Áreiðanleikakönnun gaf til kynna að fjárþörf WOW air væri meiri

Grein­ingar og áreið­an­leikakann­anir sem gerðar voru á stöðu WOW air sýndu að þær for­sendur sem gerðar voru í kaup­samn­ingi Icelandair stóð­ust ekki. Sam­komu­lag við kröfu­hafa og leigu­sala lá ekki fyrir og fjár­þörf WOW air var meiri en gert var ráð fyrir.

Grein­ingar og áreið­an­leikakann­anir sem Icelandair Group lét fram­kvæma vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa á WOW air leiddu í ljós að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins. Þetta kemur fram í kynn­ingu sem farið var yfir á hlut­hafa­fundi Icelandair Group í dag, 30. nóv­em­ber, og birt hefur verið í til­kynn­inga­kerfi Kaup­hallar Íslands.

[links]Helstu for­sendur kaup­samn­ings Icelandair Group á WOW air, sem nú hefur verið fallið frá, voru þær að sam­komu­lag myndi nást við leigu­sala WOW air, að stað­fest­ing myndi fá á því að for­gangs­réttur flug­manna myndi ekki eiga við um flug­menn WOW air og að sam­komu­lag myndi nást við skulda­bréfa­eig­endur WOW air. Ekkert af þessu var leitt til lykta áður en að ákveðið var að hætta við kaupin. Þá var sér­stakur fyr­ir­vari um nið­ur­stöðu áreið­an­leika­könn­unar, sem Deloitte og Logs fram­kvæmdu. Það grunn­mat liggur fyrir en er trún­að­ar­mál en í kynn­ing­unni segir að „fyrstu nið­ur­stöður gáfu til kynna meiri fjár­þörf en gert var ráð fyrir auk ann­arra atriða.“

[adspot]Að síð­ustu þurfti sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir kaup­unum og sam­þykki hlut­hafa­fundar Icelandair. Á þá fyr­ir­vara reyndi eðli­ega ekki þar sem fallið var frá kaup­unum í gær­morgun.

Viðskiptin stóðust ekki forsendur

Í kynn­ing­unni er einnig farið yfir mögu­leg sam­legð­ar­á­hrif af því að kaupa WOW air. Þau voru sam­þætt­ing leiða­kerfa, aukin hag­ræð­ing í flug­valla­þjón­ustu, umsjón flug­flota og við­haldi og minni yfir­bygg­ing ásamt sam­eig­in­legri sölu- og mark­aðs­starf­semi.

Auk áreið­an­leka­könn­unar voru fram­kvæmdar ýmsar grein­ingar. Í þeim meðal ann­ars að fram­kvæma grunn­mat á sjóðs­streymi WOW air til loka maí 2019. Sjóðs­streym­is­á­ætl­unin var fram­kvæmd af Íslands­banka. Seabury, sér­hæfður flug­rekstr­ar­ráð­gjafi, útbjó auk þess við­skipta­á­ætlun sam­ein­aðs félags og Kunde&Co fram­kvæmdi vöru­merkja­grein­ingu. Loks greindi Icelandair sjálft flota WOW air, leiða­kerfi og mögu­leg sam­legð­ar­á­hrif.

Sam­an­dregið þá leiddi þessi vinna í ljós að að við­skiptin stóð­ust ekki þær for­sendur sem gerðar voru við und­ir­ritun kaup­samn­ings­ins. Uppgefið kaup­verð á WOW air , sem átti að greiða með hlutum í Icelandair, var um tveir millj­arðar króna miðað gengi Icelandair þegar til­kynnt var um kaupin. Það gat þó lækkað ef áreið­an­leika­könnun sýndi aðra stöðu en gengið var út frá, sem varð nið­ur­staðan.

Ljóst var að áhyggjur voru farnar látnar á sér kræla á meðal þeirra sem áttu í við­skiptum við WOW air. Í vik­unni þurfti félagið til að mynda að skila fjórum Airbus vélum til leigu­sala þeirra. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans var það skýrt merki um að ótti var til staðar við það að WOW air myndi fara í greiðslu­þrot sem gæti leitt til þess að flug­vellir gætu kyrr­sett vélar félags­ins vegna van­gold­ina lend­ing­ar­gjalda.

Indigo kemur til sögunnar

Til að fá sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir sam­runa Icelandair og WOW air lá fyrir að þau kaup þyrftu að vera eini mögu­leik­inn í stöð­unni. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans fóru við­ræður við eft­ir­litið fram á þeim grund­velli að WOW air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæti.

[adspot]Það kom því veru­lega á óvart þegar Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, til­kynnti það á starfs­manna­fundi í gær­morgun að félagið ætti í við­ræðum við annan fjár­sterkan aðila um fjár­fest­ingu í WOW air.

Í gær­kvöldi, tólf tímum eftir að greint hafði verið frá því að Icelandair væri hætt við kaupin, var svo greint frá því að Indigo Partners og WOW air hafa náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu þess fyrr­nefnda í WOW air.

Í til­kynn­ingu sagði Bill Franke, einn eig­anda Indigo (Manag­ing Partner), að Skúli Mog­en­sen, eig­andi og for­stjóri WOW air, hafi náð miklum árangri við að byggja upp WOW air og að hann hlakki til sam­starfs við starfs­fólk félags­ins. Þar kom einnig fram að Skúli yrði áfram meiri­hluta­eig­andi í WOW air en engar sér­tækar upp­lýs­ingar um hvað fælist í fjár­fest­ing­unni voru birtar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár