Stál í stál í kjaraviðræðum - horft til lausna á húsnæðismarkaði

Viðræðum milli Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) og Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) hefur nú verið slitið og er SGS þegar byrjað að und­ir­búa næstu aðgerðir. Félags­menn eru ríf­lega tólf þús­und og aðild­ar­fé­lögin sextán tals­ins, en SGS sleit við­ræð­unum þar sem SA voru ekki til­búin að koma til móts við hug­myndir um hækkun lág­marks­launa upp í 300 þús­und krónur. „Kröfur SGS eru skýrar: Að lægstu laun verði komin upp í 300 þús­und krónur innan þriggja ára svo launa­fólk hafi mögu­leika til að lifa af dag­vinnu­launum. Það eru mikil von­brigði að Samtök atvinnu­lífs­ins voru ekki til­búin til að koma til móts við þessar kröfur. Starfs­greina­sam­bandið er því nauð­beygt til að hefja und­ir­bún­ing aðgerða og leita heim­ildar hjá sínum félögum til verk­falls­boð­unar,“ segir í til­kynn­ingu frá SGS vegna þessa. Næsta mál á dag­skrá er að aðild­ar­fé­lögin fái heim­ildir til þess að boða til verk­falla, til þess að knýja á um betri kjör. Aðild­ar­fé­lög SGS eru AFL Starfs­greina­fé­lag, Aldan stétt­ar­fé­lag, Báran stétt­ar­fé­lag, Drífandi stétt­ar­fé­lag, Eining-Iðja, Framsýn stétt­ar­fé­lag, Stétt­ar­fé­lagið Samstaða, Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Akraness, Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Bol­ung­ar­víkur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Sand­gerðis, Verka­lýðs­fé­lag Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lag Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga og Verka­lýðs­fé­lag Þórs­hafnar. Ljóst er því að verk­falls­að­gerðir geta haft víð­tæk áhrif.

Horft til húsnæðisliðarins


Ljóst er að kjara­samn­ings­við­ræður eru sigldar í strand og við­horf SA og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar eru gjör­ó­lík. SA hefur talað fyrir því að laun geti ein­ungis hækkað um 3,5 til 5 pró­sent á meðan verk­lýðs­hreyf­ingin, og SGS, horfa til þess að laun geti hækkað um 20 til 30 pró­sent, einkum hjá þeim sem lægstu launin hafa, og að lág­marks­laun verði 300 þús­und.

Margt fleira hefur þó verið rætt í við­ræð­unum til þessa, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, og eru þar meðal ann­ars leiðir sem mögu­legt væri að fara til þess að bæta hag hins launa­fólks almennt. Þau atriði snúa meðal ann­ars að mál­efnum sem heyra undir sveit­ar­fé­lög og ríki, sem snúa að fast­eigna­mark­aðnum. Hafa SA meðal ann­ars talað fyrir mik­il­vægi þess að atriði sem þessu tengj­ast, séu hluti af kjara­samn­ing­unum og þannig kallað eftir aðkomu hins opin­bera með virkum hætti.

[caption id="attachment_8962" align="alignnone" width="5184"] Eygló Harð­ar­dóttir, er ráð­herra hús­næð­is­mála, og hefur boðað miklar breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu í átt að danskri fyr­ir­mynd. Ekkert hefur þó komið til fram­kvæmda ennþá.[/caption]

Lækka verð á lóðum


Skipta má þessum atriðum í fjóra meg­in­þætti, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Í fyrsta lagi er að end­ur­skoða bygg­ing­ar­reglu­gerðir til að lækka bygg­inga­kostnað og auð­velda bygg­ingu smærri íbúða. Í öðru lagi er að fá sveit­ar­fé­lög til að end­ur­skoða áherslur sínar hvað varðar skipu­lag og lóða­verð, til að stuðla að lægri bygg­inga­kostn­aði, og á end­anum minni verð­bólgu­þrýst­ingi vegna fast­eigna­verðs. Í þriðja lagi er sam­ræm­ing vaxta- og húsa­leigu­bóta en ljóst er að húsa­leigu­bætur byrja fyrr að skerð­ast vegna tekna. Í fjórða lagi er það fyr­ir­komu­lag félags­legs íbúða­kerfis, og mik­il­vægi þess að það verði skipu­lagt í sam­hengi við sam­ræmda launa­stefnu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og SA.

Hvað gerist næst?


Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafa stjórn­völd miklar áhyggjur af stöðu mála í kjara­við­ræð­unum, og má búast við því að sam­tal stjórn­valda með aðilum vinnu­mark­að­ars­ins, í anda þjóð­ar­sáttar, verði enn virkara á næstu miss­erum. Þar verður meðal ann­ars horft til þess hvernig ná má meiri kaup­mætti fram með breyt­ingum á hús­næð­is­kerf­inu. En helstu bar­áttu­málin munu þó áfram snú­ast um krónur og aura, beinar krónu­tölu­hækk­anir og hvar línan skuli dregin í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár