seðla­bank­ans fyrr í vik­unni sagði Már Guð­munds­son Seðla­banka­stjóri lækkun verð­bólgu­vænt­inga vera fyrst og fremst vegna geng­is­styrk­ing­ar­innar, en styrk­ingin sjálf skýrð­ist að stórum hluta af nýfjár­fest­ingum í íslensk skulda­bréf. Báðir þætt­irnir, sem eru afleið­ingar af losun inn­flæð­is­haft­anna, stuðl­uðu að því að Seðla­bank­inn kaus að halda vöxtum óbreyttum síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, þrátt fyrir mikla óvissu ann­ars staðar í hag­kerf­inu.

Ljóst er því að losun haft­anna hefur veitt óvissu­á­standi und­an­far­inna vikna mik­il­vægt mót­vægi þar sem áhrif þeirra hefur yfir­gnæft allar hugs­an­legar áhyggjur sem fólk kynni að hafa af verð­bólgu og gengi krón­unnar.

Er þetta nóg?

Hvort áhrif hafta­los­un­ar­innar muni vega nógu þungt til að halda verð­bólg­unni í skefjum í ár er enn óvíst. Hins vegar munu þau lík­lega hvetja til enn meiri fjár­fest­inga inn­an­lands á næstu miss­erum og minnka verð­bólgu­þrýst­ing. Ef Seðla­bank­inn er enn vel búinn til að grípa inn í ef ójafn­vægi mynd­ast á gjald­eyr­is­mark­aði munu íslenskir neyt­endur njóta góðs af auknu frelsi krón­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár