Indigo Partners og WOW air ná samkomulagi um fjárfestingu

Í til­kynn­ingu segir að félögin hafi náð bráða­birgða­sam­komu­lagi.

Indigo Partners og WOW air hafa náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu þess fyrr­nefnda í WOW air, sam­kvæmt til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ingu segir Bill Franke, einn eig­anda Indigo (Managing Partner), að Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW air, hafi náð miklum árangri við að byggja upp WOW air og að hann hlakki til sam­starfs við starfs­fólk félags­ins.

Eins og greint var frá í morgun þá féll Icelandair frá kaupum á WOW air, og lét for­stjóri Icelandair, Bogi Nils Bogason, hafa eftir sér að áhættan í kaup­unum hefði reynst meiri en reiknað hafði verið með, og því hefði verið ákveðið að hætta við kaupin.

Indigo Partners er meðal ann­ars meðal eig­enda flug­fé­lags­ins Wizz Air, sem flýgur til og frá Íslandi, og hefur verið með vax­andi umsvif hér á landi und­an­farin ár. Félagið var stofnað árið 2003, af því er segir í til­kynn­ingu, og hefur mikla reynslu af fjár­fest­ingum í flug­iðn­aði. Félagið er stórt á alþjóð­legan mæli­kvarða, og hefur náð miklum árangri í fjár­fest­ingum sínum flug­iðn­aði.

Und­an­farnar vikur og mán­uði hafa stjórn­endur WOW air og for­stjóri og eig­andi félags­ins, Skúli Mogensen, reynt að fjár­magna félagið til lengri tíma, en fjár­hagur félags­ins hefur versnað til muna á skömmum tíma, að því er Skúli nefndi sjálfur í bréfi til skulda­bréfa­eig­enda.

Versn­andi ytri og innri aðstæður leiddu til þess að félagið stóð verr en þegar það fór í skulda­bréfa­út­boð, og því er staða félags­ins þrengri nú.

Höf­uð­stöðvar Indigo eru í Phoenix í Arizona í Banda­ríkj­unum.

Skúli Mogensen seg­ist í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu félag­anna hlakka til sam­starfs­ins, sem verði til góða fyrir starfs­fólk og far­þega félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár