Gunnar Bragi: Var mjög ölvaður en ekki tilefni til að segja af sér

Gunnar Bragi Sveins­son seg­ist þurfa að biðja marga afsök­unar á ummælum sínum. Hann hafi verið „mjög ölv­aður“ en það afsaki ekk­ert. Gunnar Bragi segir frá­sögn um póli­tísk hrossa­kaup vegna sendi­herra­skipan vera að hluta til ósanna.

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist hafa verið „mjög ölv­aður“ á hitt­ingi við aðra þing­menn sem tekin voru upp og birt á fjöl­miðlum í gær. Listinn yfir það fólk sem hann þurfi að birta afsök­unar sé mjög langur. „Maður á ekki að tala svona. Það er sorg­legt í raun­inni.“ Hann er ekki sam­mála því að þing­menn í öðrum löndum sem hefðu verið upp­vísir að tali eins og því sem heyr­ist á upp­tök­unni myndu endi­lega segja af sér. „Auðvitað segjum við af okkur ef við brjótum af okkur, gegn þjóð­ar­hag eða eitt­hvað slíkt.“ Gunnar Bragi segir þetta ekki hafa verið neitt slíkt. Afleið­ing­arnar fyrir þing­menn muni koma fram í kosn­ingum.

[links]Þetta kom fram í við­tali við Gunnar Braga í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Ummæli af upp­tök­unni voru birt á vefum Stund­ar­innar og DV í gær­kvöldi. Gunnar Bragi segir þar að honum hafi dauð­brugðið þegar hann las eigin ummæli. Á upp­tök­unni heyr­ist hann tala með mjög niðr­andi hætti um t.d. Oddnýju Harð­ar­dóttur og Loga Ein­ars­son, þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar, Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, söngv­ar­ann Friðrik Ómar Hjör­leifs­son. Gunnar Bragi sagð­ist hafa náð á Loga og beðið hann afsök­unar, hann muni reyna að ná á Oddnýju sem fyrst og sé búinn að senda skila­boð til Friðriks Ómars.

[adspot]Á meðal þess sem Gunnar Bragi sagði um Oddnýju og Loga var : „„Hún fékk bara upp í hend­urnar kjaftæði Sam­fylk­ing­ar­innar sem var búinn að við­gang­ast í alltof mörg ár. Það versta er að við látum við­gang­ast að mað­ur­inn í strápils­inu sem dans­aði nán­ast á typp­inu með Skrið­jöklum á svið­inu sjálfu er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.“

Um Friðrik Ómar sagði hann: „VG hefðu getað orðið brjál­aðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari.“

Gunnar Bragi seg­ist ekk­ert vita hvað honum gekk til með þeim ummælum sem hann lét falla. „Þetta er bara galið að segja svona hluti[...]Það er eitt­hvað í koll­inum á manni sem maður þarf að skoða.“

Hann segir málið þó tví­þætt, ann­ars vegar það sem þing­menn­irnir segja, og hins vegar sé líka alvar­legt að sam­töl fólks séu tekin upp. Það sé ótrú­legt að hópur fólks geti ekki sest niður og rætt hluti án þess að eiga á hættu á slíku, að mati Gunnars Braga.

Gunnar Bragi myndi skoða boð um sendiherrastöðu

Gunnar Bragi var utan­rík­is­ráð­herra um nokk­urra ára skeið. Þar barð­ist hann opin­ber­lega mjög fyrir bættri stöðu kvenna, kom fram á alþjóða­vett­vangi sem slíkur tals­maður og skrif­aði greinar. Hann seg­ist skilja gagn­rýni á það í dag, í ljósi þeirra ummæla sem hann lét falla, en seg­ist ekki gera grein­ar­mun á körlum og konum.

[adspot]Gunnar Bragi heyr­ist á upp­tök­unni einnig vera að ræða hrossa­kaup um skipan Árna Þórs Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Vinstri grænna, og Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem sendi­herra.

Á meðal þess sem hann segir er: „„Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendi­herra í Washington […] þá ræddi ég við Sigurð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auð­vitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn. Það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að skipa Árna Þór (Sig­urðs­son) sem sendi­herra. Hann er nátt­úru­lega bara […], þó hann sé frændi minn. VG hefðu getað orðið brjál­aðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari.“

Síðar bætti Gunnar Bragi við: „Athyglin fór öll á Árna Þór. Annars hefði Vinstri Græna liðið orðið brjálað[...]Árni var nátt­úru­lega ekk­ert annað en sendi­tík Stein­gríms. Plottið mitt var að Geir yrði í skjól­inu hjá Árna og það virk­aði ekki bara 100 pró­sent heldur 170 pró­sent því að Árni fékk allan skít­inn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyrir. Það var eng­inn sem gagn­rýndi mig.“ Ég lét Árna taka allan slag­inn.[...]Ég átti fund með Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjör­lega sjálf­sagt. Auðvitað geri ég Geir að sendi­herra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sann­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Það var ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. Ég var ekki kom­inn út þegar Þórólfur (Gíslason) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendi­herra?“ Ég var ekki kom­inn út úr ráðu­neyt­inu.“

[adspot]Gunnar Bragi segir að hluti af því sem hann sagði þar sé ein­fald­lega ekki satt. Það sé til að mynda ekki rétt að hann hafi átt inni greiða hjá Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vegna þess að hann hafi skipað Geir sem sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum. Það sem hann segi um Bjarna og Þórólf Gíslason, kaup­fé­lags­stjóra Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sé ekki satt.

Það sé þó rétt að Gunnar Bragi hafi talið það hafa verið klókt að skipa þá Árna og Geir á sama tíma í sendi­herra­stöður vegna þess að skipan Árna myndi draga úr nei­kvæðri umfjöllun um skipun Geirs.

Aðspurður um hvort að Gunnar Bragi sé á hött­unum eftir að vera skip­aður sendi­herra, sem var gefið sterk­lega í skyn á upp­tök­unni, þá seg­ist hann myndi skoða það ef slíkt kæmi upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár