Verkfall Eflingar löglegt og hefst á morgun

Verkföll hefj­ast í fyrra­málið eftir að Félags­dómur dæmdi verk­falls­boðun Eflingar lög­mæta.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

Félags­dómur hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verk­fall Eflingar, sem á að hefj­ast á morgun, sé lög­legt. Frá þessu er greint á vef Vísis. Úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp klukkan 13 í dag.

Verkföll hefj­ast í fyrra­málið eftir að Félags­dómur dæmdi verk­falls­boðun Eflingar lög­mæta.

Í til­kynn­ingu frá Eflingu er nið­ur­stöð­unni fagnað. Þar er haft eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, að nið­ur­staðan sé frá­bær en að hún hafi ekki komið sér á óvart. „Ég er gríð­ar­lega þakk­lát Karli Ó. Karls­syni lög­manni okkar sem flutti málið af festu en vil líka þakka Magnúsi Norðdahl, for­manni kjör­stjórnar Eflingar og aðal­lög­fræð­ingi ASÍ, fyrir að hafa aðstoðað við okkur við að standa rétt að þess­ari atkvæða­greiðslu frá upp­hafi. Það er leitt að þurfa að leggja svona mikla orku í að verj­ast laga­klækjum, en verka­lýðs­hreyf­ingin á sem betur fer góða að,“ segir Sólveig Anna.

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Eflingar, segir að það sé að hans mati ekki jákvætt að not­ast við laga­klæki til að koma í veg fyrir að fólk geti nýtt lýð­ræð­is­leg rétt­indi sín. „Nið­ur­staða dóms­ins stað­festir þau rétt­indi. Ég held að allir sem kynntu sér grein­ar­gerðir okkar og SA í þessu máli hafi séð það í hendi sér að lít­ill fótur var fyrir mála­til­bún­aði SA,“ segir hann. 

Kröfðust þess að verkfallið yrði dæmt ólögmætt og að Efling greiddi sekt

Sam­tök atvinnu­lífs­ins höfð­uðu mál fyrir Félags­dómi gegn Efl­ingu og kröfð­ust þess að boðað verk­fall 8. mars næst­kom­andi yrði dæmt ólög­mætt. Þess var einnig kraf­ist að Efl­ing yrði dæmt til greiðslu sektar í rík­is­sjóð vegna brota á lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deil­ur.

Í til­kynn­ingu sem Samtök atvinnu­lífs­ins sendu frá sér vegna þessa sagði að þau teldu „atkvæða­greiðslu Efl­ingar hafa verið and­stæða lögum enda verði vinnu­stöðv­un, sem ein­ungis sé ætlað að ná til ákveð­ins hóps félags­manna, ein­ungis borin undir þá félags­menn sem vinnu­stöðvun er ætlað að taka til. Einnig er vísað til þess að atkvæða­greiðsla Efl­ingar hafi ekki verið póst­at­kvæða­greiðsla í skiln­ingi laga enda var atkvæða að mestu aflað með kjör­fundum fyrir utan ein­staka vinnu­staði. Þegar atkvæði eru greidd á kjör­fundi þurfa a.m.k. 20% félags­manna á atkvæða­skrá að taka þátt í atkvæða­greiðslu.“

Nú hefur Félags­dómur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verk­fallið sé lög­legt. Hrein­gern­ing­ar­fólk á hót­elum fer því í eins dags verk­fall á morgun að óbreyttu.

Félags­menn Efl­ingar sam­þykktu boðun verk­falls­ins með yf­ir­gnæf­andi meiri­hluta greiddra atkvæða. Af 862 greiddum atkvæðum voru 769 sem sam­þykktu boð­un­ina, 67 greiddu atkvæði gegn og 26 tóku ekki afstöðu. Ver­falls­boð­unin var því sam­þykkt með 89 pró­sent atkvæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár