Sigmundur Davíð segir Steingrím vera popúlista

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir Stein­grím J. Sig­fús­son, for­seta Alþingis, vera einn mesta popúlista íslenskra stjórn­mála. Sig­mundur segir að per­sónu­leg óvild Stein­gríms í sinn garð sé vel þekkt.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir Stein­grím J. Sig­fús­son, for­seta Alþingis, vera einn mesta popúlista íslenskra stjórn­mála í Bítinu á Bylgj­unni í morgun. Sig­mundur Davíð hefur haldið því fram að Stein­grímur sé að brjóta þing­skap­a­lög með til­lögu sinni um að skipa nýja for­sætis­nefnd. Hann segir að við­horf Stein­gríms í sinn garð sé vel þekk og hann telur að póli­tík, popúl­isma og per­sónu­leg óvild Stein­gríms sé ástæða þess að for­seti þings­ins noti nú aðstöðu sína til að fara í prí­vat her­ferð gegn Sigmundi.

Steingrímur segir að þinginu sé heimilt að skipa nýja forsætisnefnd

[links]Sig­mundur skrif­aði grein um málið í Morg­un­blaðið í gær. Þar hélt hann því fram að Stein­grímur væri að brjóta þing­skap­a­lög með til­lögu sinni um að kjósa sér­staka for­sætis­nefnd til að fjalla um Klaust­urs­málið svo­kall­aða. Stein­grímur lagði til að ný nefnd væri skipuð þar sem öll for­sætis­nefndin hefur þurft að lýsa sig van­hæfa að fjalla um málið efn­is­lega þar sem allir með­limir henn­ar, ásamt meiri­hluta þing­manna, hafa tjáð sig um málið opin­ber­lega.

Því var lagt til að skipa í stað þess sér­staka for­sætis­nefnd ,sem skipuð væri tveimur til þrem­ur, eða fleirum, þing­mönnum, sem hefur það eina verk­efni að koma Klaust­urs­mál­inu til siða­nefndar þings­ins. Nefnd­ar­menn mega ekki hafa tjáð sig um málið opin­ber­lega, á nokkurn hátt, svo ekki sé hægt að draga hæfi þeirra í efa. Kosið verður um vara­for­seta nefnd­ar­innar á Alþingi í dag ef kosn­ing verði leyfð en tveir þriðju þing­manna þurfa að leyfa slíka kosn­ingu. Slík kosn­ing fer fram á grund­velli heim­ilda til að leita afbrigða til þess að bregða frá þing­sköpum.

Segir Steingrím vera popúlista

Stein­grímur sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að það væri yfir allan vafa hafið að þing­inu sé heim­ilt að skipa nýja for­sætis­nefnd. Sig­mundur Davíð sagði aftur á móti í Bítinu að morgun að það sé ekki rétt en hann telur að póli­tík og per­sónu­lega óvild Stein­gríms í garðs Sig­mundar hafi áhrif á ákvörðun Stein­gríms um að fara þessa leið með Klaustur málið. „Hann tel­ur sig eiga harma að hefna og leit­­ast nú við að nýta stöðu sína í þeim til­­­gangi. Þó bla­s­ir við að ekk­ert af því sem ég sagði í einka­­sam­tali sem tekið var upp með ólög­­mæt­um hætti jafn­­­ast á við fjöl­margt sem þing­­for­­set­inn sjálf­ur hef­ur sagt og gert op­in­ber­­lega að yf­ir­lögðu ráð­i,“ skrif­aði Sig­mund­ur í grein sinni í Morg­un­blað­inu í gær.

Enn fremur segir Sig­mundur að Stein­grímur sé popúlisti og það sé önnur skýr­ing á fram­ferð Stein­gríms í þessu máli. „Hann er popúlisti og ein­hver mesti popúlisti íslenskrar stjórn­mála að mínu viti svo þetta hefur örugg­lega áhrif á hann líka. Hann er líka mjög harður vinstri maður og sér þarna tæki­færi fyrir sinn hóp,“ sagði Sig­mundur Davíð að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár