Flugiðnaðurinn samofinn hagsmunum ríkisins

Rekstr­ar­vandi WOW air hefur lýst upp þá stöðu sem flug­fé­lögin eru í, þegar kemur að kerf­is­lægt mik­il­vægum geira. Flug­fé­lögin eru of stór til að falla. Og svipað má segja um flug­véla­fram­leið­endur. Vandi Boeing sýnir þetta glögg­lega.

Flug­iðn­að­ur­inn á Íslandi er að miklu leyti hjá íslenska rík­inu vegna þess að það á flug­vell­ina og þar á meðal Kefla­vík­ur­flug­völl, þar sem yfir 98 pró­sent erlendra ferða­manna fara um til að kom­ast inn í landið.

Eftir mikið vaxt­ar­skeið í flug­iðn­aði á Íslandi - ekki síst eftir ævin­týra­legan vöxt WOW air og einnig vöxt Icelandair - þá er komin upp staða sem ein­kenn­ist meira af varn­ar­leik en sókn­ar­leik.

Fjöldi erlendra ferða­manna fór úr 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir í fyrra. Þessi vöxtur hafði mikil áhrif á íslenskan efna­hag, eins og alkunna er, og kynnti undir nær for­dæma­lausu hag­vaxt­ar­skeiði í sögu lands­ins, eftir erf­ið­leika í kjöl­far hruns­ins.

30 flugfélög

Fyrir 350 þús­und manna eyju eins og Ísland er svona vöxtur í inn­spýt­ingu erlends gjald­eyris veru­lega mikil breyt­ing, eins og oft hefur verið bent á. Gjald­eyr­is­tekjur íslenskrar ferða­þjón­ustu námu yfir 500 millj­örðum í fyrra, og er ferða­þjón­usta nú orðin lang­sam­lega umfangs­mesti geir­inn í íslensku atvinnu­lífi.

Kerf­is­lægt mik­il­vægi flug­iðn­aðar fyrir hag­kerfið hefur þannig auk­ist veru­lega frá því sem var, en í fyrra flugu 30 flug­fé­lög um Kefla­vík­ur­flug­völl til 100 áfanga­staða. Hlutur Icelandair og WOW air er þó stærstur og mik­il­vægastur, þegar kemur að flugi allan árs­ins hring og tíðni fluga til og frá land­inu.

Þessi merki­lega staða hefur verið til umfjöll­unar frá því í haust, og var sér­stak­lega fjallað um þessa vax­andi kerf­is­á­hættu í umfjöllun Kjarnans í haust undir fyr­ir­sög­inni: Hættu­á­stand: Of stór til að falla.

Þetta mikla vægi flug­iðn­aðar í þjóð­ar­bú­skapnum sést ekki síst á rekstr­ar­tölum Isavia, en aðal­fundur félags­ins fór fram í dag. Hagnaður félags­ins nam 4,2 millj­örðum króna og eigið féð var 35,3 millj­arðar. Heild­ar­eignir félags­ins eru bók­færðar á tæp­lega 80 millj­arða og hafa farið vax­andi.

Í máli Ingi­mundar Sig­ur­páls­son, frá­far­andi stjórn­ar­for­manns, kom fram að áfram­hald­andi upp­bygg­ing á vell­inum sé nauð­syn­leg til að mæta þróun í flug­starf­semi og und­ir­búa vöxt til fram­tíðar litið. Orri Hauksson kom nýr inn í stjórn­ina, og tók við stjórn­ar­for­mennsku, en aðrir í stjórn eru Eva Bald­urs­dóttir, Nanna Gunn­laugs­dóttir, Matthías Imsland og Valdimar Hall­dórs­son.

Viðskiptakröfur vaxa

Athygli vekur að við­skipta­kröfur í rekstri Isavia námu 5,6 millj­örðum í lok árs í fyrra og juk­ust þær úr 4,7 millj­örðum króna árið áður. Um 43 pró­sent af þess­ari upp­hæð, 2,4 millj­arðar króna, er gjald­fall­inn, að því er fram kemur í árs­skýrslu félags­ins, og kom fram í máli Björns Óla Hákon­ar­sonar, for­stjóra, á aðal­fundi í dag.

Gera má ráð fyrir að stór hluti af þessum gjald­föllnu skuldum til­heyri WOW air, en Isavia hefur þó ekki stað­fest það og ekki WOW air heldur. Ekki var hægt að lesa þetta út úr fjár­festa­kynn­ingu sem lá til grund­vallar í skulda­bréfa­út­boði félags­ins síð­ast­liðið haust, þar sem engar slíkar skuldir voru til­teknar eða til­greindar nákvæm­lega.

Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar í flug­iðn­aði.

WOW air hefur verið á barmi falls mán­uðum saman, eins og fjallað hefur verið í frétta­skýr­ingum a vef Kjarnans og í öðrum fjöl­miðlum, en ljóst er að félagið þarf á veru­legri fjárinn­spýt­ingu að halda til að geta haldið lífi. Viðræður við banda­ríska félagið Indigo Partners eru ólík­legar til að skila sér í fjár­fest­ingu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, eins og mál standa nú, en Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri, hefur lítið gefið upp um við­ræð­urnar opin­ber­lega, umfram það sem komið hefur fram í stuttum til­kynn­ingum frá félag­inu.

Frétta­blaðið greindi frá því í gær að WOW air hefði óskað eftir rík­is­á­byrgð á lána­fyr­ir­greiðslu frá Arion banka til að tryggja rekst­ur­inn til skemmri tíma. Rætt hafi verið óform­lega um hug­myndir flug­fé­lags­ins en afar ósenni­legt er talið að stjórn­völd muni ljá máls á þeim, að því er fram kom í frétt Frétta­blaðs­ins.

Ríkisábyrgð í samkeppnisumhverfinu

Þessi staða á ekki að koma á óvart, sé horft til þess sam­keppn­isum­hverfis sem er í fjár­mála­þjón­ustu á Íslandi um þessar mundir. Íslands­banki og Lands­bank­inn eru báðir í eigu rík­is­ins og á rekstri þeirra hvílir rík­is­á­byrgð, ekki aðeins óbein eins og jafnan í banka­starf­semi, heldur bein í gegnum eign á hlutafé.

Báðir bank­arnir hafa lánað Icelandair pen­inga, og nú síð­ast greindi Morg­un­blaðið frá því, að Lands­bank­inn hefði lánað Icelandair 80 millj­ónir Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 10 millj­arða, til að end­ur­fjár­magna skuldir og styrkja rekst­ur­inn. Greint var frá lán­tök­unni í til­kynn­ingu til kaup­hallar, en í henni kom ekki fram hvaðan hún kom.

Aðrar ógnir eru þó fyrir hendi í rekstri flug­fé­lag­anna. Hjá Icelandair er vandi Boeing - vegna hörmu­legra flug­slysa í Indónesíu og Kenía þegar 737 Max 8 vélar félags­ins hröp­uðu - líka vandi Icelandair. Útlit er fyrir að Boeing muni ekki geta afhent þessa teg­und véla til við­skipta­vina mán­uðum saman og lík­legt að þetta muni leiða til stór­kost­legra vanda­mála í rekstri Boeing um nokk­urt skeið. Samtals dóu 346 í slys­unum, allir um borð í báðum flug­vél­unum.

Margfeldisáhrif af vanda Boeing

Það er ekki auð­velt fyrir flug­fé­lögin, sem voru búin að gera ráð fyrir að fá vélar frá Boeing afhentar, að útvega nýjar vélar. Mikil eft­ir­spurn er eftir vélum hjá helsta keppi­nautnum, Airbus, og erfitt að fá þar vélar. Eftir því sem bann við notkun á Max vélum Boeing er lengur í gildi, því erf­ið­ara verður fyrir flug­fé­lögin sem reiða sig á notkun þeirra að standa við þjón­ustu sína gagn­vart við­skipta­vinum.

Rekstur Icelandair hefur verið krefj­andi und­an­farin miss­eri en félagið tap­aði 6,8 millj­örðum króna á síð­asta árs­fjórð­ungi 2018. Heild­ar­skuldir félags­ins námu 992 millj­ónum Banda­ríkja­dala í lok árs í fyrra, eða um 110 millj­örðum króna. Eigið féð var 471 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 55 millj­örðum króna.

Eins og greint hefur verið frá á vef Kjarnans þá er vandi Boeing orð­inn veru­legur, en í umfjöll­unum Seattle Times und­an­farna mán­uði hefur komið fram, að mikil fram­leiðslu­pressa fyr­ir­tæk­is­ins hafi reynt veru­lega á inn­viði félags­ins. Rann­sóknir á slys­unum tveimur bein­ast nú að MCAS-kerfi í vél­unum sem miðar að því að koma í veg fyrir ofris, en sam­kvæmt umfjöllun Seattle Times hefur vinna við upp­færslu á kerf­inu miðað að því að dýpka gagna­grunna sem skynjarar MCAS-kerf­is­ins tengj­ast, svo að kerfið geti ekki farið í gang upp úr þurru með skelfi­legum afleið­ingum.

Ekki þarf að hafa mörg orð um hversu mikil alvara er í þessum málum, eftir tvö mann­skæð flug­slys á skömmum tíma, en John Hamilton, yfir­maður verk­fræði­deildar fyr­ir­tæk­is­ins, hefur meðal ann­ars verið lát­inn fara vegna rann­sókna á þessum málum. Meðal þess sem er verið að skoða, er hvort banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd hafi leyft Boeing að hafa óeðli­lega mikið um eft­ir­lit með vél­unum að segja. Varn­ar­mála­ráðu­neytið banda­ríska og alrík­is­lög­reglan FBI eru nú að rann­saka þessi mál.

Í gegnum 123 ára sögu Boeing hefur félagið oft gengið í gegnum erf­ið­leika. Samband fyr­ir­tæk­is­ins við yfir­völd í Banda­ríkj­unum hefur nær alla sögu fyr­ir­tæk­is­ins verið náið, sem sýnir sig ekki síst í nánu og miklu sam­starfi félags­ins þegar kemur að mál­efnum Banda­ríkja­hers. Boeing hefur alla tíð verið með hjartað í starf­semi sinni í Renton, á Seattle svæð­inu, og er með um 80 þús­und starfs­menn. Stærsta her­stöð Vest­ur­strandar Banda­ríkj­anna (Joint Base Lewis McChord) er einnig á svæð­inu, með um 56 þús­und stöðu­gildi allan árs­ins hring, en flug­her­inn er með umfangs­mikla starf­semi á sviði þró­unar í starfs­stöð­inni, þar sem kemur sér vel að hafa Boeing í næsta nágrenni. Hækkun á fjár­út­látum til hers­ins, skilar sér oftar en ekki í auknum verk­efnum hjá Boeing.

Þessir tveir vinnu­staðir eru stærstu vinnu­veit­endur Seattle svæð­is­ins, sem telur um 3,7 millj­ónir manna, og skáka þeir meðal ann­ars tækniris­unum Microsoft, með 45 þús­und manns í höf­uð­stöðvum, og Amazon, með 42 þús­und manns í höf­uð­stöðvum, á svæð­inu.

Vandi sem teygir sig til Íslands

Þessi mikli vandi Boeing er far­inn að teygja sig um allan heim, vegna vanda flug­fé­laga sem voru að gera ráð fyrir Max vélum í sínum leiða­kerfum, og er Icelandair dæmi um félag í þeirri stöðu.

WOW air hefur not­ast við Airbus vélar, og er því ekki að glíma við þennan vanda sem snýr að Boeing. Vel má vera að þessi staða gefi til­efni til að færa líf í við­ræður Icelandair og WOW air um sam­ein­ingu, eða kaup þess síð­ar­nefnda á WOW air, en ekk­ert hefur verið stað­fest um það af hálfu beggja félaga. Tíminn einn mun leiða í ljós hvernig leys­ist úr þess­ari krefj­andi stöðu sem íslenskur flug­iðn­aður er í, þessi miss­erin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár