Forseti ASÍ: Dagur „vonbrigða“ sem liðkar ekki fyrir kjarasamningum

Forseti ASÍ segir útspil stjórn­valda í kjara­við­ræðum ekki til þess fallið að liðka fyrir kjara­samn­ingum.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir dag­inn í dag, þar sem stjórn­völd kynntu útspil sitt í kjara­við­ræðum, vera „dag von­brigða“ sem ekki muni liðka fyrir kjara­samn­ingum.

Þetta kemur fram í færslu Drífu á Facebook síðu hennar.

„Dagur von­brigða í dag þegar við fengum kynn­ingu á skatta­til­lögum stjórn­valda.

1. Skatta­lækkun upp all­ann stig­ann (eng­inn að kalla eftir skatta­lækkun á hæstu tekju­hópana). 
2. Senni­lega fryst­ing per­sónu­af­sláttar í nokkur ár (raun­lækkun per­sónu­af­sláttar). 
3. Ekkert meira inn í barna­bóta- og hús­næð­is­kerfin en komið er (Fjármagn í barna­bætur hafa ekki náð raun­gildi árs­ins 2010). 
4. Enginn hátekju­skattur eða hækkun á auð­linda­gjöldum og fjár­magnstekju­skatti (Tekju­öflun engin). 5. Skatta­lækkun á þá hópa sem enn ná ekki endum saman dugar varla fyrir einni ferð í Bónus og sú lækkun á að koma ein­hvern­tíman á næstu þremur árum.

Nið­ur­staða: Þetta verður ekki til að liðka fyrir kjara­samn­ingum,“ segir Drífa.

Stjórn­völd sendu frá sér til­kynn­ingu í dag, þar sem farið er yfir það sem kalla má útspil stjórn­valda í kjara­við­ræður.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að lagt sé upp með að auka jöfnuð og koma til móts við þá sem lægstu tekj­urnar hafa. „Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá því í febr­úar 2018. Þær munu sér­stak­lega bæta stöðu kvenna, fólks á aldr­inum 18-24 ára, 25-34 ára, öryrkja, eldri borg­ara, þeim sem ekki eiga hús­næði og þeim sem þiggja hús­næð­is­stuðn­ing. Bætt verður við nýju neðsta skatt­þrepi og fjár­hæðum til lækk­unar skatta beint til lægri milli­tekju- og lág­tekju­hópa sam­kvæmt fyr­ir­ætl­unum um breyt­ingar í skatta­málum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í dag. Gert er ráð fyrir að tekju­á­hrif skatt­kerf­is­breyt­ing­anna nemi um 14,7 millj­örðum króna. Hækkun barna­bóta 2019 nemur 1,6 ma.kr. og hækkun per­sónu­af­sláttar umfram verð­lag 1,7 ma.kr. Alls nema því til­lögur stjórn­valda í tekju­skatti og barna­bótum 18 millj­örðum króna,“ segir í til­kynn­ingu frá stjórn­völd­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár