Icelandair hætt við að kaupa WOW air

Icelandair hefur fallið frá kaup­unum á WOW air.

Icelandair Group er hætt við að kaupa WOW air. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands. Þar segir: „Fallið hefur verið frá kaupum Icelandair Group á WOW air en kaup­samn­ingur var und­ir­rit­aður þann 5. nóv­em­ber sl. Þetta er sam­eig­in­leg nið­ur­staða beggja aðila.“

[links]Í til­kynn­ingu fyrr í vik­unni greindi Icelandair Group hf. frá því að ólík­legt væri að allir fyr­ir­varar í kaup­samn­ingi um kaup félags­ins á WOW air yrðu upp­fylltir fyrir hlut­hafa­fund félags­ins þann 30. nóv­em­ber. Í til­kynn­ing­unni í dag segir að staðan sé óbreytt hvað þetta varðar. „Því er ólík­legt að stjórn Icelandair Group geti mælt með því við hlut­hafa félags­ins að þeir sam­þykki kaup­samn­ing­inn. Þá hefur stjórn ekki í hyggju að leggja til við hlut­hafa­fund til­lögu um að fresta ákvarð­ana­töku um kaup­samn­ing­inn. Í ljósi þess­arar stöðu er það sam­eig­in­leg nið­ur­staða beggja aðila að falla frá fyrr­nefndum kaup­samn­ingi.

Hlut­hafa­fundur Icelandair Group verður hald­inn föstu­dag­inn 30. nóv­em­ber eins og áður hefur verið aug­lýst. Á fund­inum liggur fyrir til­laga um heim­ild stjórnar til að auka hlutafé Icelandair Group.“

[adspot]Bogi Nils Bogason, starf­andi for­stjóri Icelandair Group, segir að stjórn og stjórn­endur beggja félaga hafa unnið að þessu verk­efni af heilum hug. „Nið­ur­staðan er vissu­lega von­brigði. Stjórn­endum WOW air færi ég þakkir fyrir mjög gott sam­starf í þessu verk­efni síð­ustu vikur. Jafn­framt óskum við eig­endum og starfs­fólki félags­ins alls hins besta.“

Skúli Mogensen, for­stjóri og stofn­andi WOW air, segir að það hafi verið ljóst strax í upp­hafi að það var metn­að­ar­fullt verk­efni að klára alla fyr­ir­vara við kaup­samn­ing­inn á þetta skömmum tíma. „Við þökkum stjórn­endum Icelandair Group fyrir sam­starfið í þessu krefj­andi verk­efni og óskum sömu­leiðis stjórn­endum og starfs­fólki Icelandair Group alls hins besta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár