Sigmundur Davíð segir forseta Alþingis nýta stöðu sína gegn sér

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir Stein­grím J. Sig­fús­son nýta stöðu sína sem þing­for­seta til að hefna sín á Sigmundi. Hann segir að með því að skipa nýja for­sætis­nefnd brjóti Stein­grímur blað í sögu Alþingis.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, telur að máls­með­ferð Alþingis á Klaust­urs­mál­inu séu póli­tísk rétt­ar­höld í boði Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis. Sig­mundur segir að Stein­grímur eigi harma að hefna og sé nú að nýta stöðu sína sem for­seti í þeim til­gangi. Hann gagn­rýnir það harð­lega að Stein­grímur vilji skipa nýja for­sætis­nefnd til að fjalla um Klaust­ur­málið. Hann segir að þing­menn­irnir sex hafi nú þegar þolað grimmi­legri refs­ingu en nokkur dóm­stóll myndi telja við­eig­andi. Þetta kemur fram í aðsendri grein Sigmund Davíðs í Morg­un­blaðinu í dag.

Markmiðið að vanhæf nefnd gæti beðið vanhæfa undirnefnd um álit

Sig­mundur segir í grein sinni með Stein­grímur brjóti blað í sögu Alþingis með­því að skipa nýja for­sætis­nefnd til að fjalla um sam­ræður sex­menn­ing­ana á Klaustur bar í fyrra en Sig­mundur Davíð var sem kunn­ugt er einn þeirra sex­menn­inga.

[links]For­sætis­nefnd hefur haft til umfjöll­unar erindi átta þing­manna þar sem þess er að óskað, að það verði kannað hvort þing­menn­irnir sex sem áttu fund á Klaustur bar hafi brotið gegn siða­reglum með ummælum sínum um ýmsa, þar á meðal sam­starfs­fólk í stjórn­mál­u­m. Öll for­sætis­nefndin hefur hins vegar þurft að lýsa sig van­hæfa að fjalla um málið efn­is­lega þar sem allir með­limir hennar, ásamt meiri­hluta þing­manna, hafa tjáð sig um málið opin­ber­lega. Þá var ákveðið að skipa nýja for­sætis­nefnd sem skipuð væri tveimur til þremur, eða fleirum, þing­mönn­num, sem hefur það eina verk­efni að koma Klaust­urs­mál­inu til siða­nefndar þings­ins. Nefnd­ar­menn mega ekki hafa tjáð sig um málið opin­ber­lega, á nokkurn hátt, svo ekki sé hægt að draga hæfi þeirra í efa.

„Markmið þing­for­seta var koma mál­inu til svo kall­aðrar siða­nefndar til að geta að því búnu fellt dóm sinn. Siða­nefndin er und­ir­nefnd for­sætis­nefndar Alþingis og henni aðeins til ráð­gjafar. Þing­for­set­inn hefur þegar verið upp­lýstur um að þar sem for­sætis­nefndin sé van­hæf sé siða­nefndin það einnig. Mark­miðið var því að van­hæf nefnd gæti beðið van­hæfa und­ir­nefnd sína um álit.“ segir Sig­mundur í grein sinni.[adspot]

Segir þingmennina þegar hafa þolað grimmilega refsingu

Sig­mundur Davíð segir að Klaust­urs­málið, eða hler­un­ar­málið líkt og hann kallar það í grein sinni, eigi ekk­ert erindi við siða­nefnd­ina þar sem einka­sam­tal á bar sé varla hluti af opin­berri skyldu þing­manna. „Í regl­un­um sem starf henn­ar bygg­ist á kem­ur enda skýrt fram að gild­is­svið þeirra nái ein­ung­is til þess sem þing­menn gera sem hluta af op­in­ber­um skyld­um sín­um. Eng­inn skyn­sam­ur maður gæti haldi því fram að einka­sam­tal yfir öldrykkju væri hluti af op­in­ber­um skyld­um þing­manna,“ skrifar Sig­mundur Davíð.

Hann segir jafn­framt að þing­menn­irnir sex í Klaust­ur­mál­inu hafi nú þegar tekið út íþyngj­andi refs­ingu vegna máls­ins. „Ekki hvað síst þeir sem það gerðu, eins og þeir hafa við­ur­kennt afdrátt­ar­laust og beðist fyr­ir­gefn­ingar á af ein­lægni. Fyrir atvikið hafa þeir enda liðið sál­arkvalir og þegar þolað grimmi­legri refs­ingu en nokkur dóm­stóll myndi telja við­eig­andi. Í okkar sam­fé­lagi telst það ekki til glæps að hugsa ljótar hugs­anir, hugs­anir sem menn iðr­ast jafnan, og ekki heldur að missa út úr sér slíkar hugs­anir í einka­sam­tölum, hvort sem þær lýsa ein­lægri afstöðu eða eru sagðar í hálf­kær­ingi, gríni, kald­hæðni eða til að ganga fram af öðrum.“ segir Sig­mundur.

Hann segir jafn­framt að almenn­ingur sé full­fær um að meta hvað sé sið­legt og hvað ekki og þarf því ekki ekki póli­tíska sér­fræð­inga til að segja sér það. „Afstaða slíkrar nefndar, sem skipuð væri á póli­tískum for­sendum hefði því ekk­ert gildi og skipti engu mál..“

Telur Steingrím eiga harm að hefna

Í grein­inni segir Sig­mundur jafn­framt að margir hafi haft efa­semdir um að Stein­grímur væri „heppi­legur· til gegna hlut­verki þing­for­seta, þar sem fyrri þing­for­setar hafa leit­ast við að vera for­setar allra þing­manna. „Nú kýs hann að renna stoðum und­ir þær efa­semd­ir með af­ger­andi og sögu­leg­um hætti. Viðhorf Stein­gríms til mín er vel þekkt. Hann tel­ur sig eiga harma að hefna og leit­ast nú við að nýta stöðu sína í þeim til­gangi. Þó blas­ir við að ekk­ert af því sem ég sagði í einka­sam­tali sem tekið var upp með ólög­mæt­um hætti jafn­ast á við fjöl­margt sem þing­for­set­inn sjálf­ur hef­ur sagt og gert op­in­ber­lega að yf­ir­lögðu ráði,“ segir Sig­mundur.

Þá segir Sig­mundur að mann­rétt­indi hans og hinna fimm sem sátu með honum að Klaustri umrætt kvöld hafi verið brotin, ekki sé þó áhugi fyrir því hjá for­seta Alþingis að láta rann­saka slíkt. Hann sé með aðgerð­unum sínum í mál­inu að „svala hefnd­ar­þorsta sínum,“. Auk þess segir Sig­mundur að ef einka­sam­tal nokk­urra þing­manna eigi erindi til siða­nefndar þýði það að mati Sig­mundar Davíðs að fjöl­mörg mál eigi heima á borði nefnd­ar­innar., þar með talið málum sem varða þing­for­set­ann.

Hann segir að Stein­grímur hefði frekar átt að biðj­ast afsök­unar á því sem hann hafi sjálfur sagt fremur en að biðj­ast afsök­unar á tali þing­mann­anna á Klaustur bar í ræðu sinni á Alþingi í fyrra.

„Þing­for­set­inn hefði getað byrjað á að biðj­ast afsök­unar á orð­færi sínu und­an­farna ára­tugi, á því að hafa lagt hendur á ráð­herra í þing­sal og reyna svo að koma sama manni í fang­elsi með póli­tískum rétt­ar­höldum, á því að afhenda erlendum hrægamma­sjóðum íslensku bank­ana á sama tíma og þús­undir fjöl­skyldna misstu heim­ili sín, á því að hafa reynt að láta íslenskan almenn­ing taka á sig skuldir fall­inna einka­banka í and­stöðu við lög, á því að nýta ekki þau tæki­færi sem gáfust til að end­ur­reisa íslenskt efna­hags­líf en státa sig í stað­inn af hrósi erlendra fjár­mála­stofn­ana. Verði þing­for­set­inn kom­inn á skrið getur hann svo haldið áfram og beðist afsök­unar á því sem hann hefur sagt og gert í gleð­skap und­an­farin ár, meðal ann­ars sem ráð­herra.“ segir Sig­mundur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár