Útspil stjórnvalda - Vilja minnka skattbyrði á lágtekjufólk

Verka­lýðs­hreyf­ingin er ósátt við útspil stjórn­valda í kjara­við­ræðum.

Skatt­byrði lág­tekju­fólks lækkar um 2 pró­sentu­stig verði fyr­ir­ætl­anir stjórn­valda um breyt­ingar á skatt­kerf­inu sam­þykktar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum, en þetta er útspil stjórn­valda inn í kjara­við­ræður.

„Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá því í febr­úar 2018. Þær munu sér­stak­lega bæta stöðu kvenna, fólks á aldr­inum 18-24 ára, 25-34 ára, öryrkja, eldri borg­ara, þeim sem ekki eiga hús­næði og þeim sem þiggja hús­næð­is­stuðn­ing. Bætt verður við nýju neðsta skatt­þrepi og fjár­hæðum til lækk­unar skatta beint til lægri milli­tekju- og lág­tekju­hópa sam­kvæmt fyr­ir­ætl­unum um breyt­ingar í skatta­málum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í dag. Gert er ráð fyrir að tekju­á­hrif skatt­kerf­is­breyt­ing­anna nemi um 14,7 millj­örðum króna. Hækkun barna­bóta 2019 nemur 1,6 ma.kr. og hækkun per­sónu­af­sláttar umfram verð­lag 1,7 ma.kr. Alls nema því til­lögur stjórn­valda í tekju­skatti og barna­bótum 18 millj­örðum króna,“ segir í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum.

Stjórn­völd hafa stefnt að því að minnka álögur og „líta til jafn­aðar“ segir í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum.

Starfs­hópur hefur unnið til­lögur að breyt­ingum. Nið­ur­staðan af vinnu hóps­ins er að æski­legt sé að jöfn­unin grund­vall­ist meira á þrepum kerf­is­ins en per­sónu­af­slætti/skatt­leys­is­mörkum. Því er mælt með nýju þrepi sem lækkar skatt­hlut­fall sér­stak­lega fyrir þá sem eru í lægstu tekju­tí­und­unum. Fyrir þá sem eru með mán­aða­laun upp á 325 þús­und krónur þýðir þetta aukn­ingu ráð­stöf­un­ar­tekna um 81 þús­und krónur,“ segir í til­kynn­ingu stjórn­valda.

Gert er ráð fyrir að breyt­ing­arnar komi til fram­kvæmda í skrefum á árunum 2020-2022.

Tillögur starfs­hóps­ins að breyttum skatt­þrepum, skatt­hlut­falli, per­sónu­af­slætti og skatt­leys­is­mörkum:

Þrep 1. Skatt­hlut­fall 32,94% þ.a. tekju­skattur 18,5% og með­al­út­svar 14,44%.
Þrep 2. Skatt­hlut­fall 36,94% þ.a. tekju­skattur 22,5% og með­al­út­svar 14,44%.
Þrep 3. Skatt­hlut­fall 46,24% þ.a. tekju­skattur 31,8% og með­al­út­svar 14,44%.
Per­sónu­af­sláttur: 56.477 kr. á mán­uði eða 677.358 kr. á ári.
Skatt­leys­is­mörk: 159.174* kr. á mán­uði m.v. frá­drátt 4% líf­eyr­is­ið­gjalda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár