Stál í stál - Líkur á verkföllum hafa aukist

Útspili stjórn­valda í kjara­við­ræð­unum var illa tekið hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Eru verk­föll í kort­unum?

Útspili stjórn­valda inn í kjara­við­ræður, þar sem horft til þess að lækka skatt­byrði hjá lág­tekju­fólki, var ekki vel tekið hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Líkur á verk­föllum hafa auk­ist eftir útspilið, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, en tölu­verðar vondir voru bundnar við að útspil stjórn­valda myndi liðka fyrir við­ræðum og setja þær í það minnsta nær sáttaf­ar­vegi.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, sagði eftir að útspil stjórn­valda hafði verið kynnt, að nið­ur­staðan væri von­brigði, og hún liðk­aði ekki fyrir kjara­við­ræðum.

Samkvæmt aðgerð­unum lækkar skatt­byrði lág­tekju­fólks um 2 pró­sentu­stig verði fyr­ir­ætl­anir stjórn­valda um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sam­þykkt­ar, og verður til 32,94 pró­sent skatt­þrep. „Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá því í febr­úar 2018. Þær munu sér­stak­lega bæta stöðu kvenna, fólks á aldr­inum 18-24 ára, 25-34 ára, öryrkja, eldri borg­ara, þeim sem ekki eiga hús­næði og þeim sem þiggja hús­næð­is­stuðn­ing. Bætt verður við nýju neðsta skatt­þrepi og fjár­hæðum til lækk­unar skatta beint til lægri milli­tekju- og lág­tekju­hópa sam­kvæmt fyr­ir­ætl­unum um breyt­ingar í skatta­málum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í dag. Gert er ráð fyrir að tekju­á­hrif skatt­kerf­is­breyt­ing­anna nemi um 14,7 millj­örðum króna. Hækkun barna­bóta 2019 nemur 1,6 ma.kr. og hækkun per­sónu­af­sláttar umfram verð­lag 1,7 millj­arðar króna. Alls nema því til­lögur stjórn­valda í tekju­skatti og barna­bótum 18 millj­örðum króna,“ sagði í til­kynn­ingu frá stjórn­völd­um, þegar aðgerð­irnar voru kynntar. 

Það sem helst veldur von­brigðum innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar er að í aðgerðum stjórn­valda skuli birt­ast skatta­lækk­anir fyrir fólk með hærri tekjur einnig, en að mati verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefði átt að ein­blína á tekju­lægri hópa ein­göngu, og hafa til­lög­urnar meira afger­andi - fá fram meiri ráð­stöf­un­ar­tekjur hjá tekju­lægstu hóp­unum.

Á fundi samn­inga­nefndar ASÍ var ein­hugur í gær, um að til­lögur stjórn­valda væru ekki til þess fallnar að liðka fyrir kjara­við­ræð­unum, en nokkuð langt ber á milli aðila ennþá, þrátt fyrir mikla vinnu og við­ræður und­an­farnar vikur.

Næstu daga munu stétt­ar­fé­lögin, VR og Efling þar á meðal, und­ir­búa næstu skref, meðal ann­ars með fundum með félags­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár