Einstæðar mæður með börn um 14 prósent kjarnafjölskyldna

Í tölum Hagstofu Íslands um sam­setn­ingu íslensku þjóð­ar­innar má finna ýmis­legt áhuga­vert.

Íslend­ingar eru nú orðnir 338.349 miðað við stöð­una eins og hún var 1. jan­úar á þessu ári. Fjölg­unin milli ára er 1,8 pró­sent. Fjölgun Íslend­inga á und­an­förnum tveimur ára­tugum hefur verið jöfn og þétt. Frá árinu 1997 hefur Íslend­ingum fjölgað um 68.475, og frá því herr­ans ári 2007 nemur fjölg­unin rúm­lega 30 þús­und manns.

En hvernig er íslenska þjóðin nú sam­sett og hvar er fólk helst að koma sér fyrir? Fimm atriði úr nýlegri sam­an­tekt Hagstofu Íslands um Ísland og Íslend­inga sýnir þjóð sem vex og dafnar.

[adspot]

1. Íslend­ingum fjölg­aði um 5.820 frá sama tíma árið áður. Þetta er fjöldi sem nemur íbúa­fjölda í þriggja kaup­staða á Aust­fjörðum, svo dæmi sé tekið. Konum og körlum fjölg­aði nokkuð jafnt en karlar eru eigi að síður 3.717 fleiri en konur á land­inu.

2. Mikil fólks­fjölgun var á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en íbúum þar fjölg­aði um 3.259 í fyrra eða 1,5%. Hlut­falls­lega varð þó mest fólks­fjölgun á Suð­ur­nesjum, 6,6%, þar af hlut­falls­lega mest í Reykja­nesbæ. Einnig fjölg­aði íbúum á Suð­ur­landi (2,1%), Norð­ur­landi eystra (1,1%) og Vest­ur­landi (1%), en minna á Norð­ur­landi vestra (0,4%) og Aust­ur­landi (0,4%). Fólks­fækkun var á Vest­fjörðum, en þaðan flutt­ust 13 manns (0,2%) í fyrra.

3. Kjarna­fjöl­skyldur voru 80.638 hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn en 79.870 ári áður. Stærsti hluti kjarna­fjöl­skyldna eru barn­laus hjón, eða 39 pró­sent af heild­inni. Hjón með börn koma þar á eftir, ríf­lega 27 pró­sent, og ein­stæðar mæður með börn næst þar á eftir, með 13,8 pró­sent.

4. Og fólki fjölgar stöðugt í þétt­býli. Hinn 1. jan­úar síð­ast­lið­inn voru 60 þétt­býl­is­staðir á land­inu með 200 íbúa eða fleiri og fækk­aði um einn milli ára. Auk þeirra voru 36 smærri staðir með 50–199 íbúa sem er fjölgun um einn frá fyrra ári. Í þétt­býli bjuggu 316.904 og fjölg­aði um 5.054 milli ára. Í dreif­býli og smærri byggða­kjörnum bjuggu 21.455 manns.

5. Kópa­vogur er næs stærsta sveit­ar­fé­lagið á eftir Reykja­vík og þar hefur íbúum fjölgað einna hrað­ast á land­inu. Í byrjun árs­ins voru íbúa komnir yfir 35.200 tals­ins og fjölg­aði um ríf­lega 1.100 milli ára. Höf­uð­borg­ar­svæðið vex því tölu­vert innan Kópavogs áfram, eins og reyndin hefur verið und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannlíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár