Þriðja eintak fríblaðsins Mannlífs komið út

Frí­blað­inu Mannlífi er dreift í 80 þús­und ein­tökum í dag. Blað dags­ins er stút­fullt af fréttum, frétta­skýr­ingum, úttektum og skoð­ana­greinum sem unnar eru af rit­stjórn Kjarnans.

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir prýðir forsíðu Mannlífs í dag. Hún hefur barist ötullega gegn áreitni og ofbeldi sem hún segir alheimsvanda en vill um leið afskrímslavæða umræðuna um ofbeldismenn.
Þórdís Elva Þor­valds­dóttir prýðir for­síðu Mannlífs í dag. Hún hefur barist ötul­lega gegn áreitni og ofbeldi sem hún segir alheims­vanda en vill um leið afskrímsla­væða umræð­una um ofbeld­is­menn. Mynd: Mannlíf

Frí­blaðið Mannlíf kom inn um bréfalúgur íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í þriðja sinn í morg­un. Blað­inu er dreift frítt í 80 þús­und ein­tök­um. Um er að ræða sam­starfs­verk­efni útgáfu­­fé­lags­ins Birt­ings og Kjarn­ans miðla.

Í Mann­­lífi er lagt mikið upp úr gæðum efnis úr mörgum átt­­um. Rit­­stjórn Kjarn­ans sér um vinnslu frétta, frétta­­skýr­inga, úttekta, skoð­ana­­greina og frétta­tengdra við­tala á meðan að rit­­stjórnir Gest­gjafans, Hús og híbýla og Vik­unnar vinna áhuga­vert og skemmti­­legt efni inn í aft­­ari hluta blaðs­ins. Efn­is­tök eru því afar fjöl­breytt.

Í Mann­­lífi er að finna lífstílstengt efni um heim­ili, hönn­un, ferða­lög, mat og drykk í bland við vand­aðar frétta­­skýr­ingar og við­­töl við áhuga­vert fólk.

Á meðal efnis í blaði dags­ins er við­tal við Þórdísi Elvu Þor­valds­dóttur sem hefur barist ötul­lega gegn áreitni og ofbeldi, frétta­skýr­ingar um sál­fræði­þjón­ustu sem veitt er í gegnum netið, áhrif lúxus­í­búða á hækkun hús­næð­is­verðs og brott­fall kenn­ara úr stétt­inni. Þá eru teknar saman tíu stað­reyndir um stöðu kvenna á Íslandi, fjallað um nýjar plötu­út­gáfur, pistla­skrif og það ítar­lega rök­stutt af hag­fræð­ingi hverju það sé bæði hag­kvæmt og eft­ir­sókn­ar­vert að fara út að borða á elli­heim­ili.

Auður Jóns­dóttir skrifar óð til Berlínar og Eiríkur S. Hrafns­son, ann­ars stofn­enda Greenqloud er í við­tali um dramat­íska sögu frum­kvöðla sem byggðu upp alþjóð­legt hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki út frá hug­mynd sem í fyrstu þótti brjál­æð­is­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannlíf

Mest lesið undanfarið ár