Logi vill ríkisstjórn með Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að mögu­lega séu flokkur hans og Vinstri græn eðl­is­ó­líkir flokkar í ljósi þeirra áherslna sem núver­andi rík­is­stjórn, undir for­sæti Vinstri grænna, hefur í for­grunni. Þetta kemur fram í við­tali við hann í Mannlífi í dag.

„Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­legum og góðum málum á dag­skrá ef við myndum mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­fylk­ingin væri kjöl­festu­flokkur og við hefðum svo Viðreisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okkur.“ Þetta segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, í við­tali í Mannlífi í dag.

Þar fer hann yfir for­manns­feril sinn í flokknum, en hann tók við Sam­fylk­ing­unni eftir að hún hafði goldið sögu­legt afhroð í kosn­ing­unum 2016, þar sem hún fékk ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn kjörna. Til að setja það hrun í sam­hengi þá fékk Sam­fylk­ingin 29,8 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2009 og 20 þing­menn kjörna.

Logi segir í við­tal­inu að hann hafi verið lát­inn vita af félögum sínum að þetta væri von­laust tafl og að ein­hverjir hefðu nefnt hann útfar­ar­stjóra Sam­fylk­ing­ar­innar. Flokk­ur­inn hefur hins vegar náð vopnum sínum ágæt­lega síðan þá, fékk 12,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum haustið 2017 og mælist með 15-18 pró­sent fylgi í síð­ustu könn­unum sem hafa verið gerðar.

[adspot]Það þýðir að Sam­fylk­ingin virð­ist vera að festa sig í sessi, sam­kvæmt könn­unum á þessu kjör­tíma­bili, sem næst stærsti flokkur lands­ins á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum.

Logi segir að hann telji að Sam­fylk­ingin sé í dag mót­vægi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „ Sam­fylk­ingin er í hægum vexti og ég held að það sé betra að þetta ger­ist hægt og rólega. Ég er sann­færður um að við eigum meira inni. Ég held að Sam­fylk­ingin verði komin á þann stað sem hún á að vera þegar hún er komin í góða rík­is­stjórn sem byggir á mál­efna­á­herslum jafn­að­ar­manna.“

Hann greinir einnig frá því að það hefði verið orðað við Sam­fylk­ing­una að taka þátt í myndun rík­is­stjórnar gamla fjór­flokks­ins eftir síð­ustu kosn­ingar.

[box]Logi segir að það hafi hins vegar ekki verið neitt fyrir flokk­inn þar, meðal ann­ars vegna þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ekki að fara að gera grund­vall­ar­breyt­ingar á skatt­kerf­inu eða vel­ferð­ar­kerf­inu sem hann telji að þjóðin þurfi. Því hafi verið mynduð sú stjórn sem nú situr að völdum.

Hann veltir því upp, í ljósi þeirrar stjórn­ar­mynd­unar, að kannski sé meira á milli Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna en hann Logi hélt áður og að kannski séu flokk­arnir tveir eðl­is­ó­líkir. „Kannski snýst þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf svo um eitt­hvað allt annað en hægri og vinstri. Kannski snýst það einmitt um íhalds­semi, um að við­halda gömlum kerfum sér­hags­muna­hópa. Kannski snýst það um að við­halda rétti útgerð­ar­innar til þess að sitja á sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar og nýta hana fyrir litla pen­inga. Kannski snýst þetta um hags­muni land­bún­að­ar­ins ein­göngu en ekki hags­muni neyt­enda. Kannski snýst þetta um það að afneita því að stór og örugg mynt geti skilað ávinn­ingi fyrir launa­fólk.“

Margt fleira ber á góma í við­tal­inu. Þar ræðir Logi meðal ann­ars bragga­málið, Klaust­urs­málið og hvernig það atvik­að­ist að hann rataði í fremstu vig­línu stjórn­mála og ýmis­legt annað.

Hægt er að lesa Mannlíf dags­ins í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannlíf

Mest lesið undanfarið ár