Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og Sósíalistar með yfir 5 prósent

Fylgi við rík­is­stjórn­ina eykst í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup. Viðreisn mælist nú með meira fylgi en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn stærsti flokkur lands­ins í þjóð­ar­púlsi Gallups og fengi 23,4 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú, en Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með yfir 5 pró­sent fylgi, og næði því inn þing­mönnum, ef hann fengi stuðn­ing í kosn­ingum í sam­ræmi við stöð­una nú.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur auk­ist og nú segj­ast 49 pró­sent styðja hana, en sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna, Sjálf­stæð­is­flokks (23,4 pró­sent), Vinstri grænna (11,3 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokks (8,8 pró­sent), er þó ekki nema 43,5 pró­sent. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir mæl­ast hins vegar með 51,4 pró­sent fylgi.

Könnunin var gerð dag­ana 7.-31. jan­úar 2019, en greint var frá könn­un­inni á vef RÚV. Heild­ar­úr­taks­stærð var 4.241 og þátt­töku­hlut­fall var 54,4%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,9-1,9%. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup.

Viðreisn mælist stærri en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, og er nú með 9,1 pró­sent fylgi. Sam­fylk­ingin mælist með 19,1 pró­sent, Píratar 12,7 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn 6,5 pró­sent og Sósílista­flokk­ur­inn 5,3 pró­sent.

Flokkur fólks­ins næði ekki inn á þing, miðað við stöðu mála nú, en hann mælist með 3,7 pró­sent fylgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár