Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun taka tímabundið að sér dómsmálaráðuneytið samhliða öðrum störfum í kjölfar afsagnar Sigríðar Á. Andersen. Hún er varaformaður Sjálfstæðisflokksins og gengir fyrir embætti ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Frá þessu er greint á vef RÚV.
[links]Þar segir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsmálaráðherra, hafi greint frá þessari niðurstöðu eftir að þingflokksfundi Sjálfstæðisflokks lauk rétt um hálf fjögur í dag. Framundan eru ráðherraskipti en þau fara fram á ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem hefjast klukkan 16 í dag.
Bjarni tók fram að um tímabundna ráðstöðun væri að ræða. Því má búast við frekari uppstokkun á ríkisstjórninni í nánustu framtíð, en sem stendur verður enginn nýr ráðherra skipaður í stað Sigríðar Á. Andersen sem sagði af sér embætti í gær.
[adspot]Bjarni sagði þá við fjölmiðla að hann bæri virðingu fyrir ákvörðun Sigríðar. Hann væri þeirrar skoðunar að annaðhvort myndi annar ráðherra í ríkisstjórninni gegna embætti dómsmálaráðherra, eftir að Sigríður hefur hætt sem ráðherra, eða að nýr dómsmálaráðherra kæmi úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Nú er ljóst, að minnsta kosti tímabundið, að Bjarni hefur valið fyrri kostinn og því mun ráðherrum í ríkisstjórn fækka um einn síðar í dag.
Þórdís Kolbrún er lögfræðingur að mennt og þekkir til í dómsmálaráðuneytinu eftir að hafa verið aðstoðarmaður Ólafar Nordal þegar hún var ráðherra þess málaflokks.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir