Stéttarfélögin fjögur lýsa yfir „reiði og sárum vonbrigðum“ með tillögur ríkisstjórnar

Verka­lýðs­fé­lögin sem leitt hafa kjara­við­ræður segja að til­lögur stjórn­valda sem kynntar voru í dag geri vonir um að aðkoma stjórn­valda gæti hleypt glæðum í kjara­við­ræður, að engu.

Ragnar Þór Ingólfsson Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson skrifa öll undir yfirlýsinguna.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son Sólveig Anna Jóns­dóttir og Vil­hjálmur Birg­is­son skrifa öll undir yfir­lýs­ing­una. Mynd: Samsett

VR, Efling, Verka­lýðs­fé­lag Akraness og Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur lýsa reiði og sárum von­brigðum með þær til­lögur sem rík­is­stjórnin lagði fram á fundi með for­seta og vara­for­setum Alþýðu­sam­bands Íslands í dag.

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu. frá þeim. Þar segir að við­ræður hafi staðið tæpt eftir að Samtök atvinnu­lífs­ins hefðu lagt fram til­boð í síð­ustu viku sem leitt hefði til kaup­mátt­arrýrn­unar fyrir stóra hópa launa­fólk. Samtök atvinnu­lífs­ins hefðu í kjöl­farið hafnað það sem félögin töldu vera sann­gjarnt gagntil­boð.

„Vonir stóðu til að aðkoma stjórn­valda gæti hleypt glæðum í við­ræður. Ljóst er að til­lögur stjórn­valda gera þær vonir að engu. Fundað verður í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna á næstu sól­ar­hringum og á fimmtu­dag funda for­menn félag­anna með SA hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Sam­flots­fé­lögin standa sam­einuð og stað­föst í kröf­unni um að launa­fólk geti lifað af launum sínum og að stjórn­völd geri löngu tíma­bærar kerf­is­breyt­ingar í rétt­læt­isátt,“ segir enn fremur í yfir­lýs­ing­unni sem er und­ir­rituð af for­mönnum allra stétt­ar­fé­lag­anna fjög­urra.

Tillögur rík­is­stjórn­ar­innar, sem sný­ast um hús­næð­is­mál, félags­lega kerfið og skatta­mál, verða kynntar síðar í dag.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra, Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og Ásmund­ur Ein­ar Daðason, fé­lags- og barna­mála­ráð­herra kynntu þær fyrir for­ystu­mönnum vinnu­mark­að­ar­ins á fundum fyrr í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár