Enginn loðnukvóti gefinn út

Loðnan lætur ekki sjá sig. Tug­millj­arða gjald­eyr­is­tekjur fyrir þjóð­ar­búið í húfi.

Haf­rann­sókna­stofn­un (Hafró) mun ekki leggja til að afla­heim­ild­ir verði gefn­ar út fyr­ir loðnu að sinni.

Frá þessu er greint á sjáv­ar­út­vegsvef mbl.is, 200 mílum.

Nið­ur­staðan er þessi eftir að síð­asti loðnu­leit­ar­leið­angur Hafró skil­aði ekki árangri.

Mikli hags­muni eru í húfir fyrir þjóð­ar­búið og þær útgerðir sem stunda loðnu­veiðar, en sé mið tekið af árlegum gjald­eyr­is­tekjum vegna loðnu árið 2016, sem eru nýj­ustu töl­urnar á vef Hagstofu Íslands, þá námu þær 18,3 millj­örðum króna.

„Verk­efni þeirra skipa sem hafa verið í leit und­an­farn­ar vik­ur lauk í gær. Næstu skref, varð­andi hvort og þá hvernig verði farið í frek­ari leit, verða rædd á fundi með full­trú­um út­gerða á morg­un,“ seg­ir Þor­steinn Sig­urðs­son, sviðs­stjóri upp­sjáv­ar­líf­rík­is­sviðs hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, í sam­tali við 200 mílur.

Vanalegt er að loðnu­ver­tíð­inni sé að ljúka upp úr miðjum mars, segir Þor­steinn, og því er ólík­legt að það tak­ist að finna loðn­una í nægi­lega miklu magni úr þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár