Vond staða Boeing versnar

Fram­kvæmda­stjóri verk­fræðis­viðs Boeing hefur verið lát­inn fara. Mikill titr­ingur er innan fyr­ir­tæk­is­ins vegna rann­sóknar á flug­slysum í Indónesíu í októ­ber og Kenía fyrr í mán­uð­inum.

John Hamilton, fram­kvæmda­stjóri verk­fræðis­viðs Boeing, er hættur störfum og má rekja það til rann­sóknar á tveimur flug­slysum, í Indónesíu í októ­ber og Kenía fyrr í mán­uð­inum, sem leiddi til þess að allir um borð lét­ust í báðum til­vikum, sam­tals 346.

Eins og greint hefur verið frá þá hefur flug verið bannað á Boeing 737 Max vél­unum á meðan það er rann­sakað hvað olli því að vél­arar hröp­uðu skömmu eftir flug­tak. Það lét­ust 189 í slys­inu í Indónesíu en 157 í Kenía.

Spjótin bein­ast að hug­bún­aði í vél­unum, svoköll­uðu MCAS-kerfi, sem á að koma í veg fyrir ofris. Samkvæmt skrifum Seattle Times hefur upp­færsla á kerf­inu miðað að því að gera það örugg­ara, meðal ann­ars með því að hafa dýpri gagna­grunna að baki skynjara­kerf­inu, svo að það geti ekki farið í gang upp úr þurru og valdið slysum. Mikið er undir í þess­ari vinnu, eins og gefur að skilja.

Seattle Times hefur fjallað ítar­lega um stöðu mála hjá Boeing frá því fyrir slysin bæði, og meðal ann­ars sagt frá mik­illi fram­leiðslu­pressu svo félagið geti staðið við afhend­ingar á nýjum vélum til við­skipta­vina. Ljóst er að það verður mikið vanda­mál hjá félag­inu á meðan ekki hefur feng­ist botn í það hvað nákvæm­lega olli slys­unum.

Í slys­inu í Indónesíu náði auka­flug­maður á frí­vakt að koma í veg fyrir slys, sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg í dag, degi áður en sama vél hrap­aði með fyrr­greindum afleið­ingum, með því að slökkva á kerfi vél­ar­innar og taka sjálfur stjórn­ina og lenda vél­inni. Hann greindi flug­mála­yf­ir­völdum frá því að það væri eitt­hvað að vél­inni og að það þyrfti að skoða skynjara sem tengj­ast fyrr­nefndu MCAS-kerfi.

Í umfjöllun Seattle Times hefur komið fram, að blaðið sendi fyr­ir­spurnir til Boeing og flug­mála­yf­ir­valda í Banda­ríkj­unum, varð­andi upp­færslu á kerf­inu og hvort Boeing hefði fengið að hafa eft­ir­lit með eigin vinnu, til að geta staðið við fram­leiðslu­á­ætlun. Blaðið sagð­ist hafa heim­ildir fyrir því. Þetta var ell­efu dögum fyrir seinna slysið.

Í dag greindi það frá því að varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna, Pentagon, væri farið af stað með sjálf­stæða rann­sókn á því hvort vanda­mál­unum hjá Boeing hefði verið sópað undir teppið hjá banda­rískum flug­mála­yf­ir­völdum.

Banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd neit­uðu fyrst að banna flug á fyrr­nefndum vélum frá Boeing, en eftir að flest ríki og alþjóða­stofn­anir gerðu það, þá létu bæði Boeing og banda­rísk yfir­völd undan. Evr­ópu­sam­bandið ítrek­aði í dag að bannið yrði í gildi þar til öllum spurn­ingum hefði verið svarað.

Boeing er stærsti vinnu­veit­and­inn á Seattle svæð­inu með um 80 þús­und starfs­menn, en í fullum afköstum hefur fyr­ir­tækið verið að koma frá sér yfir 50 vélum á mán­uði til við­skipta­vina, und­an­farin miss­eri.

Í umfjöllun Reuters hefur komið fram að vanda­málin hjá Boeing, og bannið við notkun á 737 Max vél­unum, hafi leitt til mik­illa vanda­mála hjá mörgum flug­fé­lögum sem eigi erfitt með að halda áætl­unum sínum, þar sem erfitt er að fá nýjar vélar.

Airbus, sam­keppn­is­að­ili Boeing, getur ekki annað eft­isp­urn, og því hafa skap­ast aðstæður, þar sem flug­fé­lög hafa ein­fald­lega þurft að fella niður ferðir eða end­ur­skipu­leggja áætl­anir sínar mikið, með til­heyr­andi erf­ið­leikum fyrir við­skipta­vini og kostn­að­ar­aukn­ingu í rekstri.

Icelandair tók þrjár vélar úr notkun, en seg­ist hafa svig­rúm til skamms tíma til að mæta því með notkun á öðrum vélum í flota sínum. Til langs tíma miða hins vegar áætl­anir að því að fá nýjar 737 Max vélar frá Boeing.

Uppfært: 20:26. Banda­ríska alrík­is­lög­reglan FBI hefur einnig hafið rann­sókn á Boeing og sam­bandi þess við banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd, að því er Seattle Times greindi frá í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár