Segja tillögur ríkisstjórnarinnar engan veginn mæta kröfum verkalýðshreyfingarinnar

Mið­stjórn ASÍ lýsir veru­legum von­brigðum með þau áform um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem fjár­mála­ráð­herra kynnti í gær.

Miðstjórn ASÍ
Mið­stjórn ASÍ Mynd: ASÍ

Mið­stjórn ASÍ lýsir veru­legum von­brigðum með þau áform um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem fjár­mála­ráð­herra kynnti í gær. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu sem sam­bandið sendi frá sér í dag.

„Til­lög­urnar mæta engan veg­inn kröfum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um tekju­jöfn­unar- og tekju­öfl­un­ar­hlut­verk skatt­kerf­is­ins og geta að óbreyttu ekki orðið grund­völlur sátta í sam­fé­lag­inu. Til­lög­urnar byggja á því að létta skatt­byrði allra tekju­hópa og auka ráð­stöf­un­ar­tekjur lág­launa­fólks og banka­stjóra um sömu krónu­tölu. Stór hluti af því „svig­rúmi“ sem fjár­mála­ráð­herra telur til skatta­lækk­ana er þannig nýtt til að lækka skatta á tekju­hæstu hópana þvert gegn því sem kallað er eftir í sam­fé­lag­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Enn fremur kemur fram að engin áform sé að sjá um að auka eigi stuðn­ing við barna­fjöl­skyldur og end­ur­reisa vaxta­bóta­kerfið og full ástæða sé til að ótt­ast að stór hluti skatta­lækk­un­ar­innar verði tekin aftur með enn frek­ari tekju­skerð­ingum í barna- og vaxta­bóta­kerf­inu.

[links]„Stjórn­völd virð­ast ekki ætla að styrkja aðra tekju­stofna rík­is­ins sam­hliða breyt­ing­unni s.s. með upp­töku hátekju­skatts, auð­legð­ar­skatti, hækkun fjár­magnstekju­skatts eða afgjaldi fyrir auð­linda­nýt­ingu. Breyt­ingin mun því þýða að minna verður til ráð­stöf­unar til brýnna úrbóta, t.d. í vel­ferð­ar­kerf­inu og í sam­göngu­málum.

Launa­fólk mun aldrei sætta sig við skatt­kerf­is­breyt­ingar sem það borgar sjálft fyrir með veik­ara vel­ferð­ar­kerfi, verri innviðum og auknum nef­sköttum. Slík stefna hefur verið við­höfð um langt skeið og kemur alltaf verst niður á þeim tekju­lægstu. Launa­fólk vill sann­gjarnt skatt­kerfi sem eykur jöfnuð og fjár­magnar vel­ferð,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár