Framsókn ekki mælst með meira fylgi í tæp fimm ár

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er á miklu flugi sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun. Vinstri græn halda áfram að vera sá stjórn­ar­flokkur sem geldur helst fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og þeir sem ætla að kjósa annað en þá flokka sem nú eru á þingi fjölgar mikið.

Lilja D. Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og mennta- og menningarmálaráðherra, hefur verið áberandi að undanförnu.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur verið áber­andi að und­an­förnu. Mynd: Bára Huld Beck

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 13,5 pró­sent fylgi í könnun MMR sem er mesta fylgi flokks­ins þar síðan í apríl 2014, eða í tæp fimm ár. Þegar fylgi Fram­sóknar var síð­ast svona hátt sam­kvæmt könn­unum var tæpt ár liðið frá því að hann vann stór­sigur í kosn­ing­unum 2013, undir for­ystu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Sigur sem skil­aði þáver­andi for­manni for­sæt­is­ráð­herra­stólnum.

Framsókn bætir við sig tæpu pró­sentu­stigi í fylgi milli mán­aða sam­kvæmt MMR og fylgið hefur nán­ast tvö­fald­ast – auk­ist um 80 pró­sent – frá því í nóv­em­ber, þegar það mæld­ist 7,5 pró­sent. Í milli­tíð­inni skeði Klaust­ur­málið svo­kall­aða sem virð­ist hafa fært umtals­vert fylgi frá Mið­flokknum yfir til Fram­sókn­ar­flokks­ins auk þess sem fram­ganga Lilju D. Alfreðs­dóttur, vara­for­manns flokks­ins og eins þeirra sem urðu mest fyrir barð­inu á þeim sem sátu á Klaust­ur­bar í nóv­em­ber, í kjöl­far máls­ins hefur mælst vel fyrir. Framsókn mælist nú með umtals­vert meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, þegar 10,7 pró­sent kjós­enda kusu hann.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir einnig við sig tæpu pró­sentu­stigi milli kann­ana og mælist nú 22,7 pró­sent. Fylgi hans hefur ekki mælst hærra frá því í maí í fyrra og má leiða líkum að ein­hverjir kjós­endur hafi skilað sér aftur til flokks­ins í kjöl­far Klaust­ur­máls­ins, en fylgi hans mæld­ist undir 20 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó enn tölu­vert frá kjör­fylgi sínu, sem var 25,2 pró­sent.

Vinstri græn tapa áfram á ríkisstjórnarsamstarfinu

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, mæl­ast með 11,1 pró­sent fylgi og lækkar það um rúm­lega eitt pró­sentu­stig milli mán­aða. Flokk­ur­inn hefur sam­kvæmt þessu tapað um 34 pró­sent af fylgi sínu frá síð­ustu kosn­ingum þegar 16,9 pró­sent greiddra atkvæða féllu honum í skaut. Hann er sá stjórn­ar­flokk­anna sem líður lang­mest fyrir hið óvenju­lega rík­is­stjórn­ar­sam­starf sem er nú til staðar.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist því 47,3 pró­sent en var, til sam­an­burðar, 52,8 pró­sent eftir síð­ustu kosn­ingar. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 42,8 pró­sent og hefur farið vax­andi frá því að hann náði botni það sem af er kjör­tíma­bili í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Þá mæld­ist stuðn­ing­ur­inn ein­ungis 37,8 pró­sent. Í fyrstu mæl­ingu sem MMR gerði eftir kosn­ingar, í des­em­ber 2017, mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 66,7 pró­sent.

Miðflokkurinn lækkar aftur

Fylgi Mið­flokks­ins mælist nú 6,1 pró­sent og lækkar um 2,2 pró­sentu­stig milli kann­ana MMR. Það fylgi er mjög nálægt lægsta mælda fylgi flokks­ins á kjör­tíma­bil­inu, sem var í des­em­ber 2018 þegar fylgið mæld­ist 5,9 pró­sent.

Fylgi Mið­flokks­ins mælist nú í fyrst sinn frá síð­ustu kosn­ingum lægra en fylgi Flokks fólks­ins, sem nýtur stuðn­ings 6,9 pró­sent kjós­enda og mælist því með kjör­fylgi á meðan að Mið­flokk­ur­inn mælist með rétt rúm­lega helm­ing þess fylgis sem flokk­ur­inn fékk haustið 2017. Það virð­ist því vera að Flokkur fólks­ins, sem rak þá tvo þing­menn flokks­ins sem voru við­staddir á Klaust­ur­bar úr flokknum, ætli að koma betur út úr því máli en hinn flokk­ur­inn sem átti þar full­trúa. Að minnsta kosti til skamms tíma.

Miðju- vinstri stjórnin ekki möguleg að óbreyttu

Bæði Píratar og Viðreisn lækka smá­vægi­lega í fylgi milli kann­ana. Píratar mæl­ast nú með 10,4 pró­sent fylgi, sem er enn yfir 9,2 pró­sent kjör­fylgi þeirra, og Viðreisn mælist með 8,1 pró­sent, eftir að hafa fengið 6,7 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum.

Sam­fylk­ingin bætir lít­il­lega við sig milli mán­aða og alls segj­ast 15,9 pró­sent að þeir myndu kjósa flokk­inn ef kosið yrði í dag. Það gerir hann að næsta stærsta stjórn­mála­flokki lands­ins.

Sam­an­lagt fylgi þess­arra þriggja flokka, sem vinna nokkuð mikið saman í stjórn­ar­and­stöðu og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur kallað eftir að myndi rík­is­stjórn ásamt Vinstri grænum eftir næstu kosn­ingar, mælist nú 34,4 pró­sent. Þótt það sam­an­lagða fylgi sé umtals­vert hærra en það sem kom upp úr kjör­köss­unum haustið 2017, þegar flokk­arnir þrír fengu 28 pró­sent atkvæða, þá er ljóst að það myndi ekki duga til að mynda áður­nefnda rík­is­stjórn með Vinstri grænum að óbreyttu. Til þess eru flokk­arnir ekki með meiri­hluta.

Athygli vekur að þeim sem ætla að kjósa aðra stjórn­mála­flokka en þá sem eiga full­trúa á þingi fjölgar umtals­vert milli kann­ana MMR. Nú segj­ast 5,2 pró­sent ætla að gera slíkt, en það hlut­fall var 3,1 pró­sent í jan­úar og 1,5 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum. Þótt frá því sé ekki greint í frétt MMR um könn­un­ina má leiða að því líkum að þar spili aukið fylgi við Sós­í­alista­flokk Íslands rullu, en í nýlegri könnun Gallup mæld­ist hann með yfir fimm pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár