Inga Sæland upplifir sig sem „einn af aðalleikurunum í House of Cards“

Formaður Flokks fólks­ins segir við­brögð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar við birt­ingu upp­töku af drykkju­spjalli „sorg­leg“. Hún segir að Mið­flokk­ur­inn megi „éta það sem úti frýs“. Flokkur fólks­ins sé ekki að fara í eina sæng með honum með neinum hætti.

„Maður hefur á til­finn­ing­unni að ég sé orðið einn af aðal­leik­ur­unum í House of Cards, sem er svo­lítið skrýtið.“ Þetta sagði Inga Sæland, for­maður fólks­ins, í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun þar sem upp­tökur af drykkju­fundi sex þing­manna, þar sem Inga var meðal ann­ars harð­lega gagn­rýnd af hluta hóps­ins, voru ræddar. Fréttir upp úr upp­tök­unum voru birtar á vefum Stund­ar­innar og DV í gær­kvöldi.

[links]Inga segir að ummæli Bergþórs Ólasonar, þing­flokks Mið­flokks­ins, sem heyr­ist á upp­tök­unni kalla hana „húrr­andi klikk­uðu kuntu[...]sem þið ráðið ekki við“, dæma sig sjálf. Hún sé vön því að vera í mót­læti, hafi meðal ann­ars verið lögð í ein­elti, og taki ekki svona ummæli nærri sér. Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hefur þegar beðið Ingu afsök­unar og hún seg­ist taka þá afsökun gilda. Á upp­tök­unni heyr­ist hann efast um hæfi­leika hennar til að leiða flokk­inn. Inga seg­ist ekki hafa heyrt þetta áður. Varðandi til­hneig­ingu hennar til að tár­ast eða gráta, sem tölu­vert er rædd á upp­tök­unni, seg­ist hún beygja af þegar hún finni fyrir hinni þykku spill­ingu sem ein­kenni stjórn­málin. „Hvað sem öðrum finnst um mig þá er ég að minnsta kosti trú og trygg mínum kjós­endum.“ Hún sé ekki í þess­ari veg­ferð fyrir sjálfa sig.

[adspot]Sömu­leiðis seg­ist Inga hafa rætt við Ólaf Ísleifs­son, þing­flokks­for­mann sinn, sem var á umræddum hitt­ingi. Málið sé hins vegar grafal­var­legt, flokk­ur­inn sé fjöl­skylda og það verði tekið á mál­inu.

Miðflokkurinn má „éta það sem úti frýs“

Inga segir málið allt saman sorg­legt og enn sorg­legri séu við­brögð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins. Hann var einn fjög­urra þing­manna þess flokks sem sat við drykkju á umræddum hitt­ingi og tók virkan þátt í umræðum þar sem rætt var með niðr­andi hætti um m.a. aðra stjórn­mála­menn og konur. Sig­mundur Davíð birti stöðu­upp­færslu í gær þar sem hann fjall­aði ekki efn­is­lega um neitt sem fjöl­miðlar höfðu birt úr upp­tök­unum en sagði það alvar­leg­ast í mál­inu „ef raunin er sú að á Íslandi sé farið að stunda hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna. Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál. Hóp­ur­inn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­að­i.“ Hann gaf einnig í skyn að hann vildi láta rann­saka fjöl­miðla vegna þess að tal hans við þing­menn­ina hafi verið tekið upp.

[adspot]Inga segir við­brögð Sig­mundar Davíðs vera þau sömu og í mörgum öðrum málum sem að honum snúi, t.d. „þegar hann flytur bunka af pen­ingum“ í skatta­skjól. Hann kenni öðrum um og geti ekki litið í eigin barm. Mið­flokk­ur­inn megi „éta það sem úti frýs“. Flokkur fólks­ins sé ekki að fara í eina sæng með þeim flokki með neinum hætti.

Telur ástæðuna andóf sitt gegn sjálftöku

Á upp­tök­unum kemur einnig fram að for­ystu­menn Mið­flokks­ins reyndu mikið að fá þá tvo þing­menn Flokks fólks­ins sem sátu hitt­ing­inn til að koma yfir í sinn flokk. Ólafi Ísleifs­syni er meðal ann­ars lofað stöðu þing­flokks­for­manns láti hann slag standa. Inga segir að það sé ánægju­legt fyrir Flokk fólks­ins að Mið­flokks­menn vilji fá þeirra fólk yfir. „Mér finnst allt í lagi að þeir öfundi okkur pínu­lítið á því hvað við séum frá­bær.“

Í við­tal­inu segir Inga einnig að hún telji að ummælin um sig, þar sem lítið er gert úr hæfi­leikum hennar til að stjórna og stunda stjórn­mál, eigi rætur sínar að rekja til þess að hún hafi stundað andóf gegn sjálftöku þing­manna, sem hlaupi á millj­ónum króna. Það andóf hafi ekki mælst vel fyrir hjá sumum öðrum þing­mönnum. Ekki kom fram nákvæm­lega hvað hún ætti við þar, en bæði launa­hækk­anir þing­manna upp á tugi pró­senta og hækk­anir á fram­lögum til stjórn­mála­flokka, sem aukast um 127 pró­sent í ár, hafa verið harð­lega gagn­rýnd á und­an­förnum miss­erum. Flokkur fólks­ins var einn tveggja flokka sem skrif­aði ekki upp á þá hækkun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár