Indigo slítur viðræðum við WOW – Viðræður hafnar við Icelandair

Tilkynnt var um það í kvöld að Indigo Partners hafi slitið við­ræðum sínum um aðkomu að rekstri WOW air. Viðræður eru hafnar við Icelandair í stað­inn.

Indigo Partners hefur slitið við­ræðum sínum við WOW air. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem flug­fé­lagið birti á fjár­festa­síðu sinni í kvöld.

Þar kemur einnig fram að við­ræður séu hafnar milli WOW air og Icelandair Group og að stefnt sé að því að þeim við­ræðum ljúki fyrir næst­kom­andi mánu­dag, 25. mars.

[links]Í til­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi frá sér til Kaup­hallar Íslands í kvöld segir að í kjöl­far til­kynn­ingar frá WOW air um slit við­ræðna við Indigo Partners hafi stjórn Icelandair Group sam­þykkt að hefja við­ræður við WOW air um aðkomu að rekstri félags­ins. „Ef af verður mun aðkoman byggja á sjón­ar­miði sam­keppn­is­réttar um fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Við­ræð­urnar fara fram í sam­ráði við stjórn­völd.“

Rík­is­stjórn Íslands sendi frá sér til­kynn­ingu vegna máls­ins í kvöld. Þar sagði: „Stjórn­völd hafa síð­asta árið fylgst með erf­ið­leikum í alþjóð­legum flug­rekstri og sam­keppn­is­stöðu íslenskra flug­fé­laga í því ljósi. Eigendur WOW air hafa um nokk­urra mán­aða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félags­ins og hafa átt við­ræður við fjár­festa, flug­rek­endur og aðra hag­hafa. Hingað til hafa þær við­ræður ekki skilað þeim árangri sem eig­andi félags­ins stefndi að. Rík­is­stjórnin mun áfram fylgj­ast grannt með fram­vind­unni og bindur vonir við að við­ræður félag­anna muni skila far­sælli nið­ur­stöðu.“

[adspot]WOW air hefur verið á barmi falls mán­uðum sam­an, eins og fjallað hefur verið í frétta­skýr­ingum a vef Kjarn­ans og í öðrum fjöl­miðl­um, en ljóst er að félagið þarf á veru­legri fjár­inn­spýt­ingu að halda til að geta haldið lífi. Kjarninn greindi frá því fyrr í kvöld að við­ræður við banda­ríska félagið Indigo Partners, sem staðið hafa yfir í nokkra mán­uði, væru ólík­legar til að skila sér í fjár­fest­ingu. Það hefur nú verið stað­fest.

Frétta­blaðið greindi frá því í gær að WOW air hefði óskað eftir rík­is­á­byrgð á lána­fyr­ir­greiðslu frá Arion banka til að tryggja rekst­ur­inn til skemmri tíma. Rætt hafi verið óform­lega um hug­myndir flug­fé­lags­ins en afar ósenni­legt er talið að stjórn­völd muni ljá máls á þeim, að því er fram kom í frétt Frétta­blaðs­ins. 

Þetta er ekki í fyrsta sinn frá því að rús­sí­ban­areið WOW air hófst fyrir alvöru síð­sum­ars í fyrra að félagið fer í samn­ings­við­ræður við Icelandair. Fyrstu helg­ina í nóv­em­ber var vandi WOW air orð­inn þannig að ekki var við unað. Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, leit­aði þá til Icelandair og bað þá um að kaupa WOW air. Kaup­samn­ingur, með fjöl­mörgum fyr­ir­vörum, var und­ir­rit­aður 5. nóv­em­ber. Uppgefið kaup­verð, sem átti að greiða með hlutum í Icelandair, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaup­in. Það gat þó lækkað ef áreið­an­leika­könnun sýndi aðra stöðu en gengið var út frá, sem varð nið­ur­stað­an.

29. nóv­em­ber 2018 var birt til­kynn­ing um að Icelandair væri hætt við kaupin. Grein­ingar og áreið­an­leikak­ann­anir sem Icelandair hafði látið fram­kvæma vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa á WOW air höfðu ein­fald­lega leitt í ljós að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins.

Helstu for­sendur kaup­samn­ings Icelandair WOW air voru þær að sam­komu­lag myndi nást við leigu­sala WOW air, að stað­fest­ing myndi fást á því að for­gangs­réttur flug­manna myndi ekki eiga við um flug­menn WOW air og að sam­komu­lag myndi nást við skulda­bréfa­eig­endur WOW air. Ekk­ert af þessu var leitt til lykta áður en að ákveðið var að hætta við kaup­in. Þá var sér­stakur fyr­ir­vari um nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­un­ar, sem Deloitte og Logs fram­kvæmdu. Það grunn­mat liggur fyrir en er trún­að­ar­mál en í kynn­ing­unni segir að „fyrstu nið­ur­stöður gáfu til kynna meiri fjár­þörf en gert var ráð fyrir auk ann­arra atriða.“

Sama dag og Icelandair hætti við kaupin þá var til­kynnt um að banda­ríska félagið Indigo Partners hefði náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu í WOW air. Þær við­ræður hafa staðið yfir síðan með ýmsum sveiflum, en er nú form­lega lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár