Óska eftir því að forsætisnefnd taki upp mál varðandi háttsemi þingmannahóps

Hópur alþing­is­manna óskar eftir því að for­sætis­nefnd taki upp mál er varðar niðr­andi ummæli og hátt­semi þing­manna­hóps sem fjöl­miðlar hafa verið að fjalla um síð­ast­lið­inn sól­ar­hring. Þau vilja að erind­inu verði vísað til siða­nefndar Alþingis.

Níu manna hópur þing­manna hefur sent erindi til for­sætis­nefndar þar sem óskað er eftir því að for­sætis­nefnd taki upp mál er varðar niðr­andi ummæli og hátt­semi þing­manna­hóps sem fjöl­miðlar hafa verið að fjalla um síð­ast­lið­inn sól­ar­hring. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­manna­hópnum.

[links]Þess er óskað að for­sætis­nefnd vísi þessu erindi til siða­nefndar þar sem ummælin og hátt­semin stang­ast á við 5. og 7. reglur siða­reglna þing­manna og óski eftir að siða­nefnd fjalli um málið og skili for­sætis­nefnd nið­ur­stöðum hið fyrsta.

Þetta yrði þá í fyrsta sinn sem siða­nefnd Alþingis yrði kölluð til.

Þing­menn­irnir eru Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, Andrés Ingi Jónsson, Ágúst Ólafur Ágústs­son, Hanna Katrín Frið­riks­son, Helga Vala Helga­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Jón Steindór Valdi­mars­son, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Þor­steinn Víglunds­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár