Vilhjálmur kallar uppsagnirnar hjá Eflingu „mistök“ sem hægt hefði verið að komast hjá

Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins kallar hóp­upp­sögn­ina hjá Eflingu „mis­tök“ í pistli sem hann ritar á vef Verka­lýðs­fé­lags Akraness í dag.

Vilhjálmur Birgisson var nýlega kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins og er einnig formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vil­hjálmur Birg­is­son var nýlega kjör­inn for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og er einnig for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness. Mynd: Skjáskot/RÚV

Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness og Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ist telja að „það hafi verið mis­tök“ hjá stjórn Eflingar „að velja hóp­upp­sögn til að ráð­ast í þær nauð­syn­legu skipu­lags­breyt­ingar sem þau höfðu boðað í sinni kosn­inga­bar­áttu.“

„Það er mat for­manns að stjórn Eflingar hefði getað náð fram þeim skipu­lags­breyt­ingum án þess að grípa til þess­ara hóp­upp­sagna,“ skrifar Vil­hjálmur í pistli sem birt­ist á vef VLFA í dag, en þar kemur hann fram athuga­semdum við það sem hefur verið haft eftir honum um málið í fjöl­miðlum hingað til.

Í pistl­inum segir að „sumar fyr­ir­sagnir í fjöl­miðlum“ hafi ekki verið í sam­ræmi við það sem hann hafi sagt og vísar Vil­hjálmur í því sam­hengi til fréttar á mbl.is sem bar fyr­ir­sögn­ina „Vil­hjálmur ber traust til Sól­veigar“ og fréttar á Vísi sem bar fyr­ir­sögn­ina „Vil­hjálmur tekur upp hansk­ann fyrir Sólveigu.“

Í hvor­ugri þess­arra frétta er haft eftir Vil­hjálmi það sem hann segir í dag, að hann álíti upp­sagn­irnar á skrif­stofu Eflingar hafa verið „mis­tök“, þó að hann hafi sagt að það sé miður þegar gripið væri til hóp­upp­sagna.

[adspot]

Í dag segir hann að það sé hans „bjarg­fasta skoðun“ að um mis­tök hafi verið að ræða og kallar hann þetta mál „allt hið ömur­leg­asta“ og seg­ist vona að allir starfs­menn sæki aftur um störf hjá Eflingu og að eins margir og kostur er fái end­ur­ráðn­ingu.

„Til að svara spurn­ing­unni aftur um hvort for­maður styðji þessa hóp­upp­sögn hjá Eflingu, þá er stutta svarið að sjálf­sögðu, nei, ekk­ert frekar en aðrar hóp­upp­sagnir sem eru á íslenskum vinnu­mark­aði og vill for­maður ítreka að hans mat er að hægt hefði verið að ná fram skipu­lags­breyt­ingum með öðrum hætti en hóp­upp­sögn,“ skrifar Vil­hjálmur einnig.

Ber samt traust til Sólveigar og tekur upp hanskann fyrir hana

Vil­hjálmur skrifar að þrátt fyrir þessar hóp­upp­sagnir á skrif­stofu Eflingar beri hann „svo sann­ar­lega“ traust til Sól­veigar Önnu hvað bar­áttu fyrir kjörum þeirra sem höllustum fæti standa varðar. Hann taki svo „hansk­ann upp fyrir henni“ sem öfl­ugri bar­áttu­konu fyrir að standa vörð um þá sem höllustum fæti standi á íslenskum vinnu­mark­aði.

„Formaður hefur einnig sagt í fjöl­miðlum að hann og Sólveig Anna séu alls ekk­ert alltaf sam­mála en eitt er þau algjör­lega sam­mála um og það er það sem lýtur að því að tryggja að lág­marks­laun á íslenskum vinnu­mark­aði dugi fyrir nauð­þurftum frá mán­uði til mán­aðar og lág­tekju­fólk geti haldið mann­legri reisn. Þar er for­maður VLFA og for­maður Eflingar algerir sam­herjar og er það for­manni til efs að til sé meiri hug­sjón­ar­mann­eskja en Sólveig Anna þegar kemur að því að berj­ast fyrir kjörum þeirra sem höllustum fæti standa í íslensku sam­fé­lagi,“ skrifar Vil­hjálmur einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár