Segja málsmeðferð forseta Alþingis ámælisverða

Fjórir þing­menn Mið­flokks­ins hafa sent bréf til Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, for­seta Alþing­is, þar sem þeir gera at­huga­semd­ir við máls­með­ferð hans. Þau segja ætlun hans að halda þeim í myrkr­inu.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Samsett mynd

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, Gunn­ar Bragi Sveins­son, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir og Bergþór Ólason, þing­menn Mið­flokks­ins sem teknir voru upp á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber á síð­asta ári, hafa sent bréf til Stein­gríms J. Sig­fús­son­ar, for­seta Alþing­is, þar sem þeir gera at­huga­semd­ir við máls­með­ferð hans.

[links]Í bréf­inu vísa þau til ann­ars bréfs sem þau segj­ast hafa sent til Stein­gríms 17. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þau segja jafn­framt að svo virð­ist sem hann hafi kosið að svara ekki því bréfi.

„Þessi máls­með­ferð er and­stæð 3. mgr. 17. gr. siða­reglna fyrir alþings­menn. Þar er mælt for­taks­laust fyrir um að þing­maður sem sak­aður er um að hafa brotið siða­reglur skuli „ávallt eiga þess kost, meðan mál hans er til umfjöll­unar hjá for­sætis­nefnd, að koma á fram­færi sjón­ar­miðum sínum og upp­lýs­ingum.“

Þetta er ekki aðeins ámæl­is­vert heldur er þetta einnig til þess fallið að gera með­ferð máls­ins óvand­aðri, líkt og lýst er í bréf­inu frá 17. jan. sl. Erfitt er að taka þessu sem öðru en vís­bend­ingu um óvild for­seta í okkar garð. Sama má segja um ítrek­aða van­rækslu að verða við beiðni okkar um afhend­ingu gagna sem upp­haf­lega var sett fram 13. des. sl.,“ segir í bréfi þing­mann­anna.

[adspot]

Í Bítinu á Bylgunni í morgun sagði Sig­mundur Davíð, for­maður Mið­flokks­ins, Stein­grím vera einn mesta popúlista íslenskra stjórn­mála­. ­Sig­mund­ur Da­víð hefur áður haldið því fram að Stein­grímur sé að brjóta ­þing­skap­a­lög ­með til­lögu sinni um að skipa nýja for­sætis­nefnd. Hann sagði að við­horf Stein­gríms í sinn garð væru vel þekk og hann teldi að póli­tík, popúl­ismi og per­sónu­leg óvild ­Stein­gríms væri ástæða þess að for­seti þings­ins not­aði nú aðstöðu sína til að fara í prí­vat her­ferð gegn Sig­mund­i Davíðs.

Þing­menn­irnir fjórir telja jafn­framt að ætlun Stein­gríms sé að halda þeim í myrkr­inu um fram­vindu máls­ins. „[Við] teljum rétt að koma hér á fram­færi okkar sjón­ar­miðum um þá hug­mynd um „við­bót­ar­vara­for­seta“ sem höfð hefur verið eftir þér í fjöl­miðlum. Skv. því sem þar greinir virð­ist hug­mynd þín vera sú að þingið kjósi svo­nefnda „við­bót­ar­vara­for­seta“ úr hópi þing­manna sem sagðir eru „hæfir til umfjöll­unar“ um mál okkar. Þeir myndi síðan „eins konar und­ir­for­sætis­nefnd“ og eigi að fjalla um mál okkar. Þetta verði gert „með afbrigðum frá þing­sköpum“.“

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár