BSRB: Skattatillögur ganga ekki nægilega langt í átt að jöfnuði

Tillögur stjórn­valda að breyt­ingum á skatt­kerf­inu sem kynntar voru í gær ganga ekki nægi­lega langt í átt að jöfn­uði og rétt­læti í sam­fé­lag­inu að mati for­manna­ráðs BSRB.

1. maí-ganga 2018
1. maí-ganga 2018 Mynd: Bára Huld Beck

Tillögur stjórn­valda að breyt­ingum á skatt­kerf­inu sem kynntar voru í gær ganga ekki nægi­lega langt í átt að jöfn­uði og rétt­læti í sam­fé­lag­inu að mati for­manna­ráðs BSRB. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu sem það sendi frá sér í dag.

[links]Samkvæmt henni leggur banda­lagið áherslu á að skatt­kerfið eigi að reka með því hug­ar­fari að fólk greiði inn eftir efnum og taki út eftir þörfum. „Í því felst að þeir sem eru betur stæðir ættu að bera meiri byrðar en hinir sem eru verr staddir. Það er því jákvætt skref að til standi að fjölga skatt­þrepum en til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar til breyt­inga á skatt­kerf­inu eru ekki í sam­ræmi við vænt­ingar BSRB.“

Tillögur rík­is­stjórn­ar­innar fela í sér að á næstu þremur árum verði skatt­byrði ein­stak­linga lækkuð sem nemur alls 6.760 krónum mán­að­ar­lega. Breyt­ing­arnar eiga að koma í þremur áföngum og á sá fyrsti ekki að koma til fram­kvæmda fyrr en í byrjun árs 2020 þegar skatt­byrðin á að lækka um 2.253 krónur.

„Það veldur von­brigðum hve lítil lækk­unin er og enn meiri von­brigðum hversu seint hún á að koma til fram­kvæmda. Þá mun lækk­unin ekki ein­göngu taka til þeirra tekju­lægstu heldur einnig til þeirra sem hafa hærri tekjur. BSRB leggst gegn því að skattar verði lækk­aðir fyrir hátekju­fólk og telur að nýta eigi það svig­rúm sem stjórn­völd hafa til skatta­lækk­ana til þess að lækka álögur á þá tekju­lægstu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þá kemur jafn­framt fram að sam­fé­lagið hafi kallað eftir rétt­læti í skipt­ingu tekna og ekki síst í umræðu um ofur­laun. Ein leið til að mæta því ákalli sé að inn­leiða hátekju­þrep í skatt­kerfið. Sam­an­borið við hin Norð­ur­löndin sé Ísland með færri skatt­þrep, hærri grunn­pró­sentu og lægri hámarks­pró­sentu. Með því að taka upp hátekju­skatt myndi skatt­kerfið nýt­ast betur sem tekju­jöfn­un­ar­tæki.

For­manna­ráð BSRB hafði vænt þess að rík­is­stjórnin myndi leggja fram til­lögur sem kæmu til með að draga úr bröttum tekju­teng­ingum í barna­bóta­kerf­inu. „Það eru því mikil von­brigði að ekki standi til að ganga lengra í þá átt en þegar hefur verið gert. Banda­lagið leggur áherslu á mik­il­vægi þess að barna­bætur, hús­næð­is­bætur og vaxta­bætur eigi að vera almennur stuðn­ingur við fjöl­skyldur líkt og á öðrum Norð­ur­löndum en ekki ein­göngu fyrir þá tekju­lægstu líkt og reyndin hefur verið hér á landi und­an­farin ár.

Auknum kostn­aði við bóta­kerfið má til að mynda mæta með því að hækka fjár­magnstekju­skatt til sam­ræmis við hin Norð­ur­löndin, með upp­töku hátekju­skatts og með því að bregð­ast við vax­andi mis­skipt­ingu tekna og auð­söfnun á hendi fárra með stór­eigna­skatti,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár