Segir það hafa legið fyrir að ríkisstjórnin myndi ekki setja á hátekjuskatt

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að skatt­kerf­is­breyt­ingar rík­is­stjórn­ar­innar hafi verið kynntar og að það hafi jafn­framt legið fyrir, frá því að núver­andi rík­is­stjórn var mynduð, að hún væri ekki að „fara í hátekju­skatt“.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, segir að það hafi legið fyrir frá því að núver­andi rík­is­stjórn var mynduð að hún væri ekki að „fara í hátekju­skatt“, í sam­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í morg­un. Aðspurð hvort að kynnt­ar verði frek­ari breyt­ing­ar á skatt­kerf­inu, þá svar­aði Katrín að rík­is­stjórnin hefði kynnt sín­ar skatta­breyt­ing­ar í gær. Hún sagði jafn­framt að til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar séu að umfangi um þrjá­tíu millj­arðar á um þremur árum og þetta séu allt kerf­is­breyt­ingar sem stuðli að miklum sam­fé­lags­legum umbót­um.

Ríkisstjórnin kynnti skattkerfisbreytingar sínar í gær

[links]Rík­is­stjórnin kynnti hug­myndir um þriggja þrepa skatt­kerfi í gær, á fundi sínum með for­svars­mönnum vinnu­mark­að­ar­ins. Verði fyr­ir­ætl­anir stjórn­valda að veru­leika mun lægsta skatt­þrepið vera 32,94 pró­sent og skatt­byrði lág­tekju­fólks því lækka um 2 pró­sentu­stig. Þetta kom fram í til­kynn­ingu frá stjórn­völd­um í gær ásamt fleiri breyt­ing­ar­til­lögum, en þetta er útspil stjórn­valda inn í kjara­við­ræð­ur.

„Breyt­ing­arnar eru í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá því í febr­úar 2018. Þær munu sér­stak­lega bæta stöðu kvenna, fólks á aldr­inum 18-24 ára, 25-34 ára, öryrkja, eldri borg­ara, þeim sem ekki eiga hús­næði og þeim sem þiggja hús­næð­is­stuðn­ing. Bætt verður við nýju neðsta skatt­þrepi og fjár­hæðum til lækk­unar skatta beint til lægri milli­tekju- og lág­tekju­hópa sam­kvæmt fyr­ir­ætl­unum um breyt­ingar í skatta­málum sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í dag. Gert er ráð fyrir að tekju­á­hrif skatt­kerf­is­breyt­ing­anna nemi um 14,7 millj­örðum króna. Hækkun barna­bóta 2019 nemur 1,6 millj­ónum króna og hækkun per­sónu­af­sláttar umfram verð­lag 1,7 millj­ónir. Alls nema því til­lögur stjórn­valda í tekju­skatti og barna­bótum 18 millj­örðum króna,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Féll í grýttan farveg hjá verkalýðshreyfingunni

Útspili stjórn­valda inn í kjara­við­ræð­ur var ekki vel tekið hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni en tölu­verðar vonir voru bundnar við að til­lögur stjórn­valda myndi liðka fyrir við­ræðum og setja þær í það minnsta nær sáttaf­ar­veg­i. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, sagði eftir að útspil stjórn­valda hafði verið kynnt, að nið­ur­staðan væri von­brigði, og hún liðk­aði ekki fyrir kjara­við­ræð­u­m.

Jafn­framt hafa VR, Efl­ing, Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness og Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur lýst yfir reiði og sárum von­brigðum með til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar. „Vonir stóðu til að aðkoma stjórn­valda gæti hleypt glæðum í við­ræð­ur. Ljóst er að til­lögur stjórn­valda gera þær vonir að engu. Fundað verður í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna á næstu sól­ar­hringum og á fimmtu­dag funda for­menn félag­anna með SA hjá Rík­is­sátta­semj­ara. Sam­flots­fé­lögin standa sam­einuð og stað­föst í kröf­unni um að launa­fólk geti lifað af launum sínum og að stjórn­völd geri löngu tíma­bærar kerf­is­breyt­ingar í rétt­læt­isátt,“ segir í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem und­ir­rituð er af for­mönnum stétt­ar­fé­lag­anna fjög­urra í gær.

Katrín bendir á að fleiri aðgerðir hafi verið kynntar en skattkerfisbreytingar

Í sam­tali við Morg­un­út­varp Rásar 2 í morgun sagði for­sæt­is­ráð­herra að til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar gætu skipt allan almenn­ing á Íslandi miklu máli. Hún benti á að rík­is­stjórnin hefði ekki aðeins kynnt skatt­kerf­is­breyt­ingar heldur einnig til­lögur um að lengja fæð­ing­ar­or­lofið í tólf mán­uði, tryggja félags­legar lausnir í hús­næð­is­málum og ráð­ast í alvöru aðgerðir gegn félags­legum und­ir­boðum.

Katrín sagði jafn­framt nýja skatt­þrepið væri tölu­verðar umbætur fyrir lægsta tekju­hóp­inn. Hún sagði þetta vera þriggja þrepa kerfi sem væri í raun „prógressívt“ skatt­kerfi. Jafn­framt sagði hún að nýja skatt­kerfið myndi létta 80 þús­und króna skatt­byrði af lægstu tekju­hóp­unum á ári og benti jafn­framt á að með barna­bótum myndu tekju­lágar barna­fjöl­skyldur hafa allt að 200 þús­und meira úr að spila á ári. Hún sagði jafn­framt að lagt hefði verið til að afnema samnýt­ingu þrepa sem væri mik­il­væg jafn­rétt­is­að­gerð.

Skatt­kerf­is­breyt­ing­arnar féllu þó í grýttan jarð­veg hjá verka­lýðs­hreyf­ing­unni en verka­lýðs­fé­lögin hafa sagt að um gríð­ar­leg von­brigði sé að ræða og að stjórn­völd hafi í raun aðeins boðið skatta­lækkun sem nemur 6750 krónur á mán­uði. Í Facebook-færslu Drífu Snædal í gær kemur fram að til­lagan að skatta­lækk­unin á þá „hópa sem enn ná ekki endum saman“ dugi varla fyrir einni ferð í Bónus og sú lækkun eigi jafn­framt að koma ein­hvern tím­ann á næstu þremur árum.

Virðist ekki vera von á frekar tillögum að skattabreytingum

Aðspurð um við­brögð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sagði Katrín að rík­is­stjórnin sé búin að vera „mjög heið­ar­leg“ frá upp­hafi og hafi sýnt spilin sín allt frá því að þau lögðu fram fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir ári. Hún sagði jafn­framt að þetta væri svig­rúmið sem sé til staðar og nið­ur­staða stjórn­valda hafi verið að útfæra skatt­kerf­is­breyt­ingu sem kæmi sér best fyrir tekju­lægsta hóp­inn.

Helgi Seljan, þátta­stjórn­andi Morg­un­út­varps­ins, spurði þá Katrínu hvort að skoðað hafi verið að setja á hátekju­skatt. Katrín svar­aði þá að „það hefur vænt­an­lega legið fyrir frá því að við mynd­uðum þessa rík­is­stjórn að við værum ekki að fara í hátekju­skatt.“

Að lokum sagði Katrín að rík­is­stjórnin vilji halda sam­tal­inu áfram en aðspurð hvort að kynntar verði frek­ari breyt­ingar á skatt­kerf­inu en þetta, þá svar­aði Katrín að rík­is­stjórnin hefði kynnt sínar skatta­breyt­ingar í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár